Hætta talin á upplausn í Bosníu og Hersegóvínu

Bosníu-Serbar hafa fyrir­ætlanir um að draga sig út úr lykil­stofnunum Bosníu og Hersegóvínu, hernum, skattinum og dóms­valdinu, og stofna sínar eigin. Viðkvæmur friðurinn sem náðist fram með Dayton-samkomu­laginu er talinn í hættu vegna þessa.

Milorad Dodik leiðtogi Bosníu-Serba.
Milorad Dodik leið­togi Bosníu-Serba. Mynd: EPA

Blikur eru á lofti í Bosníu og Hersegóvínu, samkvæmt nýlegri skýrslu æðsta sendi­fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í landinu, Christian Schmidt. Hann segir ríkið í reynd standa frammi fyrir mestu tilvistarógn sinni frá lokum hins blóðuga borgara­stríðs sem stóð frá 1992-1995 og að án viðbragða alþjóða­samfélagsins sé möguleiki á því að Dayton-friðar­samkomu­lagið trosni upp – og þar með stoðir hins sameinaða ríkis.

Ástæðan fyrir þessum áhyggjum Schmidts eru nýlegar gjörðir og yfir­lýsingar æðstu ráðamanna Serba innan bosníska ríkisins. Fyrr í haust lýsti Milorad Dodik, sem er forseti serbneska þjóðar­brotsins í hinu þrískipta forseta­embætti Bosníu, því yfir að ætlan Serba væri að kljúfa sig frá sameiginlegum stofnunum ríkisins – skattinum, æðsta dómstólnum og hernum – og stofna sínar eigin.

Í skýrslu Schmidts til öryggis­ráðs Sameinuðu þjóðanna undir lok október­bermánaðar segir að stofnanir Bosníu og Hersegóvínu hafi í reynd verið „lamaðar“ alveg frá því í júlí á þessu ári vegna fyrir­ætlana Serba um að hætta þátttöku í ákvarðana­töku innan þeirra.

Það segir Schmidt að virðist hafa verið svar við ákvörðun fyrirrennara hans í starfi, Valentin Inzko, um að gera afneitun á þjóðar­morðum og stríð­glæpum og upphafningu stríðs­glæpamanna saknæma í landinu.

Þá ákvörðun kallaði Dodik „síðasta naglann í líkkistu Bosníu og Hersegóvínu“ og hefur síðan þá viðhaft ýmsa tilburði sem benda til þess að af hálfu Serba sé stefnan sett á upplausn Bosníu og Hersegóvínu.

Schmidt segir í skýrslunni að möguleiki á átökum sé fyrir hendi ef fram haldi sem horfir og eindregin varnaðarorð hans og þróun mála í Bosníu að undan­förnu hafa vakið ugg víða.

Dodik segir þó í nýju viðtali við Reuters að hann sé „ekki tilbúinn að fórna friði í landinu undir nokkrum kringum­stæðum“ og að aðskilnaður serbneska lýðveldisins frá sameiginlegum lykil­stofnunum ríkisins geti orðið frið­samlegur.

„Óábyrgt og óásættanlegt“

Ekki eru allir jafn sann­færðir um það. Þýski utan­ríkis­ráðherrann Heiko Maas sagði í gær við bosnískan vefmiðil að Þýskaland myndi hætta fjárhags­legum stuðningi við Bosníu og Hersegóvínu, ef ekki yrði fallið frá „óábyrgum og óásættanlegum“ áformum sem stuðluðu að eyði­leggingu bosníska ríkisins, samkvæmt endursögn Reuters.

Ráðherrann sagði sömuleiðis að þýsk stjórn­völd fylgdust náið með gangi mála í Bosníu og Hersegóvínu, ásamt öðrum ríkjum Evrópu­sambandsins, Bandaríkja­mönnum og Bretum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár