Norður-Kórea sendir lið á Ólympíuleikana í Suður-Kóreu

Vetrar­ólympíu­leikarnir í Suður-Kóreu hefjast í febrúar.

Ólympíu­andinn virðist vera að spila lykil­hlutverk í því að liðka fyrir samskiptum Norður-Kóreu og Suður-Kóreu. Norður-Kórea hefur ákveðið að senda lið til keppni á vetrar­ólympíu­leikana sem hefjast í Suður-Kóreu í febrúar, en samkvæmt frásögn breska ríkis­útvarpsins BBC voru viðræðurnar á milli landanna, vegna þátttöku á leikunum, teknar alvarlega og voru þær jafnframt þær fyrstu í tvö ár.

Norður-Kórea mun senda keppnis­fólk, opinbera sendi­herra og stuðnings­fólk, af því er fram kemur í umfjöllun BBC.

Mikil spenna hefur verið á Kóreu­skaga síðustu árin vegna tilrauna Norður-Kóreu með lang­drægar flaugar, en þeim hefur meðal annars ítrekað verið skotið inn í lögsögu Suður-Kóreu og Japan, þó þær hafi endað á hafi úti.

Síðustu efnahags­þvinganir Sameinuðu þjóðanna voru þær, að hefta 90 prósent af olíflutningum til Norður-Kóreu, og koma þannig í veg fyrir að annars verulega laskað hagkerfi landsins geti virkað eðlilega.

Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa sagt þessa þvinganir jafngilda stríðs­yfirlýsingu og hafa krafist þess að af þeim verði látið. Allar þjóðirnar fimmtán sem eiga aðild að öryggis­ráði Sameinuðu þjóðanna studdu þvinganirnar.

Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur sagt að tilraunum með kjarnorku­vopn muni ekki linna, alveg sama hvað aðrar þjóðir - með Banda­ríkin í broddi fylkingar - segi. Þær séu hluti af varnar­stefnu landsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár