Umdeilt hótel á Laugarvatni reist af útgerðarfjölskyldu úr Vestmannaeyjum

Mörg hund­ruð und­ir­skrifta hafa safn­ast gegn áformum um 160 her­bergja hótel við Laug­ar­vatn sem íbúar segja ógna lífs­gæðum og líf­ríki á svæð­inu. Útgerð­ar­fjöl­skylda úr Vest­mann­eyjum er stærsti fjár­festir­inn bak við hót­elið og fast­eigna­veldið Bergey sem er í örum vexti.

Magnús Berg Magnússon
Magnús Berg Magn­ús­son Stjórn­ar­for­maður í fast­eigna­fé­lag­inu Bergey fer fyrir fjár­fest­ing­ar­fé­lagi fjöl­skyldu sinnar.

Rúmlega 800 manns hafa skrifað undir lista á Ísland.is þar sem mót­mælt er upp­bygg­ingu 160 her­bergja hót­els á þremur til fjórum hæðum við Laug­ar­vatn. Félagið Bergey stendur að baki verk­efn­inu en það er í eigu fjöl­skyldu útgerð­ar­manns sem rak Berg-Huginn í Vest­manna­eyjum um ára­tuga skeið.

Sveit­ar­fé­lagið Blá­skóga­byggð hefur boðað til íbúa­fundar á þriðju­dags­kvöld vegna máls­ins. „Bygg­ing­arnar munu skerða útsýni og aðgengi að vatn­inu og aukin bíla­um­ferð mun skapa hættu þar sem á svæð­inu er mikil umferð barna og full­orð­inna í kringum íþrótta­mann­virki,“ segir í skýr­ingu við und­ir­skrifta­list­ann. „Í dag myndar svæðið heild með vatn­inu og vot­lend­inu sem að því liggur og er mik­il­vægt fyrir líf­ríki á Laug­ar­vatni, einkum fugla.“

Að verk­efn­inu stendur félagið Logn­fossar ehf., en Bergey fast­eigna­fé­lag á félagið að fullu sam­kvæmt nýj­ast árs­reikn­ingi. Bergey hefur verið í örum vexti und­an­farin ár og á félagið fjölda eigna í mið­borg Reykja­víkur og víðar. Eignir félags­ins hýsa flagg­skips­verslun 66° …

Kjósa
69
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    hvað er þetta. er ekki fræg og falleg bygging þarna sem væri auðveldlega hægt að breyta í hótel
    það mundi vera gaman að gista þar ekki í einhverjum blikkkassa. svo er þarna heimavist fyrir þá efnaminni.
    0
    • PB
      Peik Bjarnason skrifaði
      Ef þú ert að vísa til Héraðsskólans fyrrverandi, bustahúsið með grænu þökunum, þá er nú þegar búið að breita því í hótel. Það hefur og verið gert með mikilli virðingu fyrir sögu hússins og mjög gaman að koma þar og upplifa söguna beint í æð.
      0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Mér býður við þessu forréttindapakki. Vonandi mun græðgin éta þau upp innanfrá.
    9
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvernig var með ,,veiðigjöldin" og sjávarbyggðir ? Einn sægreifinn er í hótelbyggingu og annar sægreifi í byggingu á fyrirtækjum í ótengdum rekstri á Korputorgi ? Var það lýgi og ómerkilegheit hjá Jens Garðari og öðrum sjálfstæðismönnum ?
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár