Trump hefur tíst sitt síðasta en þingmenn hræðast vald hans yfir hernum

Nancy Pelosi, forseti fulltrúa­deildar Banda­ríkjaþings, krefst tafar­lausrar afsagnar Donalds Trump Bandaríkja­forseta, annars verði hann aftur ákærður fyrir þinginu. Öldunga­deildar­þingmaður repúblikana fer fram á afsögn Trumps. Forsetinn er sagður hafa sett Mike Pence vara­forseta í hættu.

Donald Trump
Donald Trump Á svið­inu and­spænis fylg­is­mönnum sínum við Hvíta húsið á mið­viku­dag, þar sem hann sagði þeim að kosn­ing­unum hefði verið stolið. Mynd: Brendan Smialowski / AFP

Twitter hefur lokað varanlega á reikning Donalds Trump Bandaríkja­forseta vegna hættu á að hann hvetji til frekara ofbeldis. Þingmenn Demókrata og sumir repúblikanar reyna nú að fá forsetann úr embætti til að hindra að hann geti beitt hernum.

Fimm létust, og þar af einn lögreglu­maður, eftir að Trump espaði upp fylgis­menn sína við Hvíta húsið á miðvikudag með ásökunum um kosninga­svindl og hvatningu til aðgerða, með þeim afleiðingum að hópur fylgis­manna hans, þar á meðal þekktir samsæris­kenninga­smiðir og öfga­fullir kynnþáttahatarar, brutu sér leið inn í þinghúsið.

Nancy PelosiForseti full­trúa­deild­ar­innar hefur fundað með æðstu yfir­mönnum hers­ins um hætt­una af því að Donald Trump stofni til hern­að­ar­á­taka undir lok valda­tíðar sinnar.

Óttast vald Trumps yfir hernum

Lokað á TrumpStjórn­endur Twitter komust að þeirri nið­ur­stöðu eftir árás­ina á þing­húsið í Washington að Trump hefði brotið reglur mið­ils­ins.

Nancy Pelosi, forseti fulltrúa­deildar þingsins, hefur rætt við æðstráðendur í varna­mála­ráðuneytinu um að „hindra óstöðugan forseta frá því að hefja hernaðar­aðgerðir eða komast yfir kjarnorku­vopna­kóða“.

Á meðan Trump er forseti hefur herinn lagalega skyldu til þess að fylgja skipunum hans sem æðsta yfirmanns Bandaríkja­hers.

Demó­kratar og sumir repúblikanar vilja beita 25. viðauka stjórnar­skrárinnar, sem kveður á um að óhæfur forseti geti verið fjar­lægður úr embætti.

Fulltrúa­deild þingsins getur með einföldum meirihluta ákært forsetann. Til þess að hann verði fjar­lægður úr embætti þurfa hins vegar tveir þriðju öldunga­deildar­þingmanna að samþykkja ákæruna.

Í uppkasti að ákæru gegn Trump er kveðið á um að hann hafi „hvatt til uppreisnar“.

Skrif­stofa Pelosi var yfirtekin af trumpistum á miðvikudag. Mynd af stuðnings­manni Trumps með fæturnar uppi á skrif­borði Pelosi vakti mikla athygli, en maðurinn sem þar sat hefur nú verið hand­tekinn.

Repúblikanar yfirgefa Trump

Lisa Murkowski varð í dag fyrsti öldunga­deildar­þingmaður Repúblikana­flokksins til þess að krefjast afsagnar Trumps.

Bill Barr, fyrr­verandi dómsmála­ráðherra Trumps, er einn þeirra sem hefur sagt Trump hafa „svikið embætti sitt“.

Joe Biden segir að það sé í höndum þingsins að ákveða með ákæru. „Hann hefur farið fram úr verstu hugmyndum mínum um hann. Hann er landinu til skammar. Hann er ekki þess verður að sitja í embætti.“ Biden sagði í ræðu að Trump hefði um langt skeið notað orðfæri einræðis­herra um andstæðinga sína, og nefnt þá „óvini fólksins“.

„Hann er landinu til skammar.“

Mike Pence vara­forseti er sagður vera reiður forsetanum eftir að hann espaði æstan múginn upp á móti honum. Í þing­húsinu heyrðist innrásar­fólkið kalla: „Hvar er Mike Pence?“ Pence hafði þá verið naumlega forðað undan innrásar­hópnum, líkt og þing­mönnum í húsinu.

Samkvæmt frétt CNN hafði Trump hótað Pence alvarlegum pólitískum afleiðingum ef hann hindraði ekki formlega stað­festingu á kjöri Joes Biden á þinginu á miðvikudag. Þá kemur fram að Trump hafi beint blóts­yrðum að Pence þegar hann hafnaði því að grípa inn í stað­festinguna, á þeim grund­velli að engin laga­heimild væri fyrir því og að athöfnin væri táknræn.

Síðasta tíst Donalds Trumps á Twitter var eftir­farandi: „Til allra sem hafa spurt mig. Ég mun ekki mæta á innsetninguna 20. janúar.“

Hann var með 88 milljón fylgjendur á Twitter. Barack Obama, forveri hans í forseta­stóli, er hins vegar með 128 milljónir fylgjenda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár