Jákvætt skref fram á við í samskiptum Kóreuríkjanna tveggja

Leið­togar Norður- og Suður-Kóreu munu hitt­ast á morgun í þorp­inu Pan­munjom. Sam­skipti ríkj­anna hafa ekki alltaf verið góð og enn er ekki búið að und­ir­rita frið­ar­sátt­mála síðan Kóreu­stríð­inu lauk.

Fólk fagnar í Suður-Kóreu fundi leiðtoganna tveggja.
Fólk fagnar í Suður-Kóreu fundi leið­tog­anna tveggja. Mynd: EPA

Á laug­ar­dag­inn síð­ast­lið­inn til­kynntu yfir­völd í Norður-Kóreu að ríkið myndi mögu­lega hætta kjarn­orku­til­raunum. Á mánu­dag­inn til­kynntu svo suður-kóresk yfir­völd að þau myndu slökkva á hátöl­urum sínum á landa­mær­unum. Í ára­fjölda hafa suður-kóresk yfir­völd spilað popptón­list og áróður í stórum hátöl­urum á landa­mærum ríkj­anna á Kóreu­skaga. Norður-Kórea hefur einnig spilað áróður í hátöl­urum sínum á landa­mær­unum en ekki liggur fyrir hvort slökkt hefur verið á þeim. Aðgerð­irnar og yfir­lýs­ing­arnar eru und­ir­bún­ingur fyrir fund milli leið­toga ríkj­anna tveggja sem verður hald­inn á morgun.

Leiðtogafundur morgundagsins

Á morgun munu leið­togar ríkj­anna tveggja, Norður- og Suður-Kóreu hitt­ast í fyrsta skipti. Fund­ur­inn verður að telj­ast tíma­móta­skref í sam­skiptum ríkj­anna en leið­tog­arnir Kim Jong-un og Moon Jae-in munu funda í syðri hluta þorps­ins Pan­munjeom. Þorpið liggur á hlut­lausa­belt­inu í kringum landa­mærin en þar sem fund­ur­inn verður í Frið­ar­hús­inu í suð­ur­hlut­anum þá verður þetta í fyrsta skipti sem leið­togi Norður-Kóreu stígur á suður-kóreska grundu.

Þetta mun vera í þriðja skipti sem leið­togar þess­ara ríkja funda og í fyrsta skipti í tíu ár. Faðir Kim Jong Un, KimJong-il, hitti í sinni valda­tíð tvo af for­setum Suður-Kóreu en báðir fund­irnir voru innan landamæra Norður-Kóreu.

Yfir­maður skrif­stofu for­seta­emb­ætt­is­ins í Suður-Kóreu gaf út síð­ast­liðna nótt hvernig fund­inum muni verða háttað. Heið­ursverðir munu taka á móti Kim Jong-un og svo munu leið­tog­arnir ganga saman að Frið­ar­hús­inu. Þar mun Kim Jong-Un rita nafn sitt í gesta­bók­ina og síðan verður fundur settur. Sendi­nefndir leið­tog­anna munu ekki snæða hádeg­is­verð saman en að loknum hádeg­is­verði munu leið­tog­arnir gróð­ur­setja tré saman á landa­mær­unum.

Forseti Suður-Kóreu býst við að rætt verði um að ná fram frið­ar­samn­ingum sem munu binda enda á Kóreu­stríðið. Kim hefur gefið út að hann sé til­bú­inn til að ræða afkjarna­vopna­væð­ingu Norður-Kóreu gegn því að honum verði ekki steypt af stóli og að öryggi hans per­sónu­lega verði tryggt.

Íbúar ríkj­anna hafa mis­miklar vænt­ingar til fund­ar­ins. Í Suður-Kóreu eru lífs­gæði fólks nokkuð mikil, sér­stak­lega ef miðað er við lífs­gæði Norður-Kóreubúa. Ef sam­ein­ing ríkj­anna kæmi til greina, sem flestir telja að verði ekki, hefur Suður-Kórea miklu að tapa. Efna­hagur Suður-Kóreu er í blóma og stendur ríkið fram­ar­lega í þróun vís­inda. Búist er við því að fundur Kim og Moon muni leggja grunn­inn að næsta fundi Kim, sem er við for­seta Banda­ríkj­anna, Donald Trump.

Litli eldflaugakarlinn verður opinn og heiðvirtur

Fundur Kim og Trump mun lík­leg­ast eiga sér stað í júní og jafn­vel fyrr, að sögn Trump. Á þriðju­dag­inn sagði Trump að Kim væri mjög opinn og heið­virtur maður sem verður að telj­ast mikil breyt­ing á orð­ræðu Trumps gagn­vart leið­tog­anum. Trump hefur meðal ann­ars áður kallað hann „litla eld­flauga­karl­inn“ og skipt­ust leið­tog­arnir á að státa sig af stóru rauðu hnöpp­unum sínum í fyrra. Búist er við að þeir muni einnig ræða afkjarna­vopna­væð­ingu Norður-Kóreu.

Mörg þúsund ára menningarsaga

Kóreu­skagi hefur verið vett­vangur átaka í mörg hund­ruð ár. Elstu minjar á Kóreu­skaga eru frá forn­stein­öld en saga Kóreu er talin hefj­ast árið 2333 fyrir Krist en þá var Gojoseon-keis­ara­dæmið stofnað. Kóreu­skag­inn var tengiliður milli Japans og Kína en skag­inn liggur á milli land­anna.

Keis­ara­dæmið féll og frá 304 fyrir Krist var Kóreu­skag­inn, og stórt hérað í Kína, undir kon­ungs­rík­inu Tjósen. Árið 108 fyrir Krist féll kon­ungs­ríkið fyrir Han-keis­ara­dæm­inu í Kína og þá var Kóreu skipt upp í þrjú lepp­ríki Kína; Silla, Gogopyeo og Baekje. Landið losn­aði ekki undan kín­verskum yfir­ráðum fyrr en árið 313.

Ríkin þrjú sam­ein­uð­ust undir Silla rík­inu árið 660. Mikill upp­gangs­tími var fyrir kóreska menn­ingu og sam­fé­lag eftir sam­ein­ingu ríkj­anna þriggja. Kóreska ríkið var þó ekki end­ur­reist fyrr en árið 1392 þegar Joseon-ættin tók við völdum. Joseon-ættin gerði kon­fús­í­an­isma að rík­is­trú­ar­brögðum. Kon­fús­í­an­ismi er upp­runnin í kín­verskri menn­ingu en þrátt fyrir það hefur hann haft mót­andi áhrif á kóreska­menn­ingu og grunn­gildi Kóreubúa.

Næstu aldir voru gull­ald­arár í sögu Kóreu og blómstr­aði kóresk menn­ing og vís­indi. Þá var kon­ungur Kóreu form­lega undir kon­ungi Kína. Gullöld Kóreu lauk svo með ítrek­uðum inn­rásum Japana á árunum 1592 til 98. Kóreu­menn máttu þola fleiri inn­rásir næstu árin en eftir 1637 reyndu kóreskir kon­ungar að loka land­inu fyrir öllum nema Kín­verjum.

Rúmum tveimur öldum síðar, þving­uðu Japanar Kóreu­menn til að opna landið aftur fyrir umheim­inum. Mikill upp­gangur hafði verið í Japan og herir þeirra styrkst til muna.

Undir hæl Japans

Eftir að Japanar náðu völdum yfir Quing-keis­ara­dæm­inu í Kína í styrj­öld­unum 1894 til 95 voru form­leg yfir­ráð Kína­keis­ara yfir Kóreu afnumin. Við tóku raun­veru­leg yfir­ráð Japana, sem gerðu Kóreu að japönsku vernd­ar­svæði árið 1905 og að jap­anskri nýlendu fimm árum síðar. Japanar höfðu lagt undir sig mörg land­svæði á meg­in­landi Asíu, líkt og nas­istar í Þýska­landi gerðu seinna í Evrópu.

Japönsk yfir­völd þjörm­uðu mikið að íbúum Kóreu og reyndu að útrýma kóreskri menn­ingu með því að þvinga japönskum siðum upp á íbúa lands­ins. Margir íbúar voru neyddir til að taka upp japönsk nöfn og börð­ust margir Kóreu­menn með her Japana í síð­ari heims­styrj­öld­inni. Kóreskar konur voru enn fremur neyddar til sam­neytis með japönskum her­mönnum til að létta geð her­mann­anna sem börð­ust fyrir land og þjóð. Tölur eru á reiki um hversu margar konur voru í

kyn­lífs­á­nauð jap­anska hers­ins en allt frá 20 þús­und konum upp í 410 þús­und kvenna voru neyddar til þess.

Grunn­ur­inn að Kóreu eins og við þekkjum hana í dag var lagður í síð­ari heims­styrj­öld­inni en landið kom heldur illa út úr henni. Leið­togar Banda­ríkj­anna, Bret­lands og Kína ákváðu á fundi í Kaíró árið 1943 að Kórea skyldi verða sjálf­stætt ríki, þegar Japanar yrðu sigr­aðir. Japanar gáfust upp fyrir Banda­ríkja­mönnum 1945 og þar með lauk síð­ari heims­styrj­öld­inni.

Kóreuskaganum skipt upp

Stuttu eftir fall Japans hófu Sov­ét­ríkin, undir stjórn Jóseps Stalíns, inn­rásir í Kóreu og hertóku hvern bæinn á fætur öðrum. Banda­ríkja­menn voru ekki par sáttir við það og voru hræddir um að Sov­ét­menn myndu her­taka allan skag­ann. Því var brugðið á það ráð að skipta Kóreu­skag­anum upp í tvö ríki og lágu landa­mærin um 38 breidd­argráðu.

Banda­ríkja­menn tóku að sér suð­ur­hlut­ann og Sov­ét­ríkin norð­ur­hlut­ann. Engar sér­stakar ástæður lágu að baki ákvörð­un­inni, hvorki menn­ing­ar­legar, sögu­legar eða efna­hags­legar. Sov­ét­ríkin féllust á skipt­ing­una, þrátt fyrir að betri rækt­ar­lönd væru í syðri hlut­anum og að fleira fólk byggi þar. Upp­haf­lega átti skipt­ingin að vera tíma­bundin en strax í upp­hafi fóru ríkin að þró­ast á mjög mis­jafnan hátt.

Banda­ríkja­menn höfðu mikla við­veru í Suður-Kóreu árin eftir síð­ari heims­styrj­öld­ina og Sov­ét­ríkin aðstoð­uðu Norður-Kóreu við að byggja upp ríki sitt. Um leið og heims­styrj­öld­inni lauk hófst kalda stríðið og því minnk­uðu lík­urnar all­veru­lega á að ríkin tvö á Kóreu­skaga myndu sam­ein­ast.

Þann 9. sept­em­ber árið 1945 lýsti Lýð­ræð­is­lega alþýðu­lýð­veldið Kórea, eða Norður-Kórea, yfir sjálf­stæði. Kim Il-sung, afi Kim Jong Un, var gerður að leið­toga lands­ins en hann hafði áður barist með Rauða hernum, her Sov­ét­manna. Í des­em­ber var hann orð­inn for­maður norður-kóreska komm­ún­ista­flokks­ins og síðar for­maður bráða­birgða­stjórnar. Síðar voru Kim Il-sung og flokki hans veitt öll völd í land­inu og hann varð ein­ræð­is­herra yfir land­inu.

Sonur Kim Il-sung, Kim Jong-il, tók við emb­ætt­inu þegar faðir hans lést og Kim Jong-un, sonur hans, tók svo við emb­ætt­inu í lok árs 2011. Ríkið var byggt upp að hætti komm­ún­ista í Sov­ét­ríkj­unum með samyrkju­búum og mið­læga dreif­ingu matar og gæða.

Þann 15. ágúst 1945 lýsti Lýð­veldið Kórea eða Suður-Kórea eins og við þekkjum það í dag yfir sjálf­stæði. Banda­ríkja­stjórn mót­aði stjórn­ar­far Suður-Kóreu eftir sínu eigin stjórn­ar­fari og hefur valda­mik­ill for­seti verið við völd þar frá sjálf­stæði rík­is­ins.

Nágrannaerjur

Syngman Rhee var fyrsti for­seti lýð­veld­is­ins árið 1948 en ólíkt nágrönn­unum hafa fleiri en þrír verið við völd þar í landi frá sjálf­stæði. Núver­andi for­seti, Moon Jae-in, tók við emb­ætti í maí í fyrra og er sá tólfti í röð­inni. Lengd kjör­tíma­bils og lög um end­ur­kjör voru nokkuð á reiki fyrstu ára­tug­ina. Síðan árið 1988 hefur kjör­tíma­bil for­seta verið 5 ár og mega þeir ekki bjóða sig fram aftur.

Í upp­hafi var litið á skipt­ing­una sem tíma­bundna og vildu leið­togar beggja ríkja sam­ein­ast. Ekki var hægt að kom­ast að sam­komu­lagi þar sem báðar stjórn­irnar vildu fara með völd.

Leið­togar Norður-Kóreu hafa lengi haft horn í síðu nágranna sinna í suðr­inu og þrá­bað Kim Il-sung, Jósep Stalín, um leyfi og aðstoð til að ráð­ast inn í landið. Það hafð­ist á end­anum í júní 1950 og réð­ust herir Norður-Kóreu inn í Suður-Kóreu. Nokkuð hafði þá breyst en komm­ún­istar höfðu náð völdum í Kína, án afskipta Banda­ríkj­anna og lið Banda­ríkj­anna var á bak og burt í Suður-Kóreu. Norður-Kórea naut stuðn­ings skoð­ana­bræðra sinna í Kína og Sov­ét­ríkj­unum en Banda­ríkja­menn studdu við Suður-Kóreu.

Sest var að samn­ings­borð­inu árið 1951 en samn­ingar um vopna­hlé náð­ust í lok júlí 1953. Í vopna­hléssamn­ing­unum náð­ist sam­komu­lag um hlut­lausa svæðið í kringum landa­mærin. Frið­ar­samn­ingar hafa ekki verið sam­þykktir milli ríkj­anna og telja margir að tækni­lega séð séu ríkin enn í stríði. Stríðið skil­aði nán­ast engum árangri og eru landa­mærin enn þá þar sem þau voru áður en stríðið hófst.

Ástandið var slæmt eftir stríðið, beggja megin landamær­anna. Upp­bygg­ing innan Norður-Kóreu var hrað­ari en í suðr­inu fyrst um sinn og hreykti Kim Il-sung sig stoltur af því. Sunn­an­menn byggðu hins vegar upp kap­ít­al­ískt mark­aðs­drifið sam­fé­lag og hafa náð nokkuð góðum árangri, en hag­kerfi Suður-Kóreu er það fjórða stærsta í Asíu.

Eftir fall Sov­ét­ríkj­anna í lok árs 1991 missti Norður-Kórea mik­inn stuðn­ing og í kjöl­farið geis­aði hung­ursneyð í land­inu árinn 1994 til 1998. Tölur eru á reiki um hversu margir lét­ust úr hungri eða lélegri heilsu vegna nær­ing­ar­snauðs matar­æðis. Norður-kóresk yfir­völd neita að gefa upp­lýs­ingar um hversu margir dóu en sjálf­stæðir grein­ing­ar­að­ilar telja að á bil­inu 800 þús­und til 1,5 millj­ónir manna hafi lát­ist. Norður-kóreska ríkið sér um alla ræktun og dreif­ingu á mat en ríkið hefur þurft á aðstoð að halda frá öðrum ríkjum allt frá því að hung­ursneyðin geis­aði.

Kjarnorkutilraunir Norður-Kóreu

Norður-Kóreu­menn hafa farið nokkuð leynt með kjarn­orku­til­raunir sínar, þrátt fyrir að hafa státað sig reglu­lega af árangri sínum síð­ustu ár. Norður-Kóreu­menn hafa gert til­raunir með kjarn­orku síðan á sjötta ára­tugnum. Sov­ét­menn aðstoð­uðu Norður-Kóreu við að koma sér upp kjarn­orku­til­rauna­stofum.

Til­gangur til­rauna þeirra hefur aldrei verið ljós og fyrst um sinn spil­uðu þeir eftir regl­unum og árið 1985 skrif­aði Norður-Kórea undir alþjóð­lega samn­ing­inn um að dreifa ekki kjarna­vopnum. Ýmsir samn­ingar hafa verið gerðir í gegnum tíð­ina og hefur Norður-Kórea skrifað undir þá nokkra.

Þegar George W. Bush tók við for­seta­emb­ætti í Banda­ríkj­unum árið 2001 breytt­ust sam­skipti Banda­ríkj­anna og Norður-Kóreu. Til að forð­ast örlög Íraks í Íraks­stríð­inu 2004 hófu Norður-Kóreu­menn að þróa kjarn­orku­vopn. Árið 2006 til­kynntu yfir­völd að þeir hafi verið að prófa fyrstu kjarn­orku­sprengj­una sína.

Síðan þá hafa nokkrar til­raunir og spreng­ingar verið gerðar af hálfu Norður-Kóreu­manna og talið er fyrir víst að Norður-Kórea búi yfir kjarn­orku­vopnum.

Nú segja yfir­völd í Pyongang, höf­uð­borg Norður-Kóreu, að þau hafi náð mark­miðum sínum í þróun kjarn­orku­vopna. Í haust sprengdu Norður-Kóreu­menn nýleg­ustu kjarn­orku­sprengj­urnar en þær ollu síðar jarð­skjálftum á svæð­inu. Kínversk yfir­völd munu á dög­unum gefa út skýrslu um kjarn­orku­til­rauna­svæði Norður-Kóreu. Kín­verskir vís­inda­menn telja að til­rauna­stofur Norður-Kóreu­manna hafi hrunið í síð­ustu spreng­ingu, sem olli jarð­skjálft­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár