Matvælastofnun staðfestir rannsókn á meintum eldislöxum

Ríkis­stofnunin Matvæla­stofnun hefur staðfest að hún sé með til meðferðar rannsókn á uppruna laxa sem veiddust í Mjólká í Arnar­firði. Starfs­menn Mjólk­árvirkjunar skemmta sér við að kasta fyrir laxa í árstubbi sem rennur úr virkjuninni og hefur ríkis­stofnunin tekið sýni úr tólf fiskum sem veiddust í sumar.

Rannsókn stendur yfir
Rannsókn stendur yfir Rannsókn stendur nú yfir á því hvort lax­arnir sem veidd­ust í Mjólká séu eld­is­laxar eða ekki. Þetta kemur fram á heima­síðu Mat­væla­stofn­unar sem Gísli Jónsson starfar hjá sem yfir­maður fiski­sjúk­dóma. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ríkis­stofnunin Matvæla­stofnun hefur staðfest að rannsókn er hafin á uppruna laxa sem veiddust í Mjólká í Arnar­firði í sumar. Um er að ræða tólf laxa sem starfs­menn Mjólk­árvirkjunar veiddu í sumar.

Samkvæmt Steinari Jónassyni, stöðvar­stjóra virkjunarinnar, litu nokkrir þessara út eins og eldis­laxar. Stundin greindi frá málinu á föstu­daginn en þá lá stað­festing MAST á rann­sókninni á uppruna laxanna ekki fyrir.  „Við vitum ekki af hverju það er svona mikill fiskur í ánni. Okkur sýndist nú að minnsta kosti fjórir eða fimm hafi verið eldis­laxar. Hann sagði: Þetta er eldi, þetta er eldi, þetta er eldi en svo á eftir að staðfesta það. Það væri ekki að veiðast svona mikið í ánni nema fyrir eldis­fiskinn. Við vitum ekki hvaðan hann kemur,“ sagði stöðvar­stjórinn Steinar við Stundina í síðustu viku. 

„Þetta er eldi, þetta er eldi, þetta er eldi“
Steinar Jónasson, …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓY
    Óttar Yngvason skrifaði
    Allar litlu árnar í Arnarfirði eru dauðadæmdar af völdum stroklaxa úr sjókvíum norska eldisfyrirtækisins, sem hefur fengið öll sín eldisleyfi ókeypis frá þjóðinni.
    (Markaðsverð 10.000 tonna eldisleyfa í Arnarfirði samkvæmt síðustu viðskiptum innanlands nemur 25 milljörðum).
    Náttúruskaðinn verður aldrei bættur og þessi frétt er aðeins byrjunin á eyðingu villtra laxfiska í öllum ám landsins. Til viðbótar losar eldi 10.000 tonna
    ársframleiðslu í Arnarfirði úrgang saurs og fóðurleifa sem svarar skolpfrárennsli frá 160.000 manna byggð.
    Er þetta tilvinnandi fyrir atvinnu nokkurra skattlausra erlendra farandverkamanna, sem ráðnir eru á lágmarkstaxta í gegnum vinnumiðlun í Reykjavík og fyrir hagsmuni hluthafa, sem eru farnir að selja ókeypis eldisleyfin með ofsagróða?

    Varðandi greiningu á meintum eldislöxum, þá tekur aðeins nokkrar mínútur að greina hreistursýni í smásjá til að fá staðfest hvort um er að ræða eldislax eða villtan lax. Hvað dvelur Gísla og co. hjá MAST að framkvæma þetta og upplýsa? Það er í sjálfu sér nauðsynlegt rannsóknarefni.
    Flókin erfðagreining er ágæt til viðbótar, en það er síðari áfangi.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár