Undanfarin ár sýnt að sjálfstæð peningastefna geti virkað á Íslandi

Már Guðmundsson seðla­bankastjóri segir „ekki að sjá að skammtíma­sveiflur krónunnar skilji sig mikið frá skammtíma­sveiflum annarra norræna króna“.

Undan­farin ár hafa sýnt okkur að sjálfstæð peninga­stefna getur virkað fyrir Ísland þótt ekki sé endilega víst að sú verði raunin um alla framtíð. Þetta sagði Már Guðmundsson, seðla­bankastjóri á fundi Viðskipta­ráðs um peningamál sem haldinn var í Gamla bíói á dögunum. Ræða hans af fundinum var birt á vef Seðla­bankans í dag.

„Ef litið er framhjá eftir­málum þess að fastgengis­stefnan steytti á skeri, fjármála­kreppunni og tímabili fjármagns­hafta er ekki að sjá að skammtíma­sveiflur krónunnar skilji sig mikið frá skammtíma­sveiflum annarra norræna króna, sem eru sveigjanlegar, eða hrávöru­gjaldmiðla. Það koma einnig toppar í flökt þessara gjald­miðla,“ sagði Már.

Þetta er í samræmi við ummæli Þórarins G. Péturs­sonar, aðal­hagfræðings Seðla­bankans, sem hefur bent á að ekki sé til neitt fyrir­komulag peninga­mála sem láti sveiflur á gengi og vöxtum hverfa. Raun­gengis­sveiflur þekkist bæði í löndum sem búi við sveigjanlegt gengi og fastgengis­stefnu.

„Peninga­stefnan getur t.d. ekki til lengdar haft áhrif á raun­gengið. Hún getur þannig lítið gert í því að draga úr ruðnings­áhrifum mikils vaxtar nýrrar útflutnings­greinar. Ef hún myndi reyna það yrðu áhrifin aðeins tíma­bundin en á kostnað þess að fórna þeim markmiðum sem henni hafa verið sett og hún getur náð,“ sagði Már á fundinum í Gamla bíói. „Atvinnuvega­stefna og ríkis­fjármála­stefna getur hins vegar haft slík raunáhrif til langs tíma og það er þangað sem þeir eiga að leita sem hafa af þessu áhyggjur.“ 

Már velti því upp hvað hefði breyst síðan Seðla­bankinn birti ítarlega skýrslu um valkosti Íslands í peninga­málum árið 2012. Megin­niðurstaða skýrslunnar var sú að æskilegustu valkostirnir væru annars vegar full aðild að evru­svæðinu í gegnum samnings­ferli við Evrópu­sambandið og hins vegar áframhald sveigjanlegs gengis með verðbólgu­markmiði. 

Ljóst var þá að sjálfstæð peninga­stefna og sveigjanlegt gengi höfðu ekki virkað sérlega vel í gegnum tíðina, en að sama skapi hafði fjármála­kreppan afhjúpað alvarlega veikleika í uppbyggingu evru­svæðisins. Hvorki þá né nú er afgerandi stuðningur við það á Alþingi að Ísland freisti þess að ganga í Evrópu­sambandið og taka upp evru. 

„Hefur eitthvað breyst? Evru­svæðið er enn að innleiða þær umbætur sem taldar eru nauðsynlegar til að það virki vel og ekki sýnist mér að pólitískur stuðningur við slíkt ferli hafi mikið aukist síðan skýrslan var gefin út. Hins vegar hafa marg­víslegar umbætur verið gerðar á framkvæmd peninga­stefnunnar hér á landi,“ sagði Már. „Þá hefur fjármála­stöðugleika­stefna verið stórbætt. Miklu af því sem ég hef kallað verðbólgu­markmið plús hefur þegar verið hrundið í framkvæmd. Við höfum nú séð á síðustu árum að sjálfstæð peninga­stefna getur virkað rétt, líka hér. Þar erum við nú. Það þarf ekki að þýða að við verðum þar um alla framtíð. Það er engin eilíf lausn til í peninga­málum og mismun­andi kostir þróast í tímans rás.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár