Yfirmaður Max mála hjá Boeing rekinn

Tilkynnt var um brott­reksturinn á stjórnar­fundi Boeing í San Antonio í Texas. Forstjóri félagsins hrósaði Kevin McAllister fyrir vel unnin störf.

Kevin McAllister, yfirmaður farþegaþotu­framleiðslu Boeing, þar með talið 737 Max vélanna, hefur verið rekinn. Tilkynnt var um brott­reksturinn eftir stjórnar­fund Boeing í San Antonio í Texas í dag.

Dennis Muilenburg, forstjóri félagsins, sagði í tilkynningu að McAllister hefði sinnt sínu starfi óaðfinnalega og af einurð á tíma sínum hjá Boeing, en nú væri komið að leiðar­lokum. Við starfi hans tók Stan Deal, sem starfað hefur lengi hjá Boeing og nú síðast sem yfirmaður þjónustu félagsins.

Í umfjöllun Seattle Times segir að Deal hafi mikla reynslu af fram­leiðslu Boeing á Seattle svæðinu, og muni hafa yfir­umsjón með fram­leiðslu og uppfærslu á 737 Max vélunum. Er talið að Boeing vilji með þessu reyna að ávinna traust hjá bandarískum flugmála­yfirvöldum, sem nú eru að meta hvenær mögulegt verður að aflétta kyrr­setningu á Max vélunum, sem verið hefur í gildi frá því í lok mars þessu ári. Flugslys, fyrst 29. október í Indónesíu og síðan 13. mars í Eþíópíu, hafa verið rakin til galla í Max vélunum, en 346 létust í slysunum, allir um borð í báðum vélunum.

Kyrr­setningin hefur haft gríðarleg áhrif. Ekki bara á Boeing heldur ekki síður flug­félögin sem reiða sig á Max vélarnar í flugi, og er Icelandair þar á meðal, eins og fram hefur komið.

Áætlanir gera ráð fyrir að vélarnar geti komist í loftið í janúar, en í samtali við Reuters í gær sagði yfirmaður hjá flugmála­yfirvöldum í Evrópu að horft sé til þess að aflétting á kyrr­setningu geti komið til í janúar, en það sé þó erfitt að segja til um það. Líklegt sé að ákvörðunin um alþjóð­lega afléttingu á kyrr­setningu muni koma í beinu samhengi við ákvörðun bandarískra flugmála­yfirvalda, sem vinna að nákvæmri rannsókn á Max vélunum og framleiðslu­ferli Boeing.

Markaðs­virði Boeing, sem er stærsta útflutnings­fyrirtæki Banda­ríkjanna, er nú 189 milljarðar Bandaríkja­dala, og hefur það lækkað um 30 prósent frá því að Max vélarnar voru kyrr­settar.

Markaðs­virði Icelandair er nú um 32 milljarðar, en markaðs­virðið hækkaði um tæplega 6 prósent í dag. Þrátt fyrir það þá hefur markaðs­virðið lækkað um 42 prósent frá því að Max vélarnar voru kyrr­settar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár