Rakel Þorbergsdóttir hættir sem fréttastjóri RÚV

Rakel Þorbergs­dóttir, sem hefur verið frétta­stjóri RÚV frá árinu 2014, hefur ákveðið að hverfa til annarra starfa.

Rakel Þorbergs­dóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem frétta­stjóri RÚV. Hún tilkynnti starfs­mönnum frétta­stofu þetta á fundi sem hófst í dag klukkan 13.

Í kjölfarið var sendur póstur frá Stefáni Eiríks­syni útvarps­stjóra á aðra starfs­menn sem voru ekki viðstaddir fundinn með tíðindunum. Í honum stóð: „Rakel Þorbergs­dóttir hefur ákveðið að láta af starfi frétta­stjóra RÚV um næstu áramót. Rakel hefur gegnt starfinu frá því í apríl 2014 og í heild starfað í 22 ár á frétta­stofum RÚV. Tilkynning verður sett inn á vefinn okkar í dag og send öðrum miðlum.

Rakel hefur leitt frétta­stofuna undan­farin ár af mikilli fagmennsku og öryggi og fest hana í sessi sem þann frétta­miðil sem fólk ber mest traust til. Hún hefur sýnt framsýni í störfum sínum og lagt mikil­vægan grunn undir starfsemi frétta­stofunnar til næstu ára. Fyrir hönd RÚV færi ég henni hlýjar kveðjur og þakkir fyrir hennar mikilvæga framlag og frábæru störf á liðnum árum og óska henni alls hins besta í fram­tíðinni.

Starf frétta­stjóra verður auglýst laust til umsóknar fljótlega á nýju ári. Heiðar Örn Sigurfinnsson vara­frétta­stjóri gegnir starfi frétta­stjóra frá því að Rakel lætur af störfum um áramótin og þar til nýr frétta­stjóri hefur verið ráðinn.“

Í tilkynningu sem barst frá RÚV um tuttugu mínútum eftir að starfs­fólki frétta­stofunnar var tilkynnt um brott­hvarf Rakelar er haft eftir henni að árin á frétta­stofu RÚV og í starfi frétta­stjóra hafi verið afar lærdómsrík, krefjandi og skemmtileg.

„Ákvörðun mín var því ekki auðveld, frétta­stofan er frábær vinnu­staður en það er öllum hollt að breyta til og takast á við nýjar áskoranir. Starfsemin er í traustum höndum úrvals samstarfs­fólks sem hefur staðið sig frábærlega á mjög krefjandi tímum. Allar mælingar staðfesta að frétta­stofa RÚV er sá miðill sem þjóðin reiðir sig á, treystir og leitar til, sérstak­lega þegar mikið liggur við. Ég er gríðar­lega stolt af frammistöðu okkar fólks og það hefur verið heiður að fá að stýra þessari öflugu og rótgrónu frétta­stofu síðustu ár. Ég kveð með söknuði og hlýju í garð minna góðu félaga á RÚV,“ er haft eftir Rakel.

Frétta­stjóri er æðsti yfirmaður frétta­stofu RÚV, sem er stærsta frétta­stofa landsins.

Rakel var ráðin frétta­stjóri á RÚV í apríl 2014. Hún hafði þá gegnt stöðu vara­f­rétta­stjóra á frétta­stofu RÚV um hríð, en hún tók við frétta­stjóra­stöð­unni af Óðni Jóns­syni.

Alls sóttu tólf um frétta­stjóra­stöð­una síðast þegar hún var auglýst, en þeirra á meðal var Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, Jóhann Hlíðar Harð­ar­son og Pálmi Jón­as­son frétta­menn á RÚV og Jóhann Hauks­son blaða­mað­ur.

Eftir að umsækjenda­hópurinn var skor­inn nið­ur, stóðu fjórir þeirra eftir um hit­una. Þau þrjú sem komu til álita um frétta­stjóra­stöð­una auk Rakel­ar, voru Svavar Hall­dórs­son fyrr­ver­andi frétta­maður á RÚV, Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, sem hefur lengi starfað á RÚV og Sig­ríður Haga­lín Björns­dóttir, þá vara­f­rétta­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár