Ríkið kaupir hluta nýrra höfuðstöðva Landsbankans á 6 milljarða króna

Íslenska ríkið mun festa kaup á hluta af nýjum höfuð­stöðvum Lands­bankans fyrir 6 milljarða króna. Þar á að koma fyrir utan­ríkis­ráðuneytinu, auk þess sem hluta rýmisins á að nýta undir sýningar Lista­safns Íslands.

Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrarsviðs Landsbankans, Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra við undirritun samningsins.
Hreiðar Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála og rekstr­ar­sviðs Lands­bank­ans, Lilja Björk Ein­ars­dóttir banka­stjóri, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við und­ir­ritun samn­ings­ins. Mynd: Stjórnarráðið

Íslenska ríkið er búið að undirrita samning um kaup á svonefndu Norður­húsi við Austur­bakka, en um er að ræða tæplega 6 þúsund fermetra hluta af húsinu sem Lands­bankinn hefur verið að byggja undir nýjar höfuð­stöðvar sínar við Austur­höfn. Frá þessu er sagt í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins.

Kaup­verðið er um 6 milljarðar króna fyrir full­frágengið húsnæði, og verður það keypt fyrir sérstaka viðbótar­arðgreiðslu frá Lands­bankanum til ríkis­sjóðs, sem þegar hefur verið innt af hendi.

Utanríkisráðuneytið og Listasafn Íslands í húsið

„Fyrir­hugað er að starfsemi utan­ríkis­ráðuneytisins verði komið fyrir í byggingunni, ásamt því að nýta hluta hennar undir sýningar- og menningar­tengda starfsemi á vegum Lista­safns Íslands og er þá einkanlega horft til samtíma­listar,“ segir í tilkynningu frá forsætis­ráðuneytinu og fjármála- og efnahags­ráðuneytinu.

Í henni segir einnig að húsnæðis­kostur Stjórnar­ráðsins sé háður miklum annmörkum og að húsnæði ráðuneytanna sé sundur­leitt, á mörgum stöðum og í mörgum tilfellum úrelt.

„Fyrir liggur að utan­ríkis­ráðuneytið mun næsta haust missa stóran hluta húsnæðis síns sem það hefur haft á leigu. Með flutningi utan­ríkis­ráðuneytisins í Norðurhús Austur­bakka verður starfseminni komið fyrir á einum stað í sveigjanlegu og nútíma­legu húsnæði sem verður nýtt með hagkvæmum hætti,“ segir í tilkynningu ráðuneytanna.

Var hitamál í ríkisstjórninni

Kjarninn sagði frá því í júlí­mánuði að tillaga hefði verið lögð fram á ríkis­stjórnar­fundum um að kaupa hluta hússins á sex milljarða króna í sumar, en að andstaða hefði verið við kaupin á meðal einhverra ráðherra, þar sem kaup­verðið þætti ekki forsvaranlegt á sama tíma og ríkis­sjóður boðaði aðhalds­aðgerðir.

Heimildir Kjarnans hermdu að þetta hefði verið mikið hitamál innan ríkis­stjórnarinnar, og að aðrir ráðherrar hefðu sótt það fast að húsið yrði keypt undir starfsemi þeirra ráðuneyta, en það voru þær Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir ráðherra háskóla-, nýsköpunar og iðnaðar.

Einungis utan­ríkis­ráðuneytið mun hins vegar verða fært í húsa­kynnin við Austur­höfn, sem áður segir.

Upp­stokk­unin á hús­næði stjórn­ar­ráðs­ins á rætur sínar að rekja til þess að sitj­andi rík­is­stjórn ákvað að fjölga ráð­herrum um tvo þegar Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur end­ur­nýj­uðu stjórn­ar­sam­starf sitt í fyrra­haust. Þá þurfti að koma fleiri ráðu­neytum fyr­ir.

Sam­kvæmt svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi fyrr á þessu ári var áætlað að breytt skipan ráðu­neyta gæti kostað rík­is­sjóð allt að 1,77 millj­­örðum króna á þessu kjör­­tíma­bili. Kostn­að­­ur­inn færi aðal­­­lega í fjölgun starfa sem fylgi breyttu skipu­lagi, þar á meðal rit­­ara, bíl­­stjóra og aðstoð­­ar­­manna nýrra ráð­herra. Þar var því ekki tekið inn í dæmið mögu­legur við­bót­ar­hús­næð­is­kostn­að­ur.

Ætla einnig að kaupa gamla Landsbankahúsið

Einnig er greint frá því í tilkynningu stjórn­valda að ákveðið hafi verið að ganga til samninga um kaup á gamla Lands­bankahúsinu við Austur­stræti.

„Sú bygging er eitt af helstu kenni­leitum borgarinnar og menningar­sögulega verðmæt sem slík. Það telst því álitlegur kostur að byggingunni verði fundið verðugt hlutverk í íslensku samfélagi, t.a.m. undir starfsemi dómstóla en endur­skipuleggja þarf húsnæðismál þeirra til lengri tíma,“ segir í tilkynningu stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár