Eignir Jeff Bezos hækkuðu um 1.200 milljarða í gær

Rekstur Amazon gekk betur á fyrstu þremur mánuðum ársins en grein­endur gerðu ráð fyrir. Verð­miðinn hækkaði hratt.

Jeff Bezos, forstjóri og stofnandi Amazon, er ekki á flæðis­keri staddur peninga­lega. Heildar­eignir hans nema nú 134 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 13.500 milljörðum króna.

Hann er lang­ríkasti maður heims og næsti maður á eftir honum, Bill Gates, er með eignir upp á um 90 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 900 milljarða króna.

Eignirnar hækkuðu um 12 milljarða Bandaríkjdala í gær, eða sem nemur um 1.200 milljörðum króna. Bezos á enn tæplega 17 prósent í Amazon og eigna­staða hans að miklu leyti tengd við stöðu Amazon.

Í gær hækkaði gengi bréfa félagsins um 6,3 prósent eftir að uppgjör félagsins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins sýndi sterkari stöðu en grein­endur á markaði höfðu gert ráð fyrir.

Markaðs­virði Amazon nemur nú 780 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 78 þúsund milljörðum króna.

Amazon er nú komið fram úr bæði Microsoft og Google þegar kemur að markaðs­verðmæti, en Apple er verð­mætasta félag heimsins. Verðmiði þess er 829 milljarðar Bandaríkja­dala, eða um 83 þúsund milljarðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár