Viðskiptastríð Trumps við Kínverja rétt að byrja

Greint var frá því í dag að Donald Trump vilji herða enn frekar á tollum gagnvart innfluttum vörum frá Kína.

Donald Trump, Bandaríkja­forseti, segir tilbúinn að grípa til enn hertari tolla gagnvart Kínverjum. Nú þegar hefur hefur Bandaríkja­stjórn ákveðið að leggja á viðskipta­tolla á innflutning frá Kína upp á 267 milljarða Bandaríkja­dala á ársgrundvelli, eða sem nemur tæplega 30 þúsund milljörðum króna.

Tollar beinast að svo til öllum innflutningi frá Kína, en Kínverjar hafa svarað með því að leggja tolla á einkum landbúnaðar­afurðir frá Banda­ríkjunum. Kínversk stjórn­völd hafa sagt að þau vilji ekki viðskipta­stríð við Banda­ríkin og hafa mótmælt aðgerðum Banda­ríkjanna harðlega, meðal annars á vettvangi Alþjóða­viðskipta­stofnunarinnar (WTO).

Bloomberg hefur eftir sérfræðingum á fjármála­markaði, að fjár­festar í Banda­ríkjunum séu almennt ekki hlynntir aðgerðum Trumps. Samtals nafn innflutningur frá Kína ríflega 500 milljörðum Bandaríkja­dala í fyrra, samkvæmt umfjöllun Bloomberg, en tollarnir hafa í mörgum tilfellum leitt til erfið­leika í fram­leiðslu í Banda­ríkjunum vegna aukins kostnaðar.

Hörðustu andstæðingar tollana, ekki síst innan Repúblikana­flokksins, segja Trump ýta undir öfuga hagsmuni með því að setja tollana á og hækka þá. Þeir grafi undan samkeppnis­hæfni í Banda­ríkjunum og leið í raun til þess að störf tapist í Banda­ríkjunum. Fyrirtæki hagnist ekki nægilega vel á þeim.

Trump segist hins vegar óhræddur við að beita viðskipta­tollum áfram. Það sé liður í að styrkja bandaríska hagkerfið, og örva bandaríska fram­leiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár