Freud sjúkdómsgreinir trúaróða prinsessu bréflega: Sökudólgurinn ófullnægja

Hér segir frá því þegar Lísa prinsessa af Batten­berg komst að því að bæði Jesúa og Búdda áttu erindi við hana en sonur hennar, Filippus prins, varð að sitja á hak­anum.

Lísa prinsessa af Battenberg var heyrnarlaus en náði með sjaldgæfum dugnaði valdi á að taka fjögur tungumál.
Lísa prinsessa af Batten­berg var heyrn­ar­laus en náði með sjald­gæfum dugn­aði valdi á að taka fjögur tungu­mál.

Fyrir nokkrum vikum sagði hér í Stund­inni frá afar mik­ils­verðum málum úr ann­álum grísk/dönsku/bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Og hér var komið sög­unni:

Georg, sonur Krist­jáns 9. Dana­kon­ungs, var val­inn Grikkja­kóngur 1863, aðeins 17 ára. Elsti sonur hans, Kon­stantín, tók við að honum látnum 1913. Hann var rek­inn úr valda­stóli fjórum árum síðar eftir inn­an­lands­erjur og Alex­ander, sonur hans, tók við. Sá varð mjög skamm­lífur og er hann dó 1920 brá svo við að Kon­stantín var aftur tek­inn til kon­ungs. Hörmuleg fram­ganga Kon­stan­íns í hörmu­legu stríði Grikkja við Tyrki 1919–1922 olli því hins vegar að hann var öðru sinni hrak­inn frá völdum snemma árs 1923. Ný þing­ræð­is­leg stjórn­völd í land­inu vildu um þær mundir losna við allt kon­ungs­hyskið og þar á meðal tvo yngri bræður Kon­stant­íns, Georg og Andrés.

Georg var maður lít­illa sanda, þótt hann hefði óvænt áhrif á ver­ald­ar­sög­una þegar hann bjarg­aði lífi Niku­lásar frænda síns, verð­andi keis­ara Rússa. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár