Skorar á íslenska þingmenn að mótmæla fangelsun Assange líkt og breskir þingmenn

Julian Assange varð fimmtugur í dag en í tvö ár hefur hann setið í einu mesta öryggis­fangelsi Bretlands. Ritstjóri Wikileaks skorar á íslenska þingmenn að láta í sér heyra.

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks.
Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks. Mynd: EPA

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, skorar á íslenska þingmenn að láta í sér heyra varðandi mál Julian Assange sem dúsar enn í fangelsi í London. Ekki er búið að um það ákvörðun í áfrýjunar­rétti í London hvort Bandaríkja­mönnum verður leyft að áfrýja dómi um að hann verði ekki fram­seldur til Banda­ríkjanna. Á meðan situr hann í mesta öryggis­fangelsi Bretlands.

Þetta kemur fram í stöðu­uppfærslu Kristins á Facebook-síðu hans í gær.

Hann bendir á í færslunni að Jeremy Corbyn, fyrrum leiðtogi Breska verkamanna­flokksins, hafi síðastliðinn þriðjudag ásamt tveimur öðrum breskum þing­mönnum farið að Belmarsh fangelsinu til að afhenta mótmæla­bréf frá þver­pólitískum hópi 20 þingmanna þar sem þess var krafist að þeir fái fund með fanganum Julian Assange. „Það hefur verið hindrað,“ skrifar Kristinn.

Þá bendir ritstjórinn enn fremur á að sama dag hafi 11 þingmenn Ástralíu úr öllum flokkum sent videoákall til Joe Bidens Bandaríkja­forseta um að fella málið gegn Assange niður.

„Deutsche Welle segir fréttir af því í dag að þingmenn allra þýskra flokka (að undan­skyldum öfga­flokknum AfD) hafi sent frá sér yfir­lýsingu þar sem vitnað er í fréttir Stundarinnar og sagt að hún sýni að ásakanir á hendur Julian séu tilbúningur. Skorað er á Biden að stöðva þessar ofsóknir og á Merkel að beita sér fyrir því,“ skrifar Kristinn.

Corbyn tísti í dag, á afmælis­degi Assange, og sagði að Bretland og Banda­ríkin væru ákveðin í að kveða niður óhentug sannindi – það sýndi fangelsun Assange.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár