Playboy stofnandinn Hugh Hefner látinn

Hefnar var umdeildur alla tíð, en í skrifum fjölmiðla í Banda­ríkjunum er hann sagður hafa hafta mikil áhrif á samtíma sinn í fjölmiðla­heimi og útgáfu­starfsemi.

Hugh Hefner, stofnandi Playboy, lést í gær, 91 árs að aldri. Þetta var tilkynnt á Twittersíður Playboy í nótt.

Í umfjöllun New York Times er Hefner sagður hafa haft mikil áhrif á samtíma sinn í fjöl­miðlum og útgáfu­starfsemi, og þá einkum hvernig viðhorf fólk til kynlífs og nektar birtust.

Hann var alla tíða umdeildur, og var Playboy setur hans gjarnan gagnrýnt fyrir að birtast sem sem staður þar sem konur voru opinber­lega niður­lægðar.

Hefner stofnaði Playboy á eftir­stríðs­árunum, og hófst starfsemin 1953. Á undra­skömmum tíma varð tímarið eitt vinsælasta rit heims, og þá einkum hjá körlum. Þegar mest var seldist það í yfir 7 milljónum eintaka á mánuðu, og var heima­markaðurinn alla tíða Banda­ríkin.

Hefner var vellauðugur og birtist gjarnan umvafinn kvenfólki. Eftir­lifandi eiginkona hans heitir Crystal Harris, 31 árs gömul. Hún giftist Hefner árið 2012, þegar Hefner var 86 ára en hún sjálf 26 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár