Allt í einu kippist ég allur til og aftur og aftur og aftur, og kippirnir halda fyrir mér vöku. Þegar ég er ekki að kippast til hugsa ég um kippina og þeir valda mér kvíða. Daginn eftir held ég áfram að kippast til og daginn eftir það líka og eftir fimm daga af stöðugum kippum hringi ég í heilsugæsluna og fæ að tala við hjúkrunarfræðing. Ég segi henni frá svefnlyfjunum sem ég byrjaði að taka fyrir nokkrum mánuðum og nikótíninu sem ég set í vörina og að ég sé nýmættur aftur til starfa eftir jólafrí. Hún spyr hvort ég hafi prófað að minnka nikótínneysluna og ég segist hafa íhugað það, en sé svo sérhlífinn að ég hafi látið það eiga sig. Hún spyr hvort mér finnist kippirnir aukast þegar ég gefi þeim gaum og ég segist ekki átta mig á því. Hún spyr mig við hvað ég vinni og ég …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Athugasemdir (1)