Bláa lónið fékk 823 milljónir króna í stuðningsgreiðslur frá ríkinu á tveimur árum

Tap Bláa lónsins á þeim tveimur árum sem kórónu­veiru­faraldurinn geisaði af fullum krafti, með tilheyrandi áhrifum á rekstur fyrir­tækisins, var lægra en síðasta arðgreiðsla sem greidd var út fyrir­tækinu. Það er nú metið á um 60 milljarða króna.

Bláa lónið.
Bláa lónið. Mynd: Skjáskot

Bláa lónið fékk alls 221 milljón króna í stuðnings­greiðslur frá ríkinu vegna COVID-19 faraldursins á síðasta ári. Fyrir­tækið fékk 602 milljónir króna í slíkar greiðslur árið áður og því samtals 823 milljónir króna frá byrjun faraldurs og til síðustu áramót. Þetta kemur fram í yfirliti yfir lykil­tölur úr rekstri Bláa lónsins sem birtar hafa verið á vef fyrir­tækisins.

Bláa lónið tapaði 4,8 milljónum evra, um 708 milljónum króna á ársloka­gengi 2021, í fyrra. Það er mun minna tap en á árinu 2020 þegar fyrir­tækið tapaðist 20,7 milljónum evra, um 3,2 milljörðum króna á ársloka­gengi þess árs.

Tap síðustu tveggja ára minna en síðasta arðgreiðsla

Eigið fé Bláa lónsins var 54,5 milljónir evra, um átta milljarðar króna, í lok síðasta árs. Það var 79,5 milljónir evra í lok árs 2019, skömmu áður en að kórónu­veiru­faraldurinn skall á og lækkaði því um 31 prósent í evrum talið. Óráð­stafað eigið fé Bláa lónsins var 4,5 milljarðar króna um síðustu áramót.

Samanlagt tap Bláa lónsins á árunum 2020 og 2021 er í heild sinni lægra en síð­asta arð­greiðsla sem greidd var út úr fyrir­tækinu. Á árinu 2019 fengu hlut­hafar alls 30 millj­ónir evra, þá um 4,3 millj­arða króna, í arð­greiðslu vegna frammi­stöðu árs­ins á und­an­. Árið áður, 2018, nam arð­greiðslan til hlut­hafa 16 millj­ónum evra, eða um 2,3 millj­örðum króna. Því var tap félags­ins á árunum sem kórónu­veiru­faraldurinn geisaði um 55 pró­sent af arð­greiðslum áranna 2018 og 2019.

Enginn arður verður greiddur út vegna ársins 2021.

Bláa lónið metið á um 60 milljarða

Stærsti eig­andi félags­­ins er Hvatn­ing slhf. með eign­­ar­hlut upp á 39,6 pró­­sent. Eig­andi þess er Kólfur ehf., eign­­ar­halds­­­fé­lag að stærstu leyti í eigu Gríms Sæmundsen, for­­stjóra Bláa lóns­ins, og Eðvard Júl­í­us­­son­­ar. Kólfur keypti tæp­­lega helm­ing í Hvatn­ingu af Horni II, fram­taks­­sjóði í stýr­ingu Lands­bréfa, árið 2018.

Næst stærsti eig­and­inn er Blá­varmi slhf., félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­­­sjóða, sem keypti 30 pró­­­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á tæp­­­lega fimm­­­földu þáver­andi bók­­­færðu virði hlut­­­ar­ins í maí 2019, eða á 15 millj­­arða króna. Blávarmi á nú 36,2 prósent eignar­hlut.

Í árs­skýrslum líf­eyr­is­sjóða sem eru á meðal hlut­hafa í bæði Hvatn­ingu og Blá­varma er hægt að sjá að þeir hafa hækkað verð­mat sitt á félag­inu á síð­asta ári og meta það sé nú um 60 millj­arða króna virði. Verðmatið í lok árs 2020 var um 40 milljarðar króna.

Fjár­festinga­félagið Stoðir keypti umtals­verða hluti í Bláa lóninu í fyrra, meðal annars sex prósent hlut félags Helga Magnússonar, stærsta eiganda útgáfu­félags Frétta­blaðsins. Stoðir eiga nú 7,3 prósent hlut í fyrir­tækinu og er fjórði stærsti eigandi félagsins.

Hundruð milljóna í upp­sagn­ar­styrki

COVID-19 hafði gríð­ar­leg áhrif á rekstur Bláa Lóns­ins á árunum 2020 og 2021.

Bláa Lón­inu var gert að loka starfs­stöðvum sínum í Svarts­engi þann 23. mars 2020 í kjöl­far reglna um ferða­tak­mark­anir milli landa og sam­komu­banns sem sett var á. Starfs­stöðv­arnar voru opn­aðar aftur sumarið 2020 en svo lokað aftur þegar kór­ónu­veiran fór á kreik á ný. Alls voru starf­stöðvar Bláa lóns­ins lok­aðar í sex mán­uði á árinu 2020 og í átta mánuði á árinu 2021. Meðal­fjöldi starfs­manna dróst nokkuð saman milli ára, úr 431 í 396.

Bláa lónið fékk alls 603,4 millj­ónir króna í stuðn­ings­greiðslur úr rík­is­sjóði til að standa straum af kostn­aði vegna upp­sagna á starfs­fólki frá maí mánuði 2020 til og með febrúar 2021. Það úrræði stjórn­­­valda heim­il­aði fyr­ir­tækjum sem orðið höfðu fyrir miklu tekju­­falli að sækja styrk fyrir allt að 85 pró­­sent af launa­­kostn­aði á upp­­sagn­­ar­fresti í rík­­is­­sjóð. Einungis tvö fyrirtæki fengu hærri uppsagnar­styrki, Icelandair sem fékk 3,7 milljarða króna og Flugleiða­hótel ehf. sem fékk 626,7 milljónir króna. Ekki er tilgreint hvaða aðrar stuðnings­greiðslur Bláa lónið fékk á síðasta ári.

Auk þess nýttu hundruð starfs­manna Bláa lónsins hluta­bótaleiðina svokölluðu á meðan að á faraldrinum stóð, en kostnaður vegna þess reiknast ekki sem stuðningur við fyrirtæki.

Laun stjórnar og for­stjóra Bláa lóns­ins á síð­asta ári voru 903 þús­und evr­ur, um 133,3 millj­ónir króna. Launa­kostn­aður þeirra í evrum dróst saman um 3,6 prósent milli áranna 2020 og 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár