Gjaldeyrishrun Tyrklands smitar út frá sér

Snörp veiking tyrknesku lírunnar er farin að bíta fjölmörg fyrirtæki tengd Tyrklandi, evruna og gjald­miðla annarra nýmarkaðs­ríkja. Forseti Tyrklands ásakar Banda­ríkin um að hafa stungið Tyrki í bakið og segir fals­fréttir að baki krísunni.

Recep Tayyip Erdogan, Tyrklandsforseti.
Recep Tayyip Erdogan, Tyrk­lands­for­seti. Mynd: EPA

Verðbréf og gjald­miðlar víðs vegar um heiminn lækka ört í verði vegna yfir­standandi gjaldeyris­hruns í Tyrklandi. Forseti landsins hefur ásakað Banda­ríkin um að hafa stungið Tyrki í bakið og segir „fals­fréttir“ vera ástæða krísunnar. The Guardian greinir frá.

Kjarninn hefur áður greint frá gjaldeyris­krísunni í Tyrklandi, en gjald­miðillinn þar, tyrkneska líran, hefur hrapað í verði á síðustu dögum eftir að Bandaríkja­stjórn tilkynnti að hún myndi beita frekari viðskipta­þvingunum og tolla­hækkunum gegn Tyrklandi. Þar að auki hafa Tyrkir tekið stór lán í Bandaríkja­dölum og neita nú að hækka vexti samhliða vaxta­hækkunum dollarans. Við það hefur verð­bólgan í landinu náð methæðum og traust til lírunnar hrapað.

Hrun lírunnar hélt svo áfram í dag, en hún hefur lækkað um tæp sjö prósent gagnvart Bandaríkjadal það sem af er degi. Einnig ríkir fjármagns­flótti í tyrknesku kaup­höllinni þar sem stærstu fyrir­tækin hafa að meðaltali lækkað um tíu prósent í verði.

Líran bítur evrópska banka og nýmarkaðsríki

Ástandið í Tyrklandi er byrjað að smita út frá sér til annarra ríkja og fyrir­tækja víðs vegar um heiminn. Meðal þeirra eru evrópskir bankar með starfsemi í landinu, líkt og BBVA og UniCredit, sem báðir hafa lækkað um 2% í verði frá dags­byrjun. Evrópskir bankar hafa einnig kröfur í tyrkneskum bönkum að andvirði yfir hundrað milljarða Bandaríkja­dala, en fari svo að ástandið versni gætu bankarnir í Tyrklandi orðið gjald­þrota. Hættan á greiðslu­stöðvun frá tyrkneskum bönkum hefur því veikt traust gagnvart evrunni, en gengi hennar gagnvart Bandaríkjadal hefur ekki mælst lægra í heilt ár.

Slæmt gengi lírunnar hefur einnig haft áhrif á önnur nýmarkaðs­ríki sem hafa einnig tekið lán í Bandaríkja­dölum. Gengi rússnesku rúblunnar, Suður-Afríska randsins og kínverska yuansins hafa öll veikst gagnvart Bandaríkjadal á þessu ári, en bætt hefur verulega í veikinguna á síðustu dögum.

„Falsfréttir“ vandamálið

Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, kenndi „fals­fréttum“ um krísuna og Banda­ríkin reyna að „stinga landið í bakið.“ Samkvæmt honum hefur fjöldi fólks dreift misvísandi upplýsingum um ástandið til þess að skapa ringul­reið á markaðnum, en Erdogan sagði hvers kyns dreifingu á fals­fréttum vera „landráð.“ Forsetinn bætti einnig við að líran myndi ná jafnvægi á sann­gjörnu stigi innan skamms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár