Aðhaldsaðgerðir eftir fjármálakreppuna bitnuðu illa á fátækum svæðum

Hagfræði­prófessor greinir stöðu efnahags- og stjórn­mála í Bretlandi, eftir sögulegan kosninga­sigur Íhalds­flokksins.

Mikið vantraust einkennir stjórn­málin í Bretlandi og Banda­ríkjunum þessi misserin. Fjármála­kreppan fyrir rúmum áratug hefur þar mikið að segja.

Þetta er til umfjöllunar í ítarlegri grein sem Gylfi Zoega, hagfræði­prófessor, skrifar í nýjustu útgáfu Vísbendingar, þar sem farið er yfir stöðu mála eftir sögulegan kosninga­sigur Íhalds­flokksins í Bretlandi og einnig dínamískt ástanda í stjórn­málum í Banda­ríkjunum.

Í greininni segir meðal annars:

„Ástæður vantraustsins eru marg­víslegar. Hér kemur fyrst í huga misskipting tekna og auðs innan lands en auðlegð Lundúna­borgar sker í augu þeirra sem búa í Norður Englandi við krappari kjör. Hægur kaupmáttar­vöxtur bætir ekki úr skák. Kaup­máttur lækkaði frá fjármála­kreppunni 2008 fram í lok árs 2014 og hefur aðeins hækkað lítillega síðan.

Aðhalds­aðgerðir ríkis­stjórnar sem komst til valda um vorið 2010 bitnuðu illilega á fátækustu héruðum Englands og urðu þannig til þess að magna óánægjuna enn meira. Og margir óttast að innflytjendur ógni menningu og siðum innfæddra og innflytjendur taki jafnvel störfin af þeim sem eru fyrir. Til samans verður þetta til þess að kjósendur treysta ekki lengur stjórn­málamönnum og stjórn­málaflokkum sem eru á miðju stjórn­málanna fyrir hagsmunum sínum.

Við þetta bætist að aukin alþjóða­viðskipti og tækni­framfarir ógna störfum, þau verða þá mörg mögulega flutt til annarra landa í fram­tíðinni eða lögð af með bættri tækni. Ótti fólks við fram­tíðina hefur aukist.“

Hægt er að gerast áskrifandi að Vísbendingu hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár