Bandaríkin hefja flugskeytaárás á Sýrlandsher Assads

Þetta eru fyrstu árásir Bandaríkja­hers sem beinast beint gegn Sýrlandsher. Til þessa hafa aðgerðirnar beinst gegn ISIS.

Stríðið í Sýrlandi hefur nú staðið yfir í á sjöunda ár. Bandaríkin hafa ekki beitt sér beint gegn sýrlenskum stjórnvöldum fyrr en nú.
Stríðið í Sýrlandi hefur nú staðið yfir í á sjö­unda ár. Banda­ríkin hafa ekki beitt sér beint gegn sýr­lenskum stjórn­völdum fyrr en nú. Mynd: EPA

Bandaríkjaher hefur hafið loft­árásir á valin skotmörk í Sýrlandi en um 50 Tomahawk flug­skeytum var skotið á flugvelli, eldsneytis­birgðir og fleiri hernaðar­lega mikilvæg skotmörk, að því er segir á vef New York Times og breska ríkis­útvarpsins BBC.

Árásirnar eru sagðar svar við efna­vopnaárás á óbreytta borgara í Sýrlandi í síðustu viku, en í henni dóu í það minnsta 72 óbreyttir borgarar, þar á meðal 20 börn. Stað­festar upplýsingar liggja þó ekki fyrir enn, þar sem fólks er enn saknað eftir árásirnar.

Flug­skeytin lentu meðal annars á skotpalli á Shayrat flug­vellinum, nærri borginni Homs, en talið er að efna­vopnunum hafi verið skotið þaðan, að því er segir í frétt breska ríkis­útvarpsins BBC.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur sagt að árásin í Sýrlandi hafi breytt viðhorfi hans til stöðu mála í Sýrlandi, og segir hann framferði stjórnar­hers Sýrlands, undir stjórn Assads forseta, algjör­lega ólíðandi. Mestu bandamenn Sýrlands­hers hafa verið Rússar.

Nikki Haley, sendi­herra Banda­ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, lét hafa eftir sér þegar hún ávarpaði fulltrúa aðildar­ríkja Sameinuðu þjóðanna, að nú væri mælirinn fullur og ekki væri hægt að bíða lengur með aðgerðir gegn Sýrlandsher Assads. „Hversu mörg börn þurfa að deyja áður en Rússar finna til ábyrgðar?“ sagði Haley.

Rex Tillerson, utan­ríkis­ráðherra, lét hafa eftir sér fyrr í dag að Assads hefði ekkert hlutverk í fram­tíðinni í Sýrlandi. Eru þessi orð sögð endur­spegla þá stefnu­breytingu sem orðið hefur í stefnu Trumps þegar kemur að Rússum og Sýrlandi, á síðustu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár