Hrun fuglastofna í Norður-Ameríku vekur upp spurningar

Ný grein í Science greinir frá niður­stöðum viða­mikilla rannsókna á fuglalífi í Norður-Ameríku.

Stofnar fugla í Norður-Ameríku, Banda­ríkjunum og Kanda, hafa minnkað um tæplega 30 prósent á síðustum 49 árum.

Frá þessu er greint í nýrri grein í vísinda­tímaritinu Science, sem er eitt virtasta vísindarit heims.

Það eru líffræðingar og fugla­fræðingar í helstu háskólum Banda­ríkjanna, sem hafa stundað rann­sóknir á þróun fugla­stofna, sem framkvæmdu rann­sóknirnar og greindu frá helstu niður­stöðum þeirra.

Ástæðan fyrir þessari miklu minnkun er meðal annars rakin til þess að illa hefur gengið fyrir fugla­stofna að finna sér svæði, þegar búið er að taka fyrrum heimkynni þeirra undir ræktar­svæði.

Peter Marra, sem stýrir umhverfis­stofnun Georgetown háskóla, segir að niður­stöður rann­sóknanna séu sláandi og bendi til mikilla vistkerfis­breytinga. Frekari rannsókn sé þörf til að greina betur þróun sem eru að eiga sér þessi misserin.

Megin­skýringin sé einfald­lega sú að fuglar hafi orðið undir og misst varpsvæði, ekki síst vegna sífellt meiri starfsemi land­búnaðar og vélvæðingar í iðnaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár