Segir að leiðarvísir flugmanna fyrir Max-vélarnar hafi átt að vera betri

Yfirmaður bandaríska flugmála­yfirvalda sat fyrir svörum þing­nefndar Banda­ríkjaþings í dag.

Daniel Elwell, yfirmaður flugmála­yfirvalda í Banda­ríkjunum (Federal Aviation Administration), sagði frammi fyrir þingnefnd Banda­ríkjaþings í dag, að leiðar­vísir fyrir flugmenn Boeing 737 Max véla, hafi ekki verið nægilega góður, þegar kemur að útskýringum á því hvernig ætti að lýsa hinu svonefnda MCAS-kerfi sem á að sporna gegn ofrisi.

Þingmenn bæði Repúblikana og Demókrata sóttu hart að fulltrúum yfirvalda, og beindu spurningum sínum ekki síst að því hvernig samskiptin hefðu verið milli bandarískra flugmála­yfirvalda og Boeing.

Boeing er stærsta útflutnings­fyrirtæki Banda­ríkjanna, og hefur í gegnum tíðina átt í umfangs­miklu viðskipta­sambandi við bandaríska ríkið, ekki síst í gegnum viðskipti Bandaríkja­hers.

Talið er að flugslys í Indónesíu 29. október í fyrra og Eþíópíu 13. mars, megi rekja til galla í hugbúnaði skynjara, sem MCAS-kerfið byggir á, en samtals létus 346 í fyrr­nefndum slysum, allir um borð í báðum vélum.

Loka­niðurstöður rannsókna flugmála­yfirvalda í Indónesíu og Eþíópíu liggja ekki fyrir, en Boeing hefur viðurkennt að hafa vitað um galla sem tengjast búnaðinum, fyrir slysin.

Eftir seinna slysið var notkun á Max-vélunum bönnuð á heimsvísu, og vélarnar kyrr­settar.

Sú kyrr­setning hefur haft miklar afleiðingar í ferða­þjónustu í heiminum, þar meðal á Íslandi, eins og rakið var í ítarlegri frétta­skýringu á vef Kjarnans síðastliðinn föstudag.

Ekki liggur fyrir hvenær kyrr­setningunni verður aflétt, en Boeing vinnur nú að því að uppfæra búnaðinn í vélunum og endur­heimta á þeim traust, hjá flugmála­yfirvöldum um allan heim.

Fundað verður um Max-vélarnar 23. maí næst­komandi, samkvæmt umfjöllun Seattle Times, og mun Boeing þar reyna að sannfæra fulltrúa flugmála­yfirvalda víðs vegar um heiminn, að Max-vélarnar séu traustar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár