Ósköp eru dapurleg örlög Davíðs Oddssonar.
Þessi maður - sem um aldamótin 2000 slagaði þó nokkuð upp í Halldór Laxness í skoðanakönnunum um „merkasta Íslending tuttugustu aldar“ - hann ver sinni síðustu pólitísku baráttu og eyðir síðustu leifunum af orðstír sínum í að reyna að níða niður fræðimannsorðspor Guðna Th. Jóhannessonar af öllum mönnum.
Þessi forni stórkall, hann mælir nú árangur sinn í því hvort honum tekst að hafa örfá prósent af forsetaframbjóðanda sem situr dolfallinn andspænis ósköpunum og spyr að vonum:
„Davíð, hefur þú enga sómakennd?“
Gabriel Gárcia Márquez skrifaði einu sinni skáldsögu sem bar heitið „Haust patríarkans“ og fjallaði um hnignun og fall einræðisherra í Suður-Ameríku.
Hin sorglega frammistaða fyrrum forsætisráðherra í sjónvarpinu í dag sýndi rækilega að nú er ekki haust, nei, nú er runninn upp nístingsvetur Davíðs Oddssonar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir