„Ég vildi ekki vera stelpan sem öskraði stopp“

Yfir helmingur þeirra sem vinna innan sviðs­lista á Íslandi hafa orðið fyrir kynferð­is­legri áreitni í starfi eða í tengslum við það. Á íslenskum vinnu­markaði almennt er sú tala 16%. Hver er staða nándar­þjálfunar á Íslandi? „Ég var svo varnar­laus, þar sem leik­stjórinn (kk) samþykkti þetta allt,“ kom fram í einni sögunni í yfir­lýsingunni Tjaldið fellur árið 2017. Hér er rætt er við leikara og aðra sem þekkja til.

Á síðustu árum hafa fjölmargir stigið fram og þá sérstak­lega konur og lýst kynferðis­ofbeldi sem þær hafa lent í við tökur á kvik­myndum. Nýtilkomið hlutverk nándar­þjálfa er sérstak­lega ætlað að sporna við því. Á sama tíma og almenn viðbrögð eru jákvæð er þessi nýjung þó langt í frá orðinn sjálf­sagður hlutur. Margt kemur þar til greina, ekki síst peninga­skortur og eðli iðnaðar sem þarf að berjast fyrir hverju einasta verkefni.

Tjaldið féll

Í kjölfar #metoo hreyfingarinnar opnuðust flóð­gáttir í íslensku samfélagi þar sem konur sögðu sögur sínar af kynferðis­ofbeldi og áreitni sem þær höfðu orðið fyrir. Hreyfingin skók alla anga samfélagsins og voru áberandi sögur kvenna í sviðs­listum og kvik­myndagerð. Síðla árs 2017 skrifuðu 600 konur undir yfir­lýsingu sem birt var undir nafninu Tjaldið fellur en yfir­lýsingunni fylgdu 62 sögur af kyn­ferð­islegu ­of­beldi, áreitni og kynbundinni mis­mun­un. Í mörgum tilfellum er þar um að ræða atvik sem hafa …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár