„Við gerðum bara gott úr þessu“

Skip­stjórinn á Heinaste sem var hand­tekinn og settur í farbann í Namibíu um síðustu jól segist hafa viljað vera þar í landi á öðrum forsendum. Hann hafi þó ekki látið það trufla sig en hann og eiginkona hans notuðu tækifærið og ferðuðust um landið.

Arngrímur Brynjólfsson
Arn­grímur Brynj­ólfs­son Mynd: Skjáskot

„Það er eitt sem ég rak mig á en það var að sú mynd sem dregin var upp í fjöl­miðlum var oft mjög villandi eða beinlínis röng. Fólk var alltaf að hafa samband og ég þurfti alltaf að vera að útskýra að ég hefði það bara fínt. Þetta var í rauninni bara eins og ég hefði flutt til Namibíu í smá tíma.“

Þetta segir Arngrímur Brynjólfsson skip­stjóri en viðtal við hann birtist á vefsíðu Samherja í dag. Hann fagnar í dag 68 ára afmæli. Hann komst í fjölmiðla þegar hann var skip­­stjóri á skip­inu Heina­­ste, sem Sam­herji gerði út við strendur Namib­­íu, en hann var dæmdur í byrjun febrúar til að greiða sekt vegna ólög­legra veiða. Hann segist hafa lært ýmislegt eftir dvölina í Namibíu.

Arn­grímur var hand­­tek­inn þann 20. nóv­­em­ber síðastliðinn, rúm­­lega viku eftir að afhjúp­andi umfjöllun Kveiks, Wik­i­­leaks og Al Jazeera, hafði birst, þar sem fjallað var um starf­­semi Sam­herja í Namib­­íu, og meintar mút­u­greiðsl­­ur, skattaund­an­­skot og pen­inga­þvætti – en þessi mál eru nú til rann­­sókn­­ar, meðal ann­­ars á Íslandi, í Nor­egi og einnig í Namibíu og Angóla.

Skip­stjórinn ját­aði sök en málið snérist um það að skipið sem hann stýrði hefði verið við veiðar á hrygn­ing­­ar­­svæði undan ströndum Namib­­íu. Arn­grímur hafði verið í far­­banni frá því málið kom upp, og þurfti að reiða fram um 850 þús­und krónur í trygg­ingu, þar til dómur féll í máli hans í byrjun febrúar.

Málið sjálft tóm steypa

Arngrímur segist í viðtalinu sem birtist í dag vera ánægður með að hafa haldið haus allan tímann og að hann hafi alltaf verið bjartsýnn. „Það var í raun ekki fyrr en ég kom heim til Íslands sem ég fór eitthvað að velta þessu fyrir mér í alvöru.“ Arngrímur segir að málið sjálft hafi verið tóm steypa enda hafi Heinaste aldrei veitt innan lokaðs svæðis. „Það var bara teiknuð ný lína í lögsögu Namibíu.“

Hann segist jafnframt hafa notað dvölina í Namibíu á uppbyggilegan hátt en hann notaði tækifærið og ferðaðist um landið ásamt Jóhönnu Magnúsdóttur, eiginkonu sinni, sem flaug út til hans. „Við fórum í langt ferðalag. Við settumst upp í bíl og keyrðum um Namibíu. Þetta land kom mér á óvart. Ég hélt nú ekki að ég gæti heillast af sandi en þetta var alveg ótrúlegt. Ég hafði fyrst einhverjar efasemdir en það eina sem maður þurfti að aðlagast var að þarna er vinstri­umferð og maður náði nú fljótt tökum á henni. Þetta er eitt öruggasta landið í Afríku fyrir ferðamenn. Maður hefði kannski viljað vera þarna á öðrum forsendum en maður lét það ekkert trufla sig. Við gerðum bara gott úr þessu,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár