Greinendur eitt stórt spurningamerki eftir fund Kim Jong Un og Trump

Þrátt fyrir að Bandaríkja­forseti hafi verið sigri hrósandi eftir fund með leiðtoga Norður-Kóreu þá eru ekki allir á sama máli.

Donald Trump Bandaríkja­forseti var sigri hrósandi eftir fundinn sögulega í nótt með Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu. 

Trump sagði fundinn hafa verið „frábæran“ (fantastic) og sagði enn fremur, nú yrði haldið áfram með það markmið að koma á friði og framþróun á Kóreu­skaga.

Kim Jong Un var ekki eins margmáll og Trump, en sagði þó að það hefði þurft að yfirstíga margar hindranir úr fortíðinni til að koma fundinum á. Spjall þeirra hefði gengið vel.

Undir­ritað var plagg í lok fundarins, sem ekki hefur verið birt, en grundvallar­krafa Banda­ríkjanna fyrir fundinn var kjarnorku­vopna­afvopnun Norður-Kóreu. Ef marka má skrifa fjölmiðla í Banda­ríkjunum er fundurinn hafa markað þau þáttaskil, að nú sé kominn á samræðu­grundvöllur milli landanna tveggja og framundan sé breytt samskipta­mynstur.

Trump segir að miklar breytingar séu í farvatninu.

Í umfjöllun New York Times segir að samkomu­lagið sem undir­ritað var, feli í sér vilyrði um afvopnun en þar sem ekki sé nákvæmlega útfært, til dæmis á hvaða tímabili eða með hvaða hætti skuli standa að henni, þá sé erfitt að átta sig á mikilvægi samkomu­lagsins.

Washington Post segir að fundurinn hafi fyrst og fremst verið táknrænn um breytta tíma, og of snemmt sé að segja til um hvað framtíðin muni bera í skauti sér.

Sérfræðingur breska ríkis­útvarpsins BBC segir að fundurinn marki þáttaskil, en það sé erfitt að greina nákvæmlega hvað það var, sem kom út úr fundinum annað en það að þessir leiðtogar erkióvina hafi náð að eiga persónu­legan fund. Það eitt og sér sé merkilegt, en efnis­atriðin séu enn eitt stórt spurninga­merki, meðan nákvæmar upplýsingar liggja ekki fyrir um hvernig málin verða tekin áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár