Niðurgreiðsla tannlæknakostnaðar hjá öldruðum og öryrkjum stóraukin

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra und­ir­rit­aði reglu­gerð í síð­ustu viku sem felur í sér að Sjúkra­trygg­ingar Íslands munu hér eftir greiða að fullu fyrir tann­lækna­þjón­ustu öryrkja og aldr­aðra sem eru lang­sjúkir og dvelj­ast á sjúkra­húsum og hjúkr­unar­heim­ilum.

Frá og með 1. sept­em­ber munu Sjúkra­trygg­ingar Íslands greiða að fullu fyrir tann­lækna­þjón­ustu öryrkja og aldr­aðra sem eru lang­sjúkir og dvelj­ast á sjúkra­húsum, hjúkr­unar­heim­ilum eða hjúkr­un­ar­rýmum á öldr­un­ar­stofn­unum. Munu greiðslur til sjúkra­tryggða nema 100 pró­sentum af gjald­skrá Sjúkra­trygg­inga Íslands hjá þessum hópi en 50 pró­sentum hjá öðrum öryrkjum og öldruðum. 

Þetta felst í nýlegri reglu­gerð sem Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra setti eftir að und­ir­rit­aður var þriggja ára ramma­samn­ingur um tann­lækn­ingar fyrir aldr­aða og öryrkja. Ekki hefur verið í gildi slíkur samn­ingur síðan 2004 þegar síð­asti samn­ingur, frá 1999, rann út. Frá þeim tíma hefur verið í gildi sér­stök end­ur­greiðslu­gjald­skrá sem greiðslu­þátt­takan hefur byggt á. Í ljósi þess að skráin fylgdi ekki verð­lags­þróun rýrn­aði greiðslu­þátt­takan með árunum og fór niður í um 27 pró­sent af raun­kostn­aði. Líklega er þetta á meðal helstu ástæðna þess að und­an­farin ár hefur mun hærra hlut­fall tekju­lágra neitað sér um tann­við­gerðir á Íslandi heldur en á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Með nýjum samn­ingi og reglu­gerð ráð­herra mun greiðslu­þátt­taka Sjúkra­trygg­inga hækka upp í 50 pró­sent og 100 pró­sent hjá þeim lang­sjúku sem reiða sig á hjúkr­un­ar­rými. Að því er fram kemur á vef Sjúkra­trygg­inga Íslands má ætla að þessi aukni stuðn­ingur við aldr­aða og öryrkja kosti um millj­arð á árs­grund­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár