Hvíta húsið þarf að hleypa Jim Acosta aftur inn

Hvíta húsið braut á stjórnar­skrár­vörðum réttindum frétta­manns CNN þegar það svipti hann aðgangi að Hvíta húsinu eftir hörð orða­skipti við Donald Trump.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Dómstóll í Banda­ríkjunum hefur komist að þeirri niður­stöðu að Hvíta húsið hafi brotið á stjórnar­skrár­vörðum réttindum Jim Acosta, frétta­manns CNN, þegar hann var sviptur aðgangi að Hvíta húsinu. Dómarinn, sem var skipaður af Donald Trump í fyrra, sagði að ákvörðunin fæli í sér brot á fyrstu og fimmtu grein stjórnar­skrár Banda­ríkjanna. Hvíta húsið þarf því að skila Acosta aðgengis­passa hans sem var gerður upptækur í síðustu viku. CNN greinir frá.

CNN höfðaði mál gegn Donald Trump Bandaríkja­forseta og nokkrum starfs­mönnum Hvíta hússins vegna ákvörðunarinnar um að svipta Acosta aðgengi. Sú ákvörðun kom í kjölfar þess að Acosta og Trump áttu í orða­skiptum á blaðamanna­fundi þegar sá fyrr­nefndi spurði forsetann út í flótta­mannamál og hvort hann hafi notað þau sem vopn í nýafstöðnum kosningum þar sem hann talaði ítrekað um að innrás í Banda­ríkin væri yfir­vofandi. Trump brást fokillur við og sagði m.a.: „Ég held að þú ætt­ir að stjórna CNN og leyfa mér að stjórna land­inu.“ Síðar sagði hann að Acosta væri „dóna­leg­ur og hræðileg mann­eskja sem ætti ekki að vinna fyr­ir CNN.“

Í kjölfarið var Acosta sviptur aðgengis­passa sínum að Hvíta húsinu og var það rökstutt með því að hann hann hefði lagt hendur á lærling sem reyndi að taka af honum hljóðnema eftir að Trump hafi gefið til kynna að hann vildi ekki svara spurningum Acosta. Sara Hucka­bee Sand­ers, upp­lýs­inga­full­trúi Hvíta húss­ins, deildi m.a. myndbandi á samfélags­miðlum af atburðinum sem átti að sýna að Acosta hefði lagt hendur á lærlinginn. Síðar kom í ljós að þar var um að ræða myndband sem átt hafði verið við og hafði uppruna­lega birst á samsæris­kenninga­vefnum InfoWars.

Ýmsir fjöl­miðlar studdu mála­rekstur CNN. Þar á meðal var Fox News sem hefur verið mjög hliðhollt Trump síðan að hann tók við forseta­embættinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár