„Við getum ekki borðað peninga“

„Tungu­málið er sjálfs­mynd okkar,“ segir Miite Geisler, frumkvöðull og þátt­takandi í menningar- og viðskipta­lífi Grænlands. Sem barn flakkaði hún um með veiði­manninum föður sínum og mótaðist af nátt­úrunni. „Við færðum okkur til eftir veðri, veiðum og aðstæðum,“ segir hún. Og það var ekki ferðalag heldur lífs­barátta. Þessi sjálf­stæða kona er alin upp við ást, saga hennar er vitnis­burður um hvernig ást eflir sjálf­stæði.

Miite Geisler er lifandi vitnisburður þess að ást í æsku tendrar sjálfstæði á fullorðinsárum.
Miite Geisler er lif­andi vitn­is­burður þess að ást í æsku tendrar sjálf­stæði á full­orð­ins­árum. Mynd: Golli

Aðeins fjórtán ára flutti Miite að heiman. Ekki vegna þess að hún neyddist til þess, heldur vegna þess sem hún kallar meðfædda sjálfstæðis­þörf. „Ég hafði alltaf trú á því að ég gæti séð um mig sjálf,“ segir hún.

Hún safnaði peningum, sagði fjöl­skyldunni frá áformum sínum og flutti til Ilulissat, þar sem hún bjó hjá systur sinni í tæpan áratug áður en hún eignaðist sitt eigið heimili. Þar hófst vegferð sem leiddi hana í gegnum fisk­verksmiðjur, verslanir, stjórnunar­störf, nám í Danmörku og að lokum til Nuuk, þar sem hún hefur búið síðan um 1990.

Saga hennar er samofin sögu Grænlands á umbreytingar­tímum, frá veiði­menningu til markaðs­hagkerfis, frá nýlendu­hugsun til sjálfstæðis­baráttu, frá hefðum sem hurfu en voru endur­vaktar.

Flakkaði um með föður sínum

Áður en hún varð frumkvöðull og þátt­takandi í menningar- og viðskipta­lífi Grænlands hafði hún fengið tækifæri til að kynnast landinu á annan hátt en …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíðarinnar – lifði af sjálfsvígs­tilraun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upplýsingum, greiningum og hugsunum til samlanda sinna. Hann er hin nýja rödd Grænlands, ungur hugsjóna­maður sem nýtir samfélags­miðlana til að fá fólk til að hugsa og setja hlutina í rétt samhengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfsvígs­tilraun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um tilfinningar.

19 mín. lestur

ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeldis­fullur“

Þegar Embla Kristjáns­dóttir hóf sambúð með Niels Thomassen fékk hún að kynnast nýrri hlið á manninum sem hún elskaði, þar sem stjórnsemi, afbrýðisemi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeldinu, axlaði ábyrgð og hefur unnið þrotlaust í sjálfum sér síðasta áratug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karlmenn sem glíma við sama vanda að tjá tilfinningar sínar og standa berskjald­aðir.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár