Vilja láta utanaðkomandi rannsóknarnefnd sjá um úttekt á sóttvarnaaðgerðum

Þing­flokkur Pírata segja það nauðsynlegt að fá óvilhalla, ítarlega og yfirgrips­mikla rannsókn á afleiðingum ákvarðana sem teknar voru til að vernda heilsu og líf í COVID-19 faraldrinum. Ekki til að finna sökudólg – heldur til að draga lærdóm af ástandinu.

Þing­flokkur Pírata telur nauðsynlegt að fyrir­huguð úttekt á sóttvarna­aðgerðum verði framkvæmd af óháðri og utan­aðkomandi rann­sóknarnefnd sem Alþingi skipar. Óhjákvæmilegt er að slík úttekt verði yfirgrips­mikil og ótækt ef forsætis­ráðherra skipar nefnd sem rannsakar aðgerðir eigin ríkis­stjórnar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem þing­flokkurinn sendi frá sér í dag.

Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra undir­byggi nú út­tekt á að­gerðum stjórn­valda í far­aldrinum. Hún sagði það mikilvægt að dreginn yrði lærdómur af honum en endanlegt fyrir­komulag úttektarinnar lægi ekki fyrir.

„Það er mitt mat að við eigum að fara í slíka úttekt hér á Íslandi því það skiptir náttúru­lega miklu máli að draga einhverja lærdóma af svona reynslu og fara yfir það í raun og veru hvernig stjórn­kerfið virkaði og hvernig samstarfs ólíkra aðila gekk,“ sagði ráðherrann í samtali við Stöð 2.

Rannsókn framkvæmdavaldsins á sjálfu sér ekki farsæl leið til að tryggja traust

Þing­flokkur Pírata leggur í fyrsta lagi til að láta óháða og utan­aðkomandi rann­sóknarnefnd sjá um úttektina, sem skipuð væri í samræmi við lög um rann­sóknar­nefndir á vegum Alþingis.

„Fordæmi er fyrir slíkum rann­sóknar­nefndum sem hafa skýrt umboð til að rannsaka athafnir framkvæmda­valdsins og ríkar upplýsinga­öflunar­heimildir. Rannsókn framkvæmda­valdsins á sjálfu sér er ekki farsæl leið til að tryggja traust. Almenningur hefur þurft að færa marg­víslegar fórnir á síðustu mánuðum og nauðsynlegt að stjórn­völd dragi hagnýtan og hlutlægan lærdóm af því sem á undan er gengið,“ segir í tilkynningu Pírata.

Vilja ekki finna sökudólg – heldur draga lærdóm af ástandinu

Í öðru lagi vill þing­flokkurinn skilgreina úttektina sem víðtæka og yfirgrips­mikla. „Faraldurinn og sóttvarna­aðgerðir hafa snert flesta anga daglegs lífs. Afleiðingarnar eru því að líkindum margar og sumar ef til vill ekki komnar fram. Til þess að draga upp heild­stæða mynd af hinum fordæma­lausu aðgerðum er nauðsynlegt að litið verði til fleiri þátta en „hvernig stjórn­kerfið virkaði og hvernig samstarfs ólíkra aðila gekk,“ eins og forsætis­ráðherra komst að orði.“

Horfa þurfi til þátta á borð við geðheil­brigði, heimilis­ofbeldis, áhrifa á jaðar­setta hópa, skóla­starfs, áhrifa atvinnu­missis á efnahags­lega stöðu fjöl­skyldna og fjölskyldu­lífs, misskiptingar og jöfnuðar.

Benda þau á að íslenskt samfélag, eins og heims­byggðin öll, hafi þurft að búa við miklar takmarkanir á eðlilegu lífi undan­farin misseri. Því sé það nauðsynlegt að fá óvilhalla, ítarlega og yfirgrips­mikla rannsókn á afleiðingum ákvarðana sem teknar voru til að vernda heilsu og líf. Ekki til að finna sökudólga, heldur til að draga lærdóm sem lagt getur grunn að upplýstri umræðu og viðbrögðum við aðstæðum þar sem stjórn­völd þurfa að grípa til umfangs­mikilla aðgerða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár