Heiðar og Þórir á meðal umsækjenda um starf fréttastjóra RÚV

Fjórir sóttu um starf frétta­stjóra Ríkis­útvarpsins, allt karlar. Fimm sóttu um starf dagskrár­stjóra RÚV

Tveir starfs­menn RÚV eru meðal umsækjenda um stöðu frétta­stjóra Ríkisúvarpsins, Heiðar Örn Sigurfinnsson vara­frétta­stjóri og Valgeir Örn Ragnarsson frétta­maður. Auk þess sækja Þór Jónsson sviðs­stjóri og Þórir Guðmundsson, fyrr­verandi ritstjóri frétta­stofu Stövar 2, Vísis og Bylgjunnar, um starfið. Síðast þegar starfið var auglýst voru umsækjendurnir tólf.

Frétta­stjóri er æðsti yfir­maður frétta­stofu RÚV, sem er stærsta frétta­stofa lands­ins. Rakel Þrbergsdóttir var ráðin frétta­­stjóri á RÚV í apríl 2014. Hún hafði þá gegnt stöðu vara­f­rétta­­stjóra á frétta­­stofu RÚV um hríð, en hún tók við frétta­­stjóra­­stöð­unni af Óðni Jóns­­syni. Rakel greindi frá uppsögn sinni í nóvember og lét af störfum um áramótin. Heiðar Örn hefur verið starfandi frétta­stjóri frá því að Rakel lét af störfum.

Þórir starfaði sem ritstjóri rétta­stofu Stövar 2, Vísis og Bylgjunnar, frá 2018-2021. Erla Björg Gunn­ars­dóttir tók við af Þóri þegar skipulags­breytingar voru gerðar hjá miðlum Sýnar.

Starf fréttatjóra var auglýst í janúar, auk starfs dagskrár­stjóra Rásar 2. Fimm sóttu um þá stöðu og eru þau eftir­farandi:

Ágúst Héðinsson, verkefna­stjóri.

Guðmundur Gunnarsson, breytinga­stjóri.

Jóna Valborg Árna­dóttir, sérfræðingur.

Matthías Már Magnússon, aðstoðar­dagskrár­stjóri Rásar 2.

Sigurður Ragnarsson, framkvæmda­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár