Bankahöllin sem eigandinn vill ekki en er samt að rísa

Þegar íslensku bank­arnir voru end­ur­reistir úr ösku þeirra sem féllu í hrun­inu var lögð höf­uð­á­hersla á að stjórn­mála­menn gætu ekki haft putt­anna í þeim.

Þann 10. maí 2017 fóru for­maður og vara­for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, Helga Björk Eiríks­dóttir og Magnús Pét­urs­son, á fund Bene­dikts Jóhann­es­sonar, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Til­gangur fund­ar­ins var að kynna fyrir honum ákvörðun um að ráð­ast í bygg­ingu nýrra 16.500 fer­metra höf­uð­stöðva bank­ans við Aust­ur­höfn í Reykja­vík, á einni af dýr­ustu lóðum lands­ins. Ráð­herr­ann hlust­aði á kynn­ingu þeirra og gerði svo fund­ar­mönnum grein fyrir því að hann kæmi ekki að rekstr­ar­legum ákvörð­unum. Það væri því banka­ráðs­ins að ákveða hvort að ráð­ist yrði í fram­kvæmd­ina eða ekki.

Þannig var ákveðið að setja upp skipu­lagið á eign­ar­haldi rík­is­ins á bönkum eftir hrunið. Til­gang­ur­inn var að tryggja að stjórn­mála­menn væru ekki að skipta sér með beinum hætti að rekstri bank­anna og athöfnum, meðal ann­ars til að auka traust á fyr­ir­komu­lag­inu. Sú veg­ferð hefur ekki skilað meiru en svo að enn van­treysta fjórir af hverjum fimm lands­mönnum banka­kerf­inu.

Fyrir vikið er upp­setn­ingin þannig að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið heldur á eign­ar­hlutum skatt­greið­enda í Lands­banka og Íslands­banka en felur Banka­sýslu rík­is­ins að fara með þá.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans til for­stjóra Banka­sýslu rík­is­ins um hvort stofn­unin hafi haft ein­hverja aðkomu að þeirri ákvörðun að reisa nýju höf­uð­stöðv­arnar var svar for­stjór­ans, Jóns Gunnars Jóns­sonar, ein­falt: „nei“.

Það hefur ekki þótt til­efni til að bera bygg­ingu höf­uð­stöðva undir hlut­hafa­fund, þar sem eini alvöru hlut­haf­inn, íslenska ríkið, gæti sagt sína skoðun á áformunum.

Ákvörð­unin um að ráð­ast í fram­kvæmd­irnar, sem áætlað er að kosti um níu millj­arða króna, var því tekin án aðkomu ráðu­neyt­is­ins sem heldur á hluta­bréfum íslenska rík­is­ins í bank­anum og stofn­un­ar­innar sem fer með þann eign­ar­hlut. Hún var tekin af banka­ráði á fundi sem hald­inn var 16. maí 2017. Lands­bank­inn, sem er í 98,2 pró­sent eign skatt­greið­enda, vill ekki upp­lýsa um hvernig atkvæði féllu hjá sjö manna banka­ráð­inu þegar kosið var um bygg­ing­una.

Því liggur fyrir að sjö manna banka­ráð, sem situr í umboði banka­sýslu rík­is­ins, stofn­unar sem heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, tók eitt ákvörðun um bygg­ingu „Kletts­ins“ sem nú rís við hlið Hörpu.

Allir eru að gera það

Af hverju er verið að byggja þessar umfangs­miklu höf­uð­stöðvar? Til þess að svara þeirri spurn­ingu þarf að fara ansi langt aftur. Nánar til­tekið til árs­ins 2007, á hápunkt banka­góð­ær­is­ins, sem stóð yfir frá því að banka­kerfið var einka­vætt skömmu eftir ald­ar­mót og þar til það hrundi haustið 2008, í um fimm ár. Kaupþing hafði nýverið byggt sér nýjar höf­uð­stöðvar í Borg­ar­túni. Glitnir ætl­aði að byggja nýjar slíkar við Kirkju­sand. Og Lands­bank­inn ætl­aði að byggja stærst allra bank­anna, alls 33 þús­und fer­metra hof á reit við Aust­ur­höfn sem bank­inn hafði keypt.

Ráðist var í hönn­un­ar­sam­keppni og upp­haf­lega átti að kynna nið­ur­stöður þess vorið 2008. Þeim áformum var þó frestað fram á haustið, nánar til­tekið um miðjan októ­ber 2008. Búið var að velja fram­úr­stefnu­lega verð­launa­til­lögu arki­tekta­stof­unnar Bjarke Ingels Group, Arkiteó, Ein­rúm arki­tekt­a, Andra Snæs Magna­sonar og VSÓ. En hún var aldrei kynnt. Bankinn fór á haus­inn áður en það tókst.

Úr rústum þess gamla var búinn til nýr Lands­banki, með nýja kenni­tölu og í eigu íslenska rík­is­ins. Reit­irnir sem áttu að hýsa gömlu höf­uð­stöðv­arnar, sem til­heyra sömu lóð og tón­listar- og ráð­stefnu­húsið Harpa, færð­ust yfir til rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar, sem tóku yfir eign­ar­hald og bygg­ingu Hörpu eftir hrunið.

Sumarið 2009 lét Bíla­stæða­sjóður mal­bika yfir mal­ar­völl­inn þar sem hinar íburð­ar­miklu höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans áttu að rísa. Það þótti tákn­rænt. Í stað skýja­borga var komið mal­bik.

Byggt til að skapa störf og vegna hagræðis

Það leið þó ekki á löngu þar til end­ur­nýjuð áform um bygg­ingu höf­uð­stöðva fyrir Lands­bank­ann, nú í eigu rík­is­ins, komu fram. Í jan­úar 2012 birt­ist for­síðu­frétt á Frétta­blað­inu um að í umsögn Lands­bank­ans um atvinnu­stefnu Reykja­vík­ur­borgar sem lögð hafði verið fram í borg­ar­ráði, kæmi fram vilji hans til að reisa nýjar höf­uð­stöðvar í mið­borg­inni fyrir árið 2015. Sá rök­stuðn­ingur var gef­inn að starf­semi bank­ans væri í 14 bygg­ingum og það væri afar óhent­ugt.

Á þessum tíma var efna­hags­upp­risa Íslands ekki hafin af neinni alvöru og því tölu­verð eft­ir­spurn eftir smurn­ingu á hjól efna­hags­lífs­ins. Í umsögn Lands­bank­ans sagði að hann myndi, með bygg­ingu höf­uð­stöðva, standa fyrir „mjög mann­afls­frekum aðgerðum og sam­tímis skapa ákjós­an­legar aðstæður í mið­borg­inni til að byggja upp aðstöðu fyrir marg­vís­lega aðra starf­semi.“

Ljóst var á þessum tíma­punkti að Lands­bank­inn var enn að horfa til þess að byggja á ein­hverjum reit­ana sem voru í námunda við Hörpu þótt hann ætti þá ekki lengur.

Í febr­úar 2013 kynnti Steinþór Pálsson, þáver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, svo fyrir starfs­mönnum hans áætlun um nýjar höf­uð­stöðvar. Horft væri á sömu lóð og ráð­gert var að byggja á fyrir hrun, gert var ráð fyrir því að höf­uð­stöðv­arnar yrðu 24 þús­und fer­metrar að stærð og að fram­kvæmdir myndu hefj­ast 2014. Í sam­tali við Við­skipta­blaðið sagði Steinþór að það þyrfti að byggja nýjar höf­uð­stöðvar meðal ann­ars vegna þess að því fylgdi rekstr­ar­á­hætta að vera í leigu­hús­næði. „Eig­end­urnir eru sumir sífellt að skoða hvort þeir eigi frekar að reka hótel. Þessu fylgir rekstr­ar­á­hætta fyrir okkur.“

Forsætisráðherra segir nei

Í ágúst 2013 var lagt fram bréf frá banka­stjóra Lands­bank­ans í borg­ar­ráði Reykja­víkur, þar sem hann óskaði eftir því að fá lóð við hlið Hörpu keypta. Um var að ræða einu lóð­ina á þessu stóra skipu­lags­svæði sem átti eftir að selja á þessum tíma út úr félagi í eigu ríkis og borgar sem eign­að­ist bygg­ing­ar­reit­ina eftir hrun.

Stærðin hafði aðeins dreg­ist saman frá fyrri áformum og var nú áætluð um 15 þús­und fer­metrar.

Í þetta skiptið varð póli­tísk mót­spyrna. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá nýr for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar, tjáði sig við vef­mið­il­inn Eyjuna og sagði að honum virt­ist „úti­lokað að rík­is­bank­inn muni byggja nýjar höf­uð­stöðvar á næst­unni. Það eru mörg mál sem þarf að leysa fyrst.“ Frosti Sig­ur­jóns­son, þá for­maður efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, tók undir með þáver­andi flokks­bróður sínum í pistli sem birt­ist skömmu síð­ar.

Yfir­lýs­ing Sig­mundar Davíðs hafði í för með sér mikil við­brögð og banka­stjóri Lands­bank­ans gaf á end­anum út að málið væri „stormur í vatns­glasi“. Nokkrum vikum síðar var ákveðið að aug­lýsa lóð­ina sem Lands­bank­inn hafði auga­stað á til sölu.

„Risastór glerhöll á dýrasta stað“

Ekki leið ár þar til að vilj­inn til að byggja nýjar höf­uð­stöðvar fór aftur að láta á sér kræla. Í mars 2014, á aðal­fundi Lands­bank­ans sem haldin var í Hörpu, sagði Tryggvi Pálsson, þá stjórn­ar­for­maður bank­ans, að hann þyrfti minna og hent­ugra hús­næði. „End­an­legar ákvarð­anir hafa ekki verið teknar í þessu máli en banka­ráðið er ein­róma þeirrar skoð­unar að núver­andi hús­næð­is­vanda þurfi að leysa.“

Nú var áhug­inn á reit 6 á svæð­inu, þ.e. þeim sem er næstur Hörpu og fyrir framan lúx­us­hót­elið sem nú er langt komið í bygg­ingu. Í apríl 2014 ákvað eig­andi lóð­ar­innar, félagið Sítrus í eigu ríkis og borgar, að ganga til samn­inga við Lands­bank­ans um að selja honum þann reit.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði af sér sem forsætisráðherra 2016. Hann hafði verið mjög gagnrýnin á áform Landsbankans. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra 2016. Hann hafði verið mjög gagn­rýnin á áform Lands­bank­ans. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Í maí 2014 sagði Sig­mundur Davíð á Alþingi, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum þar sem nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans voru til umræðu: „Ég skal al­­veg við­ur­­­kenna að mér þykir óneit­an­­lega mjög sér­­­kenn­i­­legt ef menn eru farn­ir að velta því fyr­ir sér ein­ung­is fimm árum eft­ir að bank­inn komst í þrot og skrapp í fram­haldi af því mikið sam­an að fara að byggja nýj­ar höf­uð­stöðv­ar, ég tala nú ekki um ef það yrði risa­­stór gler­­höll á dýr­asta stað borg­­ar­inn­ar og þar með lands­ins".

Smá hik en svo áfram á fullri ferð

Næstu mán­uðir voru Lands­bank­anum erf­iðir. Bankaráð og stjórn­endur höfðu um annað að hugsa en hús­næð­is­mál. Í nóv­em­ber 2014 opin­ber­aði Kjarninn, fyrstur miðla, hvernig Lands­bank­inn hafði selt 31,2 pró­sent hlut í Borgun bak við luktar dyr til val­ins hóps kaup­enda. Með þessum við­skiptum varð Lands­bank­inn af millj­örðum króna. Hann höfð­aði síðar mál vegna söl­unnar og taldi sig blekktan. Það mál er enn í gangi. Borg­un­ar­málið kost­aði svo á end­anum Steinþór Pálsson banka­stjóra­starfið í lok árs 2016.

Draum­ur­inn um nýjar höf­uð­stöðvar var þó ekki alveg dauður þótt lítið væri rætt um hann opin­ber­lega á þessum tíma. Þvert á móti.

Í skýrslu stjórnar Lands­bank­ans fyrir aðal­fund 18. mars 2015 voru ítrekuð áform um að reisa nýjar höf­uð­stöðvar bank­ans við Aust­ur­höfn. Í skýrsl­unni sagði:„Gert er nú ráð fyrir að rýma um 28 þús­und fer­metra og koma starf­sem­inni sem á þeim var fyrir á um 15 þús­und fer­metrum í nýju sér­hönn­uðu hús­næði. Reikna má með um 600 millj­óna króna sparn­aði á ári.“

Í júlí sama ár sendi bank­inn frá sér til­kynn­ingu þar sem greint var frá því að ákvörðun hefði verið tekin: nýju höf­uð­stöðv­arnar yrðu byggðar.

Ráðist yrði í hönn­un­ar­sam­keppni og höf­uð­stöðv­arnar myndu rísa við hlið Hörpu við Aust­ur­höfn. Áætlaður kostn­aður var átta millj­arðar króna og áætlað var að fjár­fest­ingin myndi borga sig upp á tíu árum.

„Taktlaust“, „hálfgalið“, „veruleikafirring“

Nú var þetta ekki lengur hug­mynd, heldur fram­sett áætlun. Öllum áformum um að skoða flutn­ing í þegar risin hús, sem gætu rúmað alla starf­sem­ina og náð fram þeirri rekstr­ar­hag­ræð­ingu sem stefnt var að, var ýtt til hliðar. Lands­bank­inn væri mið­borg­ar­fyr­ir­tæki og þar yrði hann að reisa sér nýtt heim­ili.

Gagn­rýnin á áformin fór að breiða úr sér á meðal stjórn­mála­manna.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þá vara­for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, sagði til að mynda við RÚV að það væri öllum ljóst að þarna væri verið að fara illa með eignir rík­is­ins og engin gæti gert neitt í því. „Ég mun að minnsta kosti vekja athygli á þessu og taka þetta upp á þingi þegar það kemur saman í haust.“

Elín Hirst, sem sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn á þessum tíma, gagn­rýndi for­gangs­röðun bank­ans og sagði að hann ætti ætti frekar að bjóða betri kjör heldur en að byggja á dýrasta stað í mið­borg­inni. „Ég tel að það sé allt of mikið í lagt og ég tel að þetta sé allt of dýr lóð fyrir bank­ann.“

Áform Lands­bank­ans átti sér líka fylg­is­menn. Hjálmar Sveins­son, þáver­andi for­maður umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur og borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar, varði ákvörð­un­ina og sagði að ef Lands­bank­inn myndi ekki byggja á reitnum þá myndi lík­lega rísa þar ný hót­el­bygg­ing. „Nú er Lands­bank­inn, svona eftir fjár­glæfra­lega snún­inga, kom­inn í raun­inni í eigu almenn­ings í land­inu. Þannig að mér finnst það alveg, út af fyrir sig, koma til greina að bank­inn sé með höf­uð­stöðvar sínar hér í mið­borg­inni,“ sagði Hjálmar við Stöð 2. Reykja­vík­ur­borg á hins vegar ekk­ert í Lands­bank­anum og því er afstaða þeirra sem starfa innan hennar sett fram út frá öðrum for­sendum en þeirra sem starfa innan þings eða rík­is­stjórnar.

Banka­stjóri Lands­bank­ans reyndi að malda í móinn og segja að fram­kvæmd­irnar væru ekki bruðl heldur þvert á móti hag­kvæmar, en und­ir­tekt­irnar voru væg­ast sagt dræmar, ekki bara hjá stjórn­mála­mönnum heldur líka hjá almenn­ingi. Í óform­legri könnun frétta­stofu Stöðvar 2 á meðal almenn­ings voru nær allir við­mæl­endur á einu máli, þeim þótti hug­mynd­irnar „takt­lausar“, „hálf­galnar“, „full­komin veru­leikafirr­ing“ eða „fárán­legt“. Einn við­mæl­and­inn sagði: „Þessi banki er nýbú­inn að fara á rass­gatið og tapa fleiri hund­ruð millj­örðum og að ætla að fara að byggja hús fyrir átta millj­arða. Ég bara skil þetta ekki.“

Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins sagði að hann sjálfur hefði viljað að aðrir mögu­leikar hvað stað­ar­val nýrra höf­uð­stöðva varðar, hefðu verið skoð­aðir. T.d. að flytja þær í Toll­húsið við Tryggva­götu.

Fjöl­margir aðrir settu fram harða gagn­rýni. Þar á meðal Vigdís Hauks­dóttir, þáver­andi for­maður fjár­laga­nefndar, bæj­ar­stjórar Vest­manna­eyja og Kópavogs og þáver­andi for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar.

Undarlegt ef ríkisbanki færi gegn vilja eiganda

Sig­mundur Davíð, þá enn for­sæt­is­ráð­herra, hélt áfram að gagn­rýna áformin opin­ber­lega. Hann gagn­rýndi í fyrsta lagi að gert væri ráð fyrir allt of miklu bygg­inga­magni milli Hörpu og gamla bæj­ar­ins, og þá gagn­rýndi hann for­gangs­röðun rík­is­bank­ans sem ætti fyrst og síð­ast að ein­beita sér að því að bæta kjör við­skipta­vina sinna. Það væri und­ar­legt ef banki í almanna­eigu færi gegn því sem virt­ist vera aug­ljós vilji eig­enda, almenn­ings og full­trúa hans.

Jón Gunn­ars­son, þá for­maður atvinnu­vega­nefndar, lýsti sig einnig veru­lega andsnú­inn bygg­ing­unni. Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, lagði til, í grein sem hann skrif­aði, að höf­uð­stöðv­arnar yrðu byggðar, en að í kjöl­farið ætti að dreifa „um húsið þrjú­hund­ruð þús­und sleggjum og hvetjið lands­menn alla til þess að koma og brjóta það niður í stein­mola fyrir stein­mola til að tjá reiði sína og fyr­ir­litn­ingu á hrok­anum og óhóf­inu sem ein­kenndi bank­ana fyrir hrun og skutu síðan upp koll­inum rétt sem snöggvast í Lands­bank­anum árið 2015.“ Kári sagði enn fremur að það ætti að taka gjörn­ing­inn upp og senda sem fram­lag Íslands til næsta Fen­eyjat­ví­ær­ings undir heit­inu: „Meira en nóg til af þess­ari hel­vítis vit­leysu.“

Lilja Björk Einarsdóttir tók við sem bankastjóri Landsbankans snemma árs 2017.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir tók við sem banka­stjóri Lands­bank­ans snemma árs 2017.

For­sæt­is­ráð­herr­ann Sig­mundur Davíð, sem er þekktur fyrir gríð­ar­legan áhuga sinn á skipu­lags­málum, var ekki hættur og sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í júlí 2015 að það væri hægt að hag­ræða með því að færa starf­semi Land­bank­ans undir eitt þak með öðrum hætti en „að byggja glæsi­hýsi á dýrasta stað bæj­ar­ins á jafn ögrandi hátt og virð­ist stefna í þarna.“

Þáver­andi sam­flokks­maður Sig­mundar Davíðs, og núver­andi ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason, sagði á blogg­síðu sinni tveimur dögum síðar að hægt væri að halda opnum ein­hverjum þeirra úti­búa sem bank­inn hefði lokað í 100 til 150 ár, í stað þess að byggja nýju höf­uð­stöðv­arnar. „Var verið að skerða þjón­ustu vítt og breitt um landið til að safna fyrir útborgun í nýjar höf­uð­stöðvar á dýr­ustu lóð lands­ins?”

Áformin endurskoðuð

Ljóst var að hin mikla póli­tíska and­staða, sem birt­ist sér­stak­lega hjá stjórn­ar­þing­mönnum þessa tíma en einnig á meðal val­inna borg­ar­full­trúa í minni­hluta í Reykja­vík, var að reyn­ast stjórn­endum Lands­bank­ans erfið. Bankinn var enda í eigu rík­is­ins og erfitt fyrir stjórn­endur og banka­ráð að ganga gegn aug­ljósum vilja meðal ann­ars for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar. Það fór að spyrj­ast út að til stæði að end­ur­skoða mögu­lega áformin.

Þann 7 . ágúst 2015 var greint frá því að banka­ráðið hefði ákveðið að fresta hönn­un­ar­sam­keppni um fyr­ir­hug­aða nýbygg­ingu bank­ans við Aust­ur­höfn, sem átti að hefj­ast síðar í þeim mán­uði. Það yrði gert til að fara yfir þau sjón­ar­mið sem fram hefðu komið vik­urnar á undan.

Á þessum tíma steig meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, sem sam­an­stóð af Sam­fylk­ingu, Vinstri grænum, Pírötum og Sam­fylk­ingu, hins vegar fram og studdi form­lega fram­kvæmd­irnar. Björn Blöndal, þá for­maður borg­ar­ráðs, sagði við Vísi að borgin vildi að fram­kvæmdir myndu hefj­ast sem fyrst. „Við viljum auð­vitað ekki að þetta sé bara í ein­hverri bið­stöðu um ókomna tíð. Miðað við það sem hefur verið kynnt fyrir okkur þá verður þarna fjöl­breytt þjón­usta. Versl­anir, vissu­lega banka­starf­semi og önnur þjón­usta. Það gefur líka mögu­leika á breyta nýt­ingu á því rými sem Lands­bank­inn er í fyrir í húsum í mið­borg­inni, þá sér­stak­lega kannski gamla lands­banka­húsið. Þannig að það er okkur ekk­ert á móti skapi, nema síður sé, að þessi starf­semi sé þarna.“

Í byrjun sept­em­ber voru full­trúar Banka­sýslu rík­is­ins kall­aðir á fund fjár­laga­nefndar Alþingis til að ræða höf­uð­stöðv­arnar fyr­ir­hug­uðu.

Aftur af stað

Í lok árs 2016 hafði banka­stjóri Lands­bank­ans misst starfið vegna Borg­un­ar­máls­ins og fimm af sjö banka­ráðs­mönnum, þar á meðal for­maður þess Tryggvi Pálsson, gáfu ekki kost á sér til áfram­hald­andi setu á aðal­fundi fyrr á því ári. Nýtt fólk var komið í brúnna hjá Lands­bank­anum. Formaður banka­ráðs varð Helga Björk Eiríks­dóttir og Lilja Björk Ein­ars­dóttir var ráðin banka­stjóri í jan­úar 2017.

Í maí 2017, rúmu ári eftir að skipt var um nær allt banka­ráðið og ein­ungis um tveimur mán­uðum eftir að nýr banka­stjóri tók við starf­inu, sendi Lands­bank­inn út frétta­til­kynn­ingu. Höf­uð­stöðv­arnar myndu rísa og þær myndu rísa við hlið Hörpu.

Nið­ur­staða grein­ingar KPMG fyrir bank­ann væri að Aust­ur­höfn væri ákjós­an­leg­asti kost­ur­inn fyrir höf­uð­stöðv­arnar. Lands­bank­inn ætl­aði sjálfur að nýta tíu þús­und fer­metra í hús­inu en selja frá sér eða leigja 6.500 fer­metra. „Nú hefst und­ir­bún­ings­vinnan fyrir alvöru,“ sagði nýi banka­stjór­inn við þetta til­efni.

Fordæmalaust stjórnmálaástand

Í þetta skiptið bar minna á miklum mót­bárum úr stjórn­mál­unum. Þar hafði fólk enda um margt annað að hugsa. Opin­berun Panama­skjal­ana hafði leitt af sér haust­kosn­ingar 2016 sem skil­uðu land­inu í stjórn­mála­lega kreppu, þar sem afar illa gekk að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn. Slík var loks­ins mynduð snemma árs 2017 með minnsta mögu­lega meiri­hluta og undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar. Hún sat ein­ungis í 247 daga þar til að hún sprakk vegna upp­reist æru-máls­ins um miðjan sept­em­ber 2017. Það mál, ásamt afar umdeildri skipun dóm­ara í Lands­rétt í sum­ar­byrjun, hafði átt sviðið. Eftir að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið féll saman var ráð­ist í aðrar kosn­ing­arnar á tveimur árum, og skamm­vinna kosn­inga­bar­áttu í aðdrag­anda þeirra.

Birting á skjölum um uppreist æru, og pukur ráðamanna með upplýsingar um hverjir voru í þeim, sprengdi ríkisstjórn í september 2017.
Birting á skjölum um upp­reist æru, og pukur ráða­manna með upp­lýs­ingar um hverjir voru í þeim, sprengdi rík­is­stjórn í sept­em­ber 2017.

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók síðan við í lok nóv­em­ber, lagði fram fjár­lög, lauk þing­störfum fyrir jól og svo fóru þing­menn í langt jóla­frí.

Það var í þessu póli­tíska ástandi sem end­ur­nýjuð áform Lands­bank­ans um bygg­ingu nýrra höf­uð­stöðva voru sett á fullt skrið.

Í sept­em­ber 2017, á meðan að sam­fé­lagið lék á reiði­skjálfi vegna upp­reist æru-máls­ins, aug­lýsti Lands­bank­inn eftir arki­tektum til að hanna nýbygg­ing­una. Sjö teymi voru svo valin til að skila frum­gögnum um viku fyrir þing­kosn­ing­arnar í lok októ­ber.

Þann 19. jan­úar 2018, tveimur dögum áður en Alþingi kom aftur til starfa eftir jóla­frí, rann út frestur sjö arki­tektateyma til að skila inn frum­til­lögum að hönnun nýbygg­ingar fyrir Lands­bank­ann við Aust­ur­höfn.

23. febr­úar 2018 var greint frá því að Lands­bank­inn hefði ákveðið að ganga til samn­inga við Arkþing ehf. og C.F. Møller um hönn­un og þróun á ný­bygg­ingu bank­ans við Aust­ur­höfn í Reykja­vík. Með frétta­til­kynn­ing­unni var send út tölvu­teiknuð mynd af vænt­an­legri bygg­ingu, sem kall­ast „Klett­ur­inn“. Banka­stjóri og banka­ráð stóðu að ákvörð­un­inni ásamt þriggja manna ráð­gjafa­ráði. Fram­kvæmdir áttu að hefj­ast í byrjun árs 2019.

„Það hlýtur að hafa komið inn í þá umræðu“

Þann 1. mars 2018 spurði Sig­mundur Davíð, þá orð­inn for­maður hins nýja Mið­flokks og í stjórn­ar­and­stöðu, nýjan for­sæt­is­ráð­herra, Katrínu Jak­obs­dóttur, á Alþingi um „áform þess banka, rík­is­bank­ans, um að byggja gríð­ar­stórar höf­uð­stöðvar á lík­lega dýr­ustu lóð lands­ins hérna skammt frá í mið­bænum, lóð sem er miklu stærri en lóðin sem bank­inn hugð­ist byggja á þegar Lands­bank­inn átti að vera ein­hvers konar alþjóð­legur stór­banki og ætl­aði að byggja sér höf­uð­stöðvar í Reykja­vík[...]á tímum þegar eru að verða algerar grund­vall­ar­breyt­ingar í banka­þjón­ustu, þegar ljóst er að umfang banka­þjón­ustu eða yfir­bygg­ing mun minnka. Auk þess er ljóst að fyrir dyrum er veru­leg end­ur­skipu­lagn­ing bank­ans. Það stendur til að selja stóran hlut í bank­anum og end­ur­skipu­leggja starf­semi hans. Hvað finnst hæst­virtum for­sæt­is­ráð­herra um að á þeim tíma­punkti ætli rík­is­bank­inn, Lands­bank­inn, að byggja nýjar höf­uð­stöðvar á dýr­ustu lóð lands­ins?“

Framkvæmdir eru hafnar við byggingu nýrra höfuðstöðva Landsbankans við Austurhöfn.
Fram­kvæmdir eru hafnar við bygg­ingu nýrra höf­uð­stöðva Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn.

Katrín svar­aði spurn­ing­unni ekki beint, heldur sagði að hún vænti þess að áformin yrðu „yfir­farin í stjórn bank­ans þar sem Banka­sýsla rík­is­ins skipar full­trúa rík­is­ins.“

Hún sagð­ist þó vera sam­mála Sigmundi Davíð um að fyrir dyrum væru eðl­is­breyt­ingar á fjár­mála­starf­semi. „Ég vænti þess að inn­lendir bankar taki mið af því þegar þeir gera áætl­anir sínar, hvort sem það er um hús­bygg­ingar eða aðra starf­semi, að við eigum eftir að sjá miklar tækni­breyt­ingar hafa áhrif á starf­semi inn­lendra banka sem vænt­an­lega munu hafa áhrif á áform eins og hátt­virtur þing­maður nefnir hér. Nú þekki ég ekki nákvæm­lega hver umræðan hefur verið í stjórn bank­ans um þessi mál, en það hlýtur að hafa komið inn í þá umræðu.“

„Þetta eru peningar almennings“

Í jan­úar 2019 var svo greint frá því að fram­kvæmdir við nýju höf­uð­stöðv­arnar væru hafnar. Á þessum tíma stóðu yfir harðar kjara­deilur, þar sem ný og rótt­tæk for­ysta í verka­lýðs­hreyfin­unni fór mik­inn. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, tjáði sig á Facebook um málið í lok jan­úar 2019. Þar sagði hann m.a.: „Á meðan um 800 til 1.000 börn búa við óvið­un­andi aðstæður í iðn­að­ar­hús­næðum mætti byggja um 1.500 hag­kvæmar íbúðir fyrir „áætl­aðan" bygg­ing­ar­kostnað við nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans.

Nokkrum dögum síðar sagði hann í sam­tali við Frétta­blaðið um sama mál: „„Við græðum ekk­ert á flott­ræf­ils­hætti í dag. Það eru allir búnir að sjá í gegn um þessa starf­semi. Fjár­mála­kerfið þarf að sýna aðhald, auð­mýkt og vilja til að vinna í sam­fé­lags­legri sátt við umhverfið.“

Í febr­úar 2019 flutti Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði sem situr í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, erindi á morg­un­verð­ar­fundi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Gylfi sagði bank­ana vilj­andi setja verð­skrá sína fram með flóknum og óskýrum hætti þannig að neyt­endur ættu ekki mögu­leika á því að bera þær saman. Þetta, og önnur óskýr starf­semi bank­anna, skili rentu sem sé ekki notuð til að bæta kjör til almenn­ings heldur til að greiða há laun til starfs­fólks fjár­mála­fyr­ir­tækja, skila miklum hagn­aði og til að byggja nýjar bygg­ingar. Þar vís­aði hann til áætl­ana um að byggja nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans við hlið Hörpu. „Lands­banka­húsið er tíu sinnum dýr­ara fyrir Ísland heldur en múr­inn við landa­mæri Mexíkó sem Banda­ríkja­for­seti vill byggja. Af hverju? Þetta eru pen­ingar almenn­ings.“

Þessi gagn­rýni, ekki frekar en önnur, breytti nokkru um áformin. Áætlaður kostn­aður við nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans, „Klettinn“, nemur níu millj­örðum króna og stefnt er að því að bank­inn muni flytja inn í þær annað hvort 2021 eða 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár