Forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafa unnið að greiningu á framtíðarskipan húsnæðismála Stjórnarráðsins.
For­sæt­is­ráðu­neytið og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafa unnið að grein­ingu á fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála Stjórn­ar­ráðs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Lagt til á ríkisstjórnarfundi að kaupa hluta af höfuðstöðvum Landsbankans á sex milljarða

Nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn eru nú að verða til­búnar. Þær voru reistar þrátt fyrir nán­ast algjöra and­stöðu hjá eig­and­anum, íslenska rík­inu. Bygg­ingin átti að kosta níu millj­arða króna en sá kostn­aður er nú komin í tólf millj­arða króna.

Tillaga um að rík­is­sjóður myndi kaupa hluta af nýjum höf­uð­stöðvum Lands­bank­ans, sem rísa nú við Aust­ur­höfn, á um sex millj­arða króna var lögð fram í rík­is­stjórn fyrr í sumar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var málið tekið upp á nokkrum rík­is­stjórn­ar­fundum en and­staða var við kaup á hús­næð­inu á meðal ein­hverra ráð­herra og því eru kaupin, sem stendur, í upp­námi. Um mikið hita­mál er að ræða innan rík­is­stjórn­ar­innar þar sem sumir ráð­herrar hafa keyrt það fast að umrætt hús­næði, eitt það dýrasta sem fyr­ir­finnst á Íslandi, verði keypt undir tvö ráðu­neyti. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru þau ráðu­neyti ann­ars vegar utan­rík­is­ráðu­neytið, sem Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins stýrir sem stendur, og nýlegt ráðu­neyti háskóla-, nýsköp­unar og iðn­aðar, sem Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir stýrir.

Frétta­blaðið greindi frá því á for­síðu á mið­viku­dag að kaup rík­is­sjóðs á um sex þús­und fer­metrum af þeim sextán þús­und og fimm hund­ruð fer­metrum sem Lands­bank­inn er að byggja við Aust­ur­höfn væru í upp­námi. Þar kom fram að málið væri á hendi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, sem Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stýrir, og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks fer fyrir. Við­mæl­endur Kjarnans segja þó að kaupin á hinu svo­kall­aða norð­ur­húsi Lands­banka­höf­uð­stöðv­anna hafi verið teiknuð upp í ráðu­neyti Bjarna.

Upp­stokk­unin á hús­næði stjórn­ar­ráðs­ins á rætur sínar að rekja til þess að sitj­andi rík­is­stjórn ákvað að fjölga ráð­herrum um tvo þegar Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur end­ur­nýj­uðu stjórn­ar­sam­starf sitt í fyrra­haust. Þá þurfti að koma fleiri ráðu­neytum fyrir.

Samkvæmt svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi fyrr á þessu ári var áætlað að breytt skipan ráðu­neyta gæti kostað rík­is­sjóð allt að 1,77 millj­örðum króna á þessu kjör­tíma­bili. Kostn­að­ur­inn færi aðal­lega í fjölgun starfa sem fylgi breyttu skipu­lagi, þar á meðal rit­ara, bíl­stjóra og aðstoð­ar­manna nýrra ráð­herra. Þar var því ekki tekið inn í dæmið mögu­legur við­bót­ar­hús­næð­is­kostn­aður.

Vilja í sveigjanlegra og nútímalegra húsnæði

Í febr­úar sendu for­sætis- og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið frá sér sam­eig­in­lega til­kynn­ingu þar sem greint var frá áformum um breytta skipan hús­næð­is­mála. Mark­miðið með þeirri breyttu skipan væri „að starf­semi Stjórn­ar­ráðs­ins verði komið fyrir í sveigj­an­legu og nútíma­legu hús­næði sem nýtt verður með hag­kvæmum hætti.“

Til lengri tíma yrði gert ráð fyrir að starf­semi Stjórn­ar­ráðs­ins verði í stærri og sveigj­an­legum ein­ingum á og við Stjórn­ar­ráðs­reit. „Um er að ræða Stjórn­ar­ráðs­húsið við Lækj­ar­götu auk við­bygg­ingar, Skúla­götu 4, Sölv­hóls­götu 4, Sölv­hóls­götu 7-9, Arn­ar­hvol við Lind­ar­götu og Norð­ur­hús á Aust­ur­bakka auk þess sem Gamla Hæsta­rétt­ar­húsið við Lind­ar­götu verður nýtt undir sam­eig­in­lega aðstöðu.“

Neðst í þeirri frétta­til­kynn­ingu, eftir að allar aðrar breyt­ingar höfðu verið taldar upp, sagði að stefnt yrði að því að „hefja form­legar samn­inga­við­ræður við Lands­bank­ann um kaup á norð­ur­hús­inu við Aust­ur­bakka sem er í bygg­ingu þar sem kannað verði til hlítar hvort hægt sé að ná fram hag­kvæmri nið­ur­stöðu um kaup rík­is­ins á eign­inni. Um er ræða nútíma­legt og sveigj­an­legt skrif­stofu­hús­næði sem hægt er að sér­sníða að þörfum Stjórn­ar­ráðs­ins innan til­tölu­lega skamms tíma og er því um álit­legan kost að ræða.“

Svona eiga nýja höfuðstöðvar Landsbankans að líta út þegar þær eru fullbyggðar.
Svona eiga nýja höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans að líta út þegar þær eru full­byggðar.

Bygging höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, hefur verið veru­lega umdeild. Bygg­ingin er að rísa á einni dýr­ustu lóð sem hægt er að byggja á í Reykja­vík og sú máls­á­stæða Lands­bank­ans að hann þyrfti að vera með höf­uð­stöðvar í mið­borg­inni hefur verið dregin veru­lega í efa. Meðal ann­ars hefur verið bent á að Íslands­banki hafi flutt sína starf­semi í turn í Kópavogi án vand­kvæða og sam­hliða lagt öll áform fyr­ir­renn­ara síns, Glitnis, um að reisa íburð­ar­miklar höf­uð­stöðvar á Kirkju­sands­reitnum í námunda við Laug­ar­dal­inn á hill­una. Þar er nú að rísa nýtt íbúð­ar­hverfi ásamt atvinnu­hús­næði undir bland­aða þjón­ustu.

Ákvörð­unin hefur verið rök­studd með því að Lands­bank­inn sé í of mörgum stöðum með starf­semi sína, sem er dreifð víða um mið­borg­ina. Með því að koma öllum á sama stað myndi verða til mikil hag­ræð­ing auk þess sem hægt yrði að selja annað hús­næði bank­ans upp í kostnað.

Úr níu í tólf milljarða króna

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um áform Lands­bank­ans í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í sept­em­ber 2019. Þar kom meðal ann­ars fram að Banka­sýsla rík­is­ins, sem fer með hlut rík­is­sjóðs í Lands­bank­anum hefði ekki haft neina aðkomu að þeirri ákvörðun að reisa nýju höf­uð­stöðv­arn­ar.

Það hefur heldur ekki þótt til­efni til að bera bygg­ingu höf­uð­stöðva undir hlut­hafa­fund, þar sem eini alvöru hlut­haf­inn, íslenska rík­ið, gæti sagt sína skoðun á áformun­um.

Ákvörð­unin um að ráð­ast í fram­kvæmd­irn­ar, sem áætlað var að myndu kosta um níu millj­arða króna, hækk­aði svo í tíu millj­arða króna en eru nú orðnir tólf millj­arðar króna, var því tekin án aðkomu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem heldur á hluta­bréfum íslenska rík­is­ins í bank­anum og stofn­un­ar­innar sem fer með þann eign­ar­hlut.

Hún var tekin af banka­ráði á fundi sem hald­inn var 16. maí 2017. Lands­bank­inn, sem er í 98,2 pró­sent eign skatt­greið­enda, hefur ekki viljað upp­lýsa um hvernig atkvæði féllu hjá sjö manna banka­ráð­inu þegar kosið var um bygg­ing­una.

Stjórnmálamenn á móti því að höfuðstöðvarnar yrðu byggðar

Þegar ákveðið var að ráð­ast í bygg­ing­una fannst vart stjórn­mála­maður í rík­is­stjórn eða á Alþingis sem studdi hana. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var þar á meðal. Hann gagn­rýndi meðal ann­ars for­­gangs­röðun rík­­is­­bank­ans sem ætti fyrst og síð­­­ast að ein­beita sér að því að bæta kjör við­­skipta­vina sinna. Það væri und­ar­legt ef banki í almanna­eigu færi gegn því sem virt­ist vera aug­ljós vilji eig­enda, almenn­ings og full­trúa hans.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þá vara­for­maður fjár­laga­nefndar Alþing­is en nú ráð­herra í rík­is­stjórn, sagði til að mynda við RÚV að það væri öllum ljóst að þarna væri verið að fara illa með eignir rík­is­ins og engin gæti gert neitt í því. „Ég mun að minnsta kosti vekja athygli á þessu og taka þetta upp á þingi þegar það kemur saman í haust.“

Jón Gunn­ars­son, þá for­maður atvinnu­vega­nefnd­ar en nú dóms­mála­ráð­herra, lýsti sig einnig veru­lega andsnú­inn bygg­ing­unni.

Guðlaugur Þór Þórðarson er ráðherra orku, loftslagsmála og umhverfismála. Hann var afar mótfallinn því að ráðist yrði í byggingu nýrra höfuðstöðva Landsbankans á þeim stað sem þeir eru að rísa.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er ráð­herra orku, lofts­lags­mála og umhverf­is­mála. Hann var afar mót­fall­inn því að ráð­ist yrði í bygg­ingu nýrra höf­uð­stöðva Lands­bank­ans á þeim stað sem þeir eru að rísa.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, lagði til, í grein sem hann skrif­aði, að höf­uð­stöðv­arnar yrðu byggð­ar, en að í kjöl­farið ætti að dreifa „um húsið þrjú hund­ruð þús­und sleggjum og hvetjið lands­menn alla til þess að koma og brjóta það niður í stein­mola fyrir stein­mola til að tjá reiði sína og fyr­ir­litn­ingu á hrok­anum og óhóf­inu sem ein­kenndi bank­ana fyrir hrun og skutu síðan upp koll­inum rétt sem snöggvast í Lands­bank­anum árið 2015.“

Kári sagði enn fremur að það ætti að taka gjörn­ing­inn upp og senda sem fram­lag Íslands til næsta Fen­eyjat­ví­ær­ings undir heit­inu: „Meira en nóg til af þess­ari hel­vítis vit­leysu.“

Ekki vitað um aðra mögulega kaupendur

Þrátt fyrir allt er bygg­ingin þó að rísa og Lands­bank­inn stefnir á að flytja sína starf­semi í hana fyrir árs­lok. Áhrifa­mikil, og fok­dýr, stuðla­bergs­klæðn­ing er komin á stóran hluta bygg­ing­ar­innar og ásýnd hennar farin að taka á sig end­an­lega mynd.

Við­mæl­endur Kjarnans innan stjórn­ar­ráðs­ins eru þó sam­mála um að fyrir liggi að Lands­bank­inn hafi offjár­fest í hús­næð­inu. Það væri á end­anum allt of dýrt og fram­boð á öðru atvinnu­hús­næði í mið­borg­inni væri þegar mikið. Þá ætti vit­an­lega eftir að bæt­ast við allt það hús­næði sem Lands­bank­inn mun flytja úr, en bank­inn er nú í tólf húsum í Kvosinni og alls 18 þús­und fer­metrum.

Sjálfur ætlar bank­inn að nota tíu þús­und fer­metra í nýju bygg­ing­unni en leigja eða selja hitt. Röð áhuga­samra kaup­enda eða leigj­enda, á verði sem end­ur­speglar þann mikla bygg­ing­ar­kostnað sem höf­uð­stöðv­arnar hafa fram­kallað, hefur ekki verið löng.

Þess vegna var farið að kanna að láta rík­is­sjóð, eig­anda Lands­bank­ans, kaupa allt að 6.500 fer­metra undir starf­semi stjórn­ar­ráðs­ins. Miðað við verðið sem kynnt var á rík­is­stjórn­ar­fundi, sex millj­arðar króna, stóð til að greiða um 923 þús­und krónur á hvern fer­metra. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er það eina kauptil­boðið sem lagt hefur verið fram í hús­næðið.

Milljarða aðhaldsaðgerðir á næstu árum

Þetta er að ger­ast á sama tíma og fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar gerir ráð fyrir umtals­verðu aðhaldi í rík­is­rekstri á næstu árum. þegar áætlun áranna 2024-2029 var birt í mars síð­ast­liðnum kom fram í henni að búist sé við að svo­kall­aðar afkomu­bæt­andi ráð­staf­an­ir – nið­ur­skurður eða hærri skattar – hefj­ist á þarnæsta ári og að umfang þeirra verði um níu millj­arðar króna á ári.

Sú tala er þó ekki meit­luð í stein. Ef efna­hags­spár verða undir vænt­ingum, til dæmis vegna minni alþjóða­hag­vaxt­ar, meiri hækk­ana hrá­vöru­verðs og færri ferða­manna, gætu afkomu­bæt­andi ráð­staf­an­irnar hækkað. Sam­kvæmt fjár­mála­á­ætl­un­inni gætu aðhalds­að­gerð­irnar tæp­lega fimm­fald­ast ef það ger­ist og numið um 42 millj­örðum króna á hverju ári.

Óhjá­kvæmi­legt er að opin­ber þjón­usta skerð­ist að ein­hverju leyti vegna þess­ara aðhalds­að­gerða, þótt það sé einnig hægt að ná þeim fram með nýjum skatt­tekjum eða hag­ræð­ingu í öðrum opin­berum rekstri.

Ofan á þetta er mikil verð­bólga, krefj­andi kjara­samn­inga­lota framundan, kaup­máttur er á und­an­haldi og vísir að bólu er til staðar á hús­næð­is­mark­aði, sem mögu­lega kallar á leið­rétt­ingu á eign­ar­verði. Því eru mörg teikn á lofti í efna­hags­málum þjóð­ar­innar og skila­boðin sem stjórn­völd hafa verið að senda út í sam­fé­lagið hafa verið ein­föld: sýnið aðhald. Millj­arða­kaup á hús­næði á dýrasta stað í höf­uð­borg­inni undir tvö ráðu­neyti ríma ekki við þau skila­boð, að mati við­mæl­enda Kjarnans.

Vildu ekki segja hvaða ráðherrar hafi verið á móti

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á for­sæt­is­ráðu­neytið vegna máls­ins. Þar var meðal ann­ars spurt um hið ætl­aða kaup­verð og kallað eftir upp­lýs­ingum um hvaða ráð­herrar hefðu sett sig á móti kaup­unum á rík­is­stjórn­ar­fundi í síð­asta mán­uði.

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins var vísað í sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þess og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem send var út á mið­viku­dag, í kjöl­far for­síðu­fréttar Frétta­blaðs­ins um að kaupin væru í upp­námi. Í til­kynn­ing­unni sagði að á meðal kosta sem horft hefði verið til við end­ur­skipu­lagn­ingu hús­næð­is­mála stjórn­ar­ráðs­ins væru „mögu­leg kaup rík­is­ins á hluta af nýbygg­ingu Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn, sem gæti hentað vel fyrir starf­semi Stjórn­ar­ráðs­ins. Viðræður hafa farið fram við Lands­bank­ann um þann kost og standa vonir til þess að fá end­an­lega nið­ur­stöðu um hvort af þeim kaupum verði á allra næstu vikum.“

Kjarninn ítrek­aði fyr­ir­spurn sína þar sem til­kynn­ingin svar­aði ekki þeim spurn­ingum sem lagðar voru fram í henni. Í seinna svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sagði að „þær upp­lýs­ingar sem umrædd ráðu­neyti geta veitt á þessu stigi máls að finna í svar­inu sem sent var í morgun [mið­viku­dag].“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár