Myrkraverk eða aðlögun

Skömmu eftir miðnætti aðfara­nótt sl. föstudags kynnti danski menningar­mála­ráðherrann fjölmiðla­samkomulag stjórn­ar­innar og Danska Þjóðar­flokksins. „Sann­kallað myrkra­verk,“ segir stjórnar­andstaðan, „aðlögun í breyttu fjölmiðla­landslagi,“ segir ráðherrann.

Mette Bock, menningarmálaráðherra Danmerkur.
Mette Bock, menn­ing­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: Wiki Commons

Nýr rekstrar­rammi dönsku fjöl­miðlanna á að taka gildi í ársbyrjun 2019. Hann verður mjög breyttur frá núverandi samningi, sem var gerður árið 2014, í stjórnartíð Helle Thorning-Schmidt. Það samkomulag var gert með svonefndu „breiðu samkomu­lagi“ sem þýddi að meirihluti stjórnar­andstöðunnar studdi hann og því var ekki hróflað við samkomu­laginu á því fjögurra ára tímabili sem það tók til.

Nú er komið að því að ganga frá nýjum „ramma“ en nú náðist ekki „breitt samkomulag“ sem þýðir að stjórnar­andstaðan er óbundin og gæti gert breytingar komist hún til valda eftir næstu kosningar, sem verða væntanlega á næsta ári.

Nefskattur í stað afnotagjalds

Nýi rekstrar­ramminn gerir ráð fyrir mjög miklum breytingum varðandi fjöl­miðlana. Mestar verða breytingarnar á DR, danska ríkis­útvarpinu, en fjár­framlög til stofnunarinnar verða skorin niður um samtals 20% (ca 700 milljónir danskra króna, tæpir 12 milljarðar íslenskir) á næstu fimm árum. Afnota­gjaldið verður afnumið en þess í stað kemur nefskattur, með þessari breytingu hverfur sölu­skatturinn. Árlegur nefskattur verður kr. 1.285.- pr. einstakling (rúmlega 21 þúsund íslenskar). Með þessari breytingu úr afnota­gjaldi í nefskatt borgar einstaklingur sem býr einn, minna en áður, tveir í heimili borga svipað og áður en fyrir þriggja manna heimili verður gjaldið hærra en það var áður.

Hefur lengi verið stefna að minnka umfang DR

Ekki er hægt að segja að þessi breyting á rekstrar­rammanum komi á óvart. Hægri flokkarnir, bláa blokkin svonefnda, í dönskum stjórn­málum hafa lengi talað fyrir því að minnka umfang DR, sem þeir segja alltof fyrirferðar­mikið á dönskum fjölmiðla­markaði og skapa þurfi aukið svigrúm fyrir aðra fjölmiðla. Danski þjóðar­flokkurinn, sem segja má að stjórni ríkis­stjórninni, bakvið tjöldin, hafði reyndar lýst því yfir að skera bæri starfsemi DR niður um 25%. Flokkurinn hefur lengi haft horn í síðu DR og sakað stofnunina um að vera flokknum andsnúið í frétta­flutningi.

Á þessu ári hefur DR til umráða um það 3,8 milljarða króna (ca 62 milljarðar íslenskir) en sú upphæð lækkar í áföngum niður í 3,1 milljarð árlega (tæpa 52 milljarða íslenska) á næstu fimm árum. Fyrir þessa peninga rekur DR sex sjónvarps­rásir og átta útvarps­rásir. Tvær þessara sjónvarps­rása eru ætlaðar börnum, tólf ára og yngri, en Danski þjóðar­flokkurinn hafði sett það skilyrði að ekki yrði hróflað við barna­efninu.

Litið til baka, til ársins 1925

Á fréttamanna­fundinum fyrir utan Kristjáns­borgarhöll, í myrkrinu aðfara­nótt sl. föstudags (29. júní), sagði Mette Bock að hún sæi fyrir sér að horfið yrði til þeirra sjónar­miða og markmiða sem sett voru þegar DR, sem þá hét Statsradiofonien, hóf starfsemi 1. apríl 1925. Semsé menningar og fræðslu­hlutverk. „Mér finnst við tala of mikið um magn þegar DR á í hlut, en ég vil gjarna að meira verði talað um gæði,“ sagði ráðherrann. Það þýðir ekki fræðslu­þætti um járn- og steinöld frá morgni til kvölds, eða þætti fyrir sérvitringa, en það þýðir danskt gæðaefni, á hærri stalli en það sem aðrir bjóða.

Að mati ráðherrans rær DR um of á sömu mið og margir aðrir fjöl­miðlar. Þegar frétta­menn vildu nánari útskýringar á því hvað DR ætti ekki að gera sagðist Mette Bock ekki blanda sér í þær ákvarðanir. Benti hinsvegar á að í ágúst og september yrði unnið að gerð nýs almanna­þjónustu­samnings fjöl­miðlanna. Þar yrði nánar kveðið á um hlutverk DR. Í „rammanum“ er gert ráð fyrir að DR starfræki fjórar sjónvarps­rásir, í stað sex nú og fækki útvarprásunum úr átta í sex. Maria Rørbye Rønn útvarps­stjóri DR segir að sá mikli niður­skurður sem DR er ætlað að sæta muni bitna á dagskránni, slíkt sé óhjákvæmilegt.

Margt fleira í „rammanum“

Nýi rekstrar­ramminn fjallar ekki bara um DR. Þar er kveðið á um að stafrænir fjöl­miðlar skuli undan­þegnir virðis­aukaskatti , einsog prent­miðlarnir eru í dag. Þetta er breyting sem mælist vel fyrir. Styrkir til svæðis­bundinna frétta­miðla verður aukinn, styrkur til kvikmynda­framleiðslu hækkar um 120 milljónir á ári (ca. tvo milljarða íslenska). Enginn hefur neitt við þessar ákvarðanir að athuga.

Radio24syv

Í „rammanum“ er kveðið á um að útvarps­stöðin Radio24syv skuli að hluta flytjast frá Kaupmanna­höfn vestur fyrir Stóra­belti, annað hvort til Fjóns eða Jótlands. Radio24syv fær hluta afnota­gjaldanna (og nefskattsins þegar hann verður tekinn upp). Útsendingar hófust árið 2011 og stöðinni var ætlað að vera talmálsrás, þar sem fréttir og frétta­tengt efni, ásamt umfjöllun um menningarmál, væri í fyrirrúmi, líkt og P1 rás DR. Forsvars­menn Radio24syv hafa lýst efasemdum um þá ákvörðun að stöðin skuli flutt vestur fyrir Stóra­belti, segja að hvort sem mönnum líki það betur eða verr sé Kaupmanna­höfn miðpunktur landsins hvað fréttir og þjóðmál áhræri. Krafan um flutning stöðvarinnar er komin frá Danska þjóðar­flokknum.

TV2 verður ekki selt

Það hefur lengi verið stefna stjórnar­flokksins Venstre að selja sjónvarps­stöðina TV2. Útsendingar TV2 hófust haustið 1988, stöðin er, að nær öllu leyti, í eigu ríkisins og að mestu fjár­mögnuð með auglýsingum, fær þó hluta afnota­gjaldsins gegn því að reka frétta­stofu. Frétta­stofan er öflug og stenst fullkomlega samanburð við frétta­stofu DR en annars er dagskráin blanda af öllu mögulegu. TV2 sendir út, ólíkt DR, morgun­sjónvarp. Ríkis­stjórnin hafði ætlað sér að sala á TV2 yrði hluti nýja fjölmiðla­samkomu­lagsins en þar spyrnti Danski þjóðar­flokkurinn við fótum og stjórnin hætti við allar fyrir­ætlanir um söluna. „Í bili,“ sagði Mette Bock menningar­mála­ráðherra.

Andúðarfnykur

Eins og áður sagði standa stjórnar­andstöðu­flokkarnir Sósíal­demókratar og Radikale Venstre ekki að nýja fjölmiðla­samkomu­laginu „rammanum“. Þeir eru þannig ekki bundnir af fjögurra ára gildis­tíma þess. Talsmenn beggja flokka segja „rammann“ aðför að DR, aðför sem beri öll merki andúðar á flaggskipi danskra fjölmiðla. Sú andúð litist af viðhorfum fulltrúum stjórnar­flokkanna, og ekki síst Danska þjóðar­flokksins á ríkis­fjöl­miðlinum. Talsmenn flokkanna tveggja segja það verða sitt fyrsta verk, komist þeir í stjórn eftir kosningar að „rúlla rammanum“ til baka. „DR á að vera, eins og það er í dag, fyrir alla,“ sagði talsmaður Radikale Venstre. „Það er andúðar­fnykur af þessari ákvörðun.“

Hvort fjölmiðla­samkomu­lagið, og sér í lagi niður­skurðurinn á DR, verði kosningamál í næstu þing­kosningum er engin leið að segja fyrir um. Árum saman hafa skoðana­kannanir sýnt að Danir bera mikið traust til DR, þykir það gott eins og það er í dag. Ekki er gott að segja hvernig fyrir­hugaðar breytingar á stofnuninni mælast fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár