Alphabet fjórði tæknirisinn til að brjóta 1.000 milljarða Bandaríkjadala múrinn

Fjögur fyrirtæki í Banda­ríkjunum hafa nú náð því marki að vera virði meira en eitt þúsund milljarða Bandaríkja­dala. Alphabet bættist í hópinn í dag.

Alphabet (Google) er nú virði rúmlega eitt þúsund milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 125 þúsund milljörðum króna.

Fyrir­tækið er hið fjórða í sögu hlutabréfa­markaða í Banda­ríkjunum sem nær þessum tímamótum í markaðs­virði.

Hin fyrir­tækin eru Apple - sem er 1,4 þúsund milljarða Bandaríkja­dala virði í dag -, Microsoft - með 1,3 þúsund milljarða Bandaríkja­dala -, og síðan Amazon, en verð­miðinn á því fyrirtæki í dag er þó aðeins undir þúsund milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 940 milljörðum.

Samanlagt virði þessara fyrirtæki nemur því um 4.640 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 580 þúsund milljörðum króna.

Virði þessara fjögurra fyrir­tækja hefur marg­faldast á undan­förnum fimm árum. Sé horft til síðustu tólf mánaða, hefur virðið hækkað hratt hjá Alphabet, Microsoft og Apple, eða um að meðaltali 65 prósent. Amazon náði þúsund milljarða Bandaríkja­dala markinu fyrst árið 2018, en Microsoft á síðari hluta síðasta árs.

Þessi fyrirtæki eru með digra sjóði, svo ekki sé meira sagt. Þannig má sem dæmi nefna, að samanlagt laust fé frá rekstri hjá Apple og Microsoft nemur nú um 400 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 50 þúsund milljörðum króna.

Fyrir þá upphæð er hægt að stað­greiða allt húsnæði á Íslandi sex sinnum, sé mið tekið af fasteigna­mati 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár