Erla Björg nýr fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar

Erla Björg Gunnars­dóttir hefur tekið við af Hrund Þórs­dóttur sem frétta­stjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Breytingar voru kynntar í morgun en meðal annars verður kvöld­fréttatími Stöðvar 2 um helgar styttur.

Erla Björg
Erla Björg Mynd: Vísir/Vilhelm Gunnarsson

Erla Björg Gunnars­dóttir er nýr frétta­stjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar en hún hefur unnið á frétta­stofunni frá 2013 og var starfandi frétta­stjóri á tímabili. Þetta kemur fram í frétt Vísis í dag.

Erla tekur við af Hrund Þórs­dóttur en hún greindi frá því í stöðu­uppfærslu í gærkvöldi að hún hefði lokið störfum sem frétta­stjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar.

Samkvæmt Vísi mun Erla vinna við hlið Kolbeins Tuma Daðasonar frétta­stjóra Vísis en alls starfa rúmlega 50 manns á frétta­stofunni.

Þórir Guðmundsson ritstjóri Frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar kynnti í morgun breytingar sem fela í sér aukna áherslu á miðlun frétta á Vísi samfara áherslu á kvöld­fréttir Stöðvar 2 á virkum dögum en dregið verður úr lengd kvöld­frétta­tímans um helgar, að því er fram kemur á Vísi.

„Við erum á fullri ferð að aðlagast þeirri alþjóð­legu þróun að fólk vill vita hvað er að gerast um leið og það gerist,“ segir Þórir í samtali við Vísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár