Leyndarhjúpnum svipt af olíuauði Sádí-Araba - Lygilegar hagnaðartölur

Olíu­risinn Aramco er á leið á markað og hafa ítarlegar rekstrar­upplýsingar verið birtar, í fyrsta skipti.

Mesta hagnaðar­fyrirtæki heimsins í fyrra var olíu­risinn í Sádí-Arabíu, Aramco. Þetta kom í ljósi í dag þegar ítarlegar rekstrar­upplýsingar um fyrir­tækið voru birtar, en félagið er á leið á markað og því þykir birting upplýsinganna merkileg.

Hagnaður fyrir­tækisins í fyrra var 111,1 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 13.665 milljörðum króna.

Það er upphæð sem dugar til að kaupa allt húsnæði á Íslandi tvisvar miðað við fasteignamat ársins 2018.

Yfirvöld í konungs­ríki Sádí-Arabíu fengu til sín um 102 milljarða Bandaríkja­dala, jafnvirði 12.300 milljarða króna, í skatt­tekjur frá Aramco í fyrra.

Við skráningu félagsins á markað stendur til að selja hlut af hluta­bréfum í félaginu til alþjóðlegra fagfjárfesta, og hafa yfirvöld sagt að við skráninguna verði félagið langsamlega verð­mætasta skráða félag í heiminum, en þau vilja að félagið verði með verðmiða upp á tvö þúsund milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur 246 þúsund milljörðum króna.

Aramco fram­leiddi um tíu prósent af olíu heims­markaðar í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár