Aftökur án dóms og laga í Aleppo benda til stríðsglæpa

Svona var umhorfs í Aleppo í gær.
Svona var umhorfs í Aleppo í gær. Mynd: EPA

Amnesty International segir augljóst að stríðs­glæpir séu framdir í Aleppo, þar sem fregnir herma að tugir óbreyttra borgara hafi verið teknir af lífi án dóms og laga af sýrlenska hernum. Samtökin kalla eftir því að allar stríðandi fylkingar veiti óbreyttum borgurum í Aleppo vernd hið bráðasta.

Fregnir um fjölda­morð á óbreyttum borgurum, meðal annars börnum, þar sem fólk er strá­drepið með köldu blóði á eigin heimili af hersveitum sýrlenskra stjórn­valda eru ákaflega sláandi en ekki óvæntar miðað við framferði þeirra hingað til. Slíkar aftökur, án dóms og laga, myndu jafngilda stríðs­glæpum, segir Lynn Maalouf, yfirmaður rannsókna Amnesty International á svæðis­skrifstofu í Beirút, í tilkynningu frá Amnesty. 

„Frá upphafi átakanna hafa hersveitir sýrlenskra stjórn­valda, með stuðningi Rússa, ítrekað sýnt fram á fullkomið skeytingar­leysi gagnvart alþjóð­legum mannúðar­lögum og algjöra lítilsvirðingu gagnvart óbreyttum borgurum. Raunar hafa óbreyttir borgarar verið skotmörk hersveita, bæði í hernaðar­aðgerðum og með víðtækri beitingu á geðþótta­handtökum, þvinguðum manns­hvörfum ásamt beitingu pyndinga og annarrar illrar meðferðar. Hætta er á að hersveitir stjórn­valda fremji fleiri grimmdar­verk eftir því sem þær færast nær því að ná fullu valdi yfir austur­hluta Aleppo. Það veldur miklum ótta hjá þúsundum óbreyttra borgara sem eru fastir í borginni,“ segir í tilkynningunni. 

Undan­farna mánuði hafi heimurinn, þar á meðal öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, horft frá hliðar­línunni á daglega slátrun óbreyttra borgara ásamt því að austur­hluti Aleppo hefur verið jafnaður við jörðu og breyst í fjölda­gröf. „Aðgerðar­leysi heimsins, sem stendur frammi fyrir þvílíkri grimmd, er til skammar. Skortur á ábyrgð á stríðs­glæpum og glæpum gegn mannkyni hefur gert stríðs­aðilum kleift, þá sérstak­lega hersveitum stjórn­valda, að fremja slíka glæpi í massavís.“

Í síðustu viku greindu Sameinuðu þjóðirnar frá því að hundruð manna og drengja hafa horfið af svæðum sem eru undir stjórn stjórn­valda. Amnesty hefur áður beint athyglinni að kerfis­bundinni og víðtækri beitingu stjórn­valda á þvinguðum manns­hvörfum, til þess að ráðast gegn óbreyttum borgurum. Þetta eru glæpir gegn mannkyni, segir Amnesty.

„Amnesty International kallar eftir því að stríðandi fylkingar tryggi óbreyttum borgurum örugga leið til að flýja átökin, aðgengi að mannúðar­aðstoð og að þeir sem ábyrgð bera á stríðs­glæpum og glæpum gegn mannkyni verði sóttir til saka. Amnesty International hvetur almenning til þess að skrifa undir ákall samtak­anna hér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár