Björgunarsveit missir bílastæði undir hjólastíg

Flug­björgunar­sveitin í Reykjavík mun á næstunni missa aðgang að bíla­stæðum við höfuð­stöðvar sínar, en vegna uppbyggingar húsnæðis við rætur Öskju­hlíðar þarf að færa göngu og hjólastíg á svæðið sem nýtt hefur verið sem bílastæði.

Um það bil svona mun nýr göngu og hjólastígur við rætur Öskjuhlíðarinnar tengjast inn að hverfinu við Hlíðarenda, en til stendur að byggja húsnæði ofan á núverandi legu stígsins.
Um það bil svona mun nýr göngu og hjóla­stígur við rætur Öskju­hlíð­ar­innar tengj­ast inn að hverf­inu við Hlíð­ar­enda, en til stendur að byggja hús­næði ofan á núver­andi legu stígs­ins. Mynd: Kort af Já.is sem blaðamaður teiknaði inná í Paint

Flug­björgunar­sveit Reykja­víkur, sem er með aðstöðu við Flugvallarveg í Vatnsmýri, hefur um lengri tíma haft afnot af bíla­stæðum á landi Reykja­víkurborgar vestan við húsnæði sveitarinnar, en það mun senn breytast.

Fulltrúar meirihlutans í umhverfis- og skipulags­ráði borgarinnar samþykktu í síðustu viku breytingar á deili­skipulagi, sem fela í sér að einn mest notaði göngu- og hjóla­stígur borgarinnar verði færður inn á svæði sem notað hefur verið sem bílastæði sveitarinnar með þeim afleiðingum að sveitin tapi ⅔ af því plássi sem hún í dag hefur undir ökutæki.

Flug­björgunar­sveitin er ekki sátt með þetta, furðaði sig á samráðs­leysi áður en tillagan var lögð fram í sumar og gerði kröfu í umsögn sinni um að skipulags­tillagan yrði dregin til baka eða þá breytt á þann veg að stígurinn yrði sveigður ögn, þannig að enn yrði hægt að nýta svæðið undir bílastæði.

Það var hins vegar ekki möguleiki, samkvæmt því sem fram kemur í svari skipulags­fulltrúa borgarinnar, þar sem þá hefði stígurinn færst inn á lóð við horn Flugvallar­vegar og Naut­hólsvegar.

Þar stendur til að byggja húsnæði, en afmörkuð hefur verið lóð á horninu innan skipulags­svæðis háskóla­garða HR. Það var raunar gert árið 2017 og því hefur legið ljóst fyrir í mörg ár að þennan stíg þyrfti að færa á einhverjum tíma­punkti.

Samningi borgarinnar og Flug­björgunar­sveitarinnar um afnot af svæðinu undir bílastæði var sagt upp af hálfu borgarinnar árið 2019, gegn mótbárum Flug­björgunar­sveitarinnar, sem þó hefur áfram nýtt svæðið undir bílastæði síðan þá og mun fyrir­sjáanlega geta gert það um einhvern tíma til viðbótar, eða þar til framkvæmdir við færslu stígsins hefjast.

Telja hætt við að félagsmenn hætti að mæta í útköll ef þeir geti hvergi lagt

Flug­björgunar­sveitin sagði í umsögn sinni að félagar sveitarinnar ferðuðust oftast í einka­bílum að húsnæði og að með ónógum bíla­stæðum væri hætt við að félags­menn hættu við að mæta í fjölmenn útköll og æfingar.

Nefndi sveitin að erfitt væri að notast við aðrar samgöngur en einka­bílinn þar sem útköll kæmu á öllum tímum sólar­hrings og gætu staðið lengi yfir. Þá kæmi fólk í útköll frá vinnu, heimili, skóla eða tómstundum og útköll kæmu oft þegar veður væru það slæm að almennings­samgöngur væru lokaðar.

Meirihlutinn sagði nauðsynlegt að eiga gott samráð við sveitina

Auk þess að krefjast aftur­köllunar tillögunar, eða sveigju á fyrir­hugaðan stíg, lagði Flug­björgunar­sveitin einnig til að sveitin fengi afnot af lóð innan þess svæðis þar sem bíla­leigan Hertz er með stöðu­leyfi fyrir starfsemi sína við Flugvallarveg. Segir sveitin að rekstur bílaleigu falli illa að tilgangi svæðisins samkvæmt aðal­skipulagi borgarinnar.

Hvort sá kostur verði tekinn til skoðunar skal ósagt látið, en í bókun á fundi umhverfis- og skipulags­ráðs sagði meirihlutinn að nauðsynlegt væri að eiga „gott samráð við Flug­björgunar­sveitina um aðstöðumál fyrir þessa mikilvægu og nauðsyn­legu starfsemi“.

Sjálfstæðismenn vildu fresta málinu

Ekki voru allir á einu máli um ágæti þess að ráðast í skipulags­breytingarnar, á fundi umhverfis- og skipulags­ráðs í síðustu viku. Marta Guðjóns­dóttir og Kjartan Magnússon, fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins í ráðinu, settu fram tillögu þess efnis að afgreiðslu málsins yrði frestað, en henni var hafnað.

Í sameiginlegri bókun Mörtu, Kjartans og Ástu Þórdísar Skjalddal Guðjóns­dóttur, áheyrnar­fulltrúa Sósíalista­flokksins, sagði að fulltrúarnir teldu mikilvægt að koma til móts við óskir Flug­björgunar­sveitarinnar um bílastæðamál.

„Flug­björgunar­sveitin gegnir mikilvægu hlutverki í þágu almanna­heilla og eðli starfseminnar felur það í sér að björgunar­sveitafólk hafi aðgang að umræddri björgunar­miðstöð á öllum tímum sólar­hringsins. Fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins lögðu til að afgreiðslu málsins yrði frestað á meðan rætt væri við Flug­björgunar­sveitina um lausnir á bílastæða­málum hennar. Við hörmum að meirihlutinn hafi fellt slíka tillögu um frestun máls í því skyni að eiga eðlilegt samráð við aðila, sem á ríkra hagsmuna að gæta í málinu,“ sagði í bókun þeirra.

Kolbrún Baldurs­dóttir áheyrnar­fulltrúi Flokks fólksins bókaði einnig um málið. „Bílastæði hafa þegar verið skorin mikið niður. Varast ber að ganga of langt í þessu sem öðru. Gæta þarf meðalhófs. Er hægt að finna lausn sem allir geta sætt sig við? Þetta er vissulega gömul ákvörðun en þeim má breyta eins og nýjum. Best væri að fresta þess og eiga „samtal“. Vika eða vikur til eða frá skipta ekki sköpum í þessu máli,“ lét Kolbrún bóka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár