Framsóknarmenn fúlsa við grænmetisfæði á jólum

Flestir landsmenn ætla að borða hamborgara­hrygg á aðfangadag en aðeins 4,4 prósent grænmetis­fæði. En þegar rýnt er í könnun Maskínu á jóla­matnum koma skemmtilegar (og pólitískar) tengingar í ljós.

Hægt er að töfra fram girnilega kjötlausa rétti fyrir hvert tækifæri.
Hægt er að töfra fram girni­lega kjöt­lausa rétti fyrir hvert tæki­færi. Mynd: Pexels

Rúm 43 prósent lands­manna ætla að borða Hamborgar­hrygg á aðfangadags­kvöld samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Hamborgar­hryggur, sem er hryggur úr svíni, er því lang­vinsælasti jólamatur Íslendinga líkt og verið hefur síðustu ár. Lamba­kjötið, þar með talið hangikjöt, kemur þar á eftir en þó ætla aðeins um 15 prósent lands­manna að neyta þess. Fuglakjöt er einnig nokkuð vinsælt. Kalkúnn verður að öllum líkindum á borðum tæplega 11 prósent lands­manna á aðfangadags­kvöld og 6,4 prósent ætla að borða rjúpur.

Þessar niður­stöður koma ekki sérstak­lega á óvart. Það sem hins vegar má segja að veki einna mesta athygli er að þessi jólin ætla 4,4 prósent lands­manna að borða grænmetis­fæði, jafnmargir og hyggjast borða hreindýra­kjöt.

Nautakjöt og grænmetisfæði sækja á

Hamborgar­hryggur nýtur yfir­gnæfandi vinsælda miðað við þetta en þó hafa þær dvínað nokkuð síðustu ár. Þannig sögðu um 53 prósent þátt­takenda í könnun árið 2010, eða fyrir rúmum tveimur áratugum, að hamborgar­hryggur yrði fyrir valinu á aðfangadags­kvöld. Vinsældirnar hafa því dalað um 10 prósent.

Ekki er sérstakur munur á vinsældum annarra kjöt­tegunda síðustu tvo áratugi en þó má sjá að lambakjöt annað en hangikjöt hefur sótt nokkuð í sig veðrið þótt munurinn frá árinu 2010 (8 prósent) og 2022 (11 prósent) sé vissulega ekki mikill. Sömu sögu er að segja um nautakjöt en 6 prósent lands­manna ætla að borða slíkt kjöt á aðfangadags­kvöld saman­borið við 2 prósent árið 2010.

Hástökk­varinn hlýtur að vera grænmetis­fæðið. Vissulega er fjöldinn sem það hyggst borða í aðalrétt á aðfangadags­kvöld enn ekki sérstak­lega mikill en hann hefur þó farið úr 1 prósenti árið 2010 í rúm 4 prósent í ár.

Og þegar rýnt er nánar í hverjir það eru sé ætla að borða grænmetismat kemur áhugaverð mynd í ljós.

Konur eru líklegri til að velja grænmetis­fæði á diskinn sinn á aðfangadags­kvöld. Um 7 prósent þeirra kjósa slíkt en aðeins 2 prósent karla. Þegar rýnt er í aldur þátt­takenda í könnun Maskínu kemur svo enn ein skýr birtingar­mynd fram því heil tíu prósent fólks yngra en 30 ára ætlar að borða grænmetismat. Flestir sem velja grænmetis­fæðið búa á höfuð­borgar­svæðinu en fæstir (í raun enginn sem svaraði könnuninni) á Vestur­landi, Vestfjörðum og Austur­landi.

Tekju­lægra fólk er líklegra til að velja grænmetismat sem skýrist sjálfsagt af því að þetta er yngra fólk, margt enn í námi.

Sósíalistar velja grænmetisrétti

Að síðustu er eftirtektar­verð að skoða val á jólamat og stjórnmála­skoðanir. Þátt­takendur voru spurðir hvaða flokk þeir myndu kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Kjósendur Flokks fólksins eru ekkert að flækja hlutina. Langflestir þeirra eða 63 prósent velja svína­kjötið. Og enginn ætlar að borða grænmetis­rétt.

Fram­sóknarmenn vilja einnig sitt svín eða lamb og enginn þeirra – 0 prósent – ætla að snæða grænmetis­fæði á aðfangadags­kvöld. Svipaða sögu er að segja af kjósendum Miðflokksins en það kemur þó skemmtilega á óvart að 2 prósent þeirra kjósa grænmetismat.

12 prósent kjósenda Pírata ætla að fá sér grænmetis­rétt en flestar grænmetis­æturnar eru þó kjósendur Sósíalista­flokksins en 17 prósent þeirra munu innbyrða slíkan mat nú um jólin. Aðeins hamborgar­hryggurinn er vinsælli í þessum hópi.

Allt þetta á við um aðfangadags­máltíðina en allt önnur mynd birtist á vinsælda­lista jóladags­matarins. Þar á hangikjötið skuld­laust vinninginn meðal kjöt­ætanna því 63,7 prósent lands­manna ætla samkvæmt könnuninni að snæða slíkt. Grænmetis­æturnar ætla að halda sínu striki því jafnmargar þeirra og reyndar ívið fleiri eða um 4,6 prósent ætla að borða grænmetis­rétt á jóladag, rétt eins og á aðfangadag.

Um könnunina

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e.panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá á netinu. Svarendur eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mann­fjöldatölum Hagstofunnar um kyn, aldur og búsetu, þannig að þau endur­spegla þjóðina prýðilega, segja rann­sakendur Maskínu. Könnunin fór fram frá 16. til 20. desember og voru svarendur 967 talsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár