Dæmdur til að greiða milljóna sekt eða sitja tólf ár í fangelsi

Íslenskur skip­stjóri á skip­inu Heina­ste var dæmdur í dag til að greiða 7,9 millj­ónir króna í sekt eða sæta tólf ára fang­els­is­vist vegna ólög­legra veiða.

Arngrímur Brynjólfsson
Arn­grímur Brynj­ólfs­son Mynd: Skjáskot

Arn­grímur Brynj­ólfs­son skip­stjóri á skip­inu Heina­ste, sem Sam­herji gerði út við strendur Namib­íu, var dæmdur í dag til að greiða 7,9 millj­ónir króna í sekt eða sæta tólf ára fang­els­is­vist vegna ólög­legra veiða. Kröfu ákæru­valds­ins um að fá að leggja hald á fiski­skipið Heinaste sem hann stýrði var vísað frá dómi. The Namibian Sun greinir frá í dag á Twitter.

Fram kom í fréttum í lok jan­úar að Arn­grímur hefði játað sök vegna ásak­ana um ólög­legar veið­ar.

[adspot]

Í yfir­lýs­ingu sem Arn­grímur sendi frá sér, skömmu eftir að hann var hand­tek­inn, sagð­ist hann hafa verið í sinni síð­ustu sjó­ferð sem skip­stjóri, en hann er 67 ára gam­all. Hann sagð­ist hafa verið í góðri trú um að veið­arnar hafi verið lög­leg­ar, og utan bann­svæð­is.

Arn­grímur var hend­tek­inn 20. nóv­em­ber, rúm­lega viku eftir að afhjúp­andi umfjöllun Kveiks, Wiki­leaks og Al Jazeera, hafði birst, þar sem fjallað var um starf­semi Sam­herja í Namib­íu, og meintar mútu­greiðsl­ur, skattaund­an­skot og pen­inga­þvætti, en þessi mál eru nú til rann­sókn­ar, meðal ann­ars á Íslandi, í Nor­egi og einnig í Namibíu og Angóla.

Arn­grímur ját­aði sök, eins og áður seg­ir, en málið snérist um það, að skipið sem hann stýrði hefði verið við veiðar á hrygn­ing­ar­svæði undan ströndum Namib­íu.

Arn­grímur hefur verið í far­banni frá því málið kom upp, og þurfti að reiða fram um 850 þús­und krónur í trygg­ingu, þar til dómur myndi falla í máli hans. Tog­ar­inn var kyrr­settur af namibískum yfir­völdum og er það staða mála enn þann dag í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár