Óteljandi spurningum enn ósvarað

Þingmaður Samfylk­ing­ar­innar spyr hvers vegna fjármála­ráðherra hafi ekki leiðrétt þær upplýsingar sem Alþingi fékk frá Banka­sýslunni um að hann yrði „upplýstur að fullu leyti um hverja sölu“ ef hann ætlaði sér alltaf að samþykkja söluna með „lokuð augun“.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að enn sé óteljandi spurningum ósvarað varðandi Íslands­banka­söluna og að það sé eðlileg krafa að Alþingi komi strax saman og hefjist handa við að setja á fót óháða rann­sóknarnefnd til að fara yfir alla þætti málsins.

Þetta kemur fram í stöðu­uppfærslu á Facebook-síðu hans í dag.

Bjarni Benediktsson efnahags- og fjármála­ráðherra tjáði sig um málið fyrr í dag og fjallaði um lög um sölu­meðferð eignar­hluta ríkisins í fjármála­fyrirtækjum sem Oddný Harðar­dóttir þingmaður Samfylkingarinnar og þáverandi fjármála­ráðherra mælti fyrir.

Ráðherrann sagði að mark­miðið með lög­unum hefði verið að fela fram­kvæmd­ina sér­stakri rík­is­stofnun til að tryggja hlut­lægni við fram­kvæmd­ina. Hann telur að það sé fróð­legt að skoða fram­sögu­ræðu Odd­nýjar við þetta til­efni en þar seg­ir: „Í frum­varp­inu er lagt til að hlut­verk Banka­sýslu rík­is­ins við sölu­með­ferð verði meðal ann­ars að und­ir­búa sölu, leita til­boða í eign­ar­hlut, meta til­boð, ann­ast samn­inga­við­ræður við utan­að­kom­andi ráð­gjafa og vænt­an­lega kaup­endur og ann­ast samn­inga­gerð.“

Vísaði hann enn­fremur í grein­ar­gerð­ina með frum­varp­inu þar sem segir að gert sé ráð fyrir að ráð­herra geti falið Banka­sýslu rík­is­ins að ann­ast end­an­legan frá­gang vegna sölu eign­ar­hluta og að sala hluta með útboði eða skrán­ing bréfa í kaup­höll sé ferli sem er frá­brugðið hefð­bund­inni til­boðs­sölu. „Sem dæmi er ekki um mat á ein­staka til­boðum eða eig­in­legar samn­inga­við­ræður við ein­staka kaup­endur að ræða þegar almennt útboð eða skrán­ing bréfa fer fram,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Ráð­herr­ann telur því að ekki þurfi að hafa mörg orð um að mál­flutn­ingur stjórn­ar­and­stæð­inga sé bein­línis rang­ur.

Ráðherra taki ákvörðun um hvort tilboði skuli tekið eftir að hafa fengið rökstutt mat frá Bankasýslunni

Jóhann Páll vísar sömuleiðis í þessi lög í stöðu­uppfærslu sinni og bendir á að í fjórðu grein laganna sé kveðið á um að ráðherra taki ákvörðun um hvort tilboði skuli tekið eftir að hafa fengið rökstutt mat frá Banka­sýslunni á þeim tilboðum sem berast í tiltekna eignar­hluti.

Hann greinir frá því að í minnis­blaði Banka­sýslunnar til ráðherra frá 20. janúar sem lagt var fyrir þing­nefndir segi að „ráðherra [verði] upplýstur að fullu leyti um hverja sölu, enda þarf samþykki hans fyrir söluverði og sölumagni í hvert skipti sem eignar­hlutir ríkisins í bankanum eru fram­seldir til annarra eiganda“.

„Eftir söluna, sem ráðherra og stjórnar­liðar hreyktu sér af dögum saman meðan við í stjórnar­andstöðunni bentum á ýmislegt sem orkaði tvímælis, birti svo fjármála­ráðuneytið tilkynningu þar sem fram kemur að „upplýsingar um tilboð eða tilboðs­gjafa voru aldrei bornar undir fjármála- og efnahags­ráðuneytið“.

Hvernig gat ráðherra tekið upplýsta ákvörðun um hvort gengið yrði að tilboðum, og hvernig gat ráðherra tekið afstöðu til rökstudda matsins frá Banka­sýslunni án þess að búa yfir upplýsingum um tilboð og tilboðs­gjafa og máta þær grunn­upplýsingar við forskriftina sem hann gaf Banka­sýslunni um söluna og markmiðin sem sala verður að uppfylla samkvæmt lögum um sölu­meðferð eignar­hluta ríkisins í fjármála­fyrirtækjum?“ spyr þing­maðurinn.

Jóhann Páll spyr jafnframt hvers vegna ráðherra og ráðuneytið hafi ekki leiðrétt þær upplýsingar sem Alþingi fékk frá Banka­sýslunni um að ráðherra yrði „upplýstur að fullu leyti um hverja sölu“ ef ráðherra ætlaði sér alltaf að samþykkja söluna með lokuð augun. „Ef til vill til að koma í veg fyrir að hann yrði vanhæfur vegna kaupa pabba síns, frænda og vina í bankanum?“

Bjarni velur það sem hentar

Oddný svarar Bjarna í athugasemd undir færslu hans og fjallar um sama ákvæði og Jóhann Páll. Þar segir hún að það sé rétt hjá Bjarna að hún þekki lögin vel. „Enda voru þau samin í minni tíð í fjármála­ráðuneytinu og ég mælti fyrir þeim á sínum tíma. Þú vitnar í ræðu mína og í greinar­gerð með lögunum en velur þér það sem hentar. Það er skýrt bæði í lögunum og í greinar­gerðinni að það er ráðherra sem tekur ákvörðun um hvort tilboði skuli tekið eftir rökstutt álit frá Banka­sýslunni. Svo er „endanlegur frágangur“ auðvitað allt annað en að taka ákvörðun um samþykki eða höfnun tilboða.“

Segir hún að fram hafi komið í ræðu sinni þegar hún mælti fyrir frum­varpinu að í fjórðu grein laganna væri kveðið á um að Banka­sýsla ríkisins annaðist sölu­meðferð eignar­hluta fyrir hönd ríkisins í samræmi við ákvörðun ráðherra. Jafnframt væri kveðið á um að ráðherra tæki ákvörðun um hvort tilboði skyldi tekið eftir að hafa fengið rökstutt mat frá Banka­sýslunni á þeim tilboðum sem berast í tiltekna eignar­hluti.

Í frum­varpinu væri lagt til að hlutverk Banka­sýslu ríkisins við sölu­meðferð yrði meðal annars að undirbúa sölu, leita tilboða í eignar­hlut, meta tilboð, annast samninga­viðræður við utan­aðkomandi ráðgjafa og væntanlega kaupendur og annast samninga­gerð. Við mat á tilboðum í meira en 10 prósent eignar­hlut í fjármála­fyrirtæki bæri að líta til skilyrða um mat á hæfi tilboðs­gjafa til þess að fara með eignar­hlut í fjármála­fyrirtæki.

Oddný vitnar að lokum í greinar­gerðina með frum­varpinu: „Í 2. mgr. 4. gr. er lagt til að Banka­sýsla ríkisins skili ráðherra rökstuddu mati á tilboðum í eignar­hlutann þegar þau liggja fyrir. Í kjölfarið mun ráðherra taka ákvörðun um samþykki eða höfnun tilboða fyrir hönd ríkisins. Í 2. mgr. er jafnframt kveðið á um að ráðherra skuli undirrita samninga fyrir hönd ríkisins um sölu eignar­hluta. Gert er ráð fyrir að ráðherra geti falið Banka­sýslu ríkisins að annast endanlegan frágang vegna sölu eignar­hluta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár