Vantraust á ríkisstjórn Löfven samþykkt

Sænska þingið samþykkti vantraust­tillögu sem Svíþjóðar­demókratar lögðu fram.

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar.
Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar. Mynd: EPA

Sænska þingið samþykkti í morgun vantrausts­tillögu á ríkis­stjórn Stefans Löfven forsætis­ráðherra með nokkuð afgerandi hætti. Alls samþykktu 181 af 349 þing­mönnum tillögu Svíþjóðar­demókrata um vantraust á ríkis­stjórnina, 109 greiddu atkvæði gegn henni go 51 þingmaður sat hjá.

Löfven mun halda blaðamanna­fund nú í morguns­árið og greina frá næstu skrefum, en hann hefur eina viku til að boða til nýrra kosninga takist ekki að mynda nýja starfhæfa ríkis­stjórn.

Hugmyndir sænsku ríkis­stjórnarinnar um að afnema leiguþak á nýbyggingum leiddi til þess að vantrausts­tillagan var lögð fram.

Takmarkanir á leiguverð eru ekki nýjar af nálinni í Svíþjóð, en þær hafa verið í gildi í einhverri mynd síðan árið 1942. Sams konar takmarkanir eru einnig í gildi í öðrum Evrópu­löndum, líkt og Frakk­landi, Írlandi og Þýska­landi.

Samkvæmt umfjöllun Politico um málið fyrir helgi samdi Löfven við sænska Miðflokkinn, sem studdi minnihluta­stjórn forsætis­ráðherrans falli, um að leigu­þakið yrði afnumið fyrir nýbyggingar eftir síðustu þing­kosningarnar þar í landi árið 2018. Hins vegar sagðist Vinstri­flokkurinn, sem varði ríkis­stjórn Löfven einnig falli, einungis hafa ætlað að verja minnihluta­stjórnina ef áformin um afnám leiguþaks yrðu aldrei að veruleika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár