Mál Julians Assange vindur enn upp á sig – „Réttarfarslegur skandall og farsakenndur“

Bandaríkja­stjórn hefur fengið leyfi til að áfrýja því að Julian Assange skuli ekki fram­seldur frá Bretlandi til Banda­ríkjanna, þar sem hann sætir ákæru fyrir njósnir. Ritstjóri Wikileaks hvetur íslensk stjórn­völd til að beita sér í málinu.

Stella Moris, unnusta Julians Assange, ásamt tveimur sonum þeirra, Max og Gabriel á fimmtugsafmæli hans um helgina.
Stella Moris, unnusta Julians Assange, ásamt tveimur sonum þeirra, Max og Gabriel á fimm­tugs­af­mæli hans um helg­ina. Mynd: EPA

Hæstiréttur í London hefur veitt Bandaríkja­stjórn leyfi til að áfrýja að hluta til þeim dómi sem féll þann 4. janúar síðastliðinn að Julian Assange stofnandi Wikileaks skuli ekki fram­seldur til Banda­ríkjanna vegna heilsufars­ástæðna. Assange hefur nú dúsað í öryggis­fangelsi í Bretlandi í yfir tvö ár.

Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks segir í samtali við Kjarnann að þessi niður­staða komi ekki á óvart en að auðvitað hafi málið áhrif á Assange.

„Það þarf nú einhvern ofur­mannlegan styrk til þess að það geri það ekki. Við þekkjum nú þá sögu hvernig það er að sitja í gæslu­varðhaldi mánuðum saman, hvað þá í þessu tilfelli í rúmlega tvö ár eins og hann hefur þurft að þola núna. Þetta er náttúru­lega algjör­lega óafsakanlegt í réttar­ríki. Honum var varpað í mesta öryggis­fangelsi Bretlands með hryðju­verkamönnum, morðingjum og ofbeldis­fullum glæpa­mönnum. Og hann er látinn dúsa þar í allan þennan tíma á meðan kerfið er að dunda sér við að tefja framvindu málsins árum saman.“

Efuðust um sérfræðiálit

Kristinn segir að dómurinn í janúar hafi fyrst og fremst snúið að heilsu­fari Assange og þeirri áhættu sem framsalið myndi skapa honum. „Og eins hitt að þeir höfðu efasemdir um það að bandaríska fangelsis­kerfið myndi taka þannig við honum að heilsu hans væri ekki hætta búin. Það liggur fyrir að hann þarf að sæta einangrunar­vist á meðan hann bíður réttar­halda í Banda­ríkjunum og ef hann er dæmdur, sem allar líkur eru á, þá mun hann þurfa að dúsa í öryggis­fangelsi í ákveðið langan tíma um ævina.“

Hann bendir á að Bandaríkja­menn hafi efast um læknis­fræðilegt mat á heilsu­fari Assange og gengið býsna nærri því að höggva að trúverðug­leika þeirra sem mátu hann á sínum tíma. „Hitt er að þeir telja sig geta farið mildum höndum og mjúklega í fangelsis­kerfinu sínu og að honum sé engin hætta búin ef hann kemur til Banda­ríkjanna og er dæmdur.“

Taka skal fram að í leyfinu til áfrýjunar var ekki fallist á að Bandaríkja­stjórn gæti áfrýjað á þeim grund­velli að ekki væri mark takandi á álitum sérfræðinga varðandi heilsufar Assange.

Réttarfarslegur skandall

„Það er náttúru­lega mjög sorglegt að enn skuli vera haldið áfram þessu skelfi­lega máli, sem er réttarfars­legur skandall – og farsa­kenndur sem slíkur,“ segir Kristinn. Málið sé dregið áfram svo mánuðum skiptir og ekkert sé hugað að því að maðurinn sitji í varðhaldi á meðan sem frjáls maður. „Þetta er fáheyrt í bresku réttar­kerfi.“

Hann segir að það muni ráðast á næstu dögum hvenær málið verði flutt í réttarsal. „En miðað við gang mála þá verður það væntanlega eftir einhverja mánuði.“

Hvetur íslensk stjórnvöld til að beita sér

Kristinn skoraði á íslenska þingmenn um liðna helgi að láta í sér heyra varðandi þetta mál en þingmenn víðsvegar að úr heiminum hafa látið sig málið varða og mótmælt fangelsun Assange.

„Mér þætti mjög verðmætt að fá þetta inn í umræðuna, ekki síst þegar búið er að varpa ljósi á að þáttur Íslands kemur inn í þessa makalausu sögu,“ segir Kristinn og vísar í umfjöllun Stundarinnar þar sem fram kemur að boð FBI til að hjálpa íslenskur stjórn­völdum árið 2011 að stöðva hóp tölvu­hakkara hafi verið blekking til þess að framkalla aðstöðu á Íslandi til að koma böndum á uppljóstrara­samtökin Wikileaks og stofn­andann Julian Assange.

Hann hvetur enn fremur íslensk stjórn­völd til að beita sér í þessu máli. „Það væri ánægjulegt ef stjórn­völd tækju þetta upp og gerðu eilítið hreint fyrir sínum dyrum – því ekki er búið að gera upp það mál hvernig íslensk stjórn­völd voru þvæld inn í þennan blekkingar­leik sem búinn var til. Það hefur nú verið opinberað að fullu og teygir sig allt frá árinu 2011 fram til 2019.“ Honum finnst alvarlegt að íslensk stjórn­völd hafi látið hafa sig út í málið með þessum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár