Sögulegur fundur á Kóreuskaga

Það fór vel á með leiðtogum Norður- og Suður-Kóreu þegar þeir hittust á landa­mærum ríkjanna tveggja.

Kim Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu, og Moon Jae-In, forseti Suður-Kóreu, hittust við landamæri ríkjanna í nótt og varð Kim fyrsti leiðtogi Norður-Kóreu til að stíga inn á landsvæði Suður-Kóreu síðan Kóreu­stríðinu lauk árið 1953.

Fundarhöld leið­toganna og aðstoðar­manna þeirra fara fram í Friðar­húsinu í Panmunjom.

Kim Jong-Un var bros­mildur þegar hann tók í hönd Jae-In en samkvæmt umfjöllun BBC er hinn umdeildi og óútreiknanlegi Jong-Un sagður vilja beita sér fyrir betri samskiptum ríkjanna og sameinuðum Kóreu­skaga.

Suður-Kóreumenn hafa beitt sér fyrir betri samskiptum ríkjanna allt frá því að Norður-Kórea samþykkti að senda íþrótta­fólk til keppni á vetrar­ólympíu­leikunum í Suður-Kóreu fyrr á árinu.

Alþjóðalegar refsiaðgerðir eru enn í gildi gagnvart Norður-Kóreu, vegna tilrauna með lang­drægar flaugar. Meðal efnahags­þvingana eru hindranir á olíu­innflutningi til landsins, og hafa þær þegar haft alvarlegar afleiðingar fyrir landsmenn. Íbúar á Kóreu­skaga eru um 75 milljónir. Um 50 milljónir í Suður-Kóreu og 25 milljónir í Norður-Kóreu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár