Breska þinginu lokað – lögregla talar um hryðjuverkaárás

Lögreglan í London segir árás á Westminster vera meðhöndlaða sem hryðju­verk þangað til annað kemur í ljós.

Lögreglu­maður var stunginn fyrir framan Westminster, þinghúsið í London, fyrir skömmu. Árásar­maðurinn var skotinn af lögreglunni. Lögreglan í London segir að litið sé á málið sem hryðjuverka­árás þangað til annað kemur í ljós.

Búið er að stöðva þingfund en þingmenn og aðrir í þing­húsinu voru beðnir um að halda kyrru fyrir. Forseti neðri deildar þingsins sagði við þingmenn þegar þing­fundurinn var stöðvaður að alvarlegt atvik hefði átt sér stað. Þá hafi borist fréttir af frekari ofbeldis­verkum í nágrenninu.

Fjöl­miðlar í Bretlandi hafa greint frá því að fólk sé sært á Westminster-brúnni við þinghúsið, en fregnir herma að ekið hafi verið á gangandi vegfarendur á brúnni. Hægt er að sjá á loft­myndum að verið er að sinna fólki sem liggur á brúnni. Sky frétta­stofan hefur greint frá því að staðfest hafi verið að fjöldi sjúkra­bíla hafi verið sendur að brúnni.

Sjónar­vottar sem Sky hefur rætt við segja að karlmaður á miðjum aldri hafi ekið á um það bil fimm gangandi vegfarendur áður en bílnum var ekið að þing­húsinu. Maðurinn hafi reynt að komast inn á lóðina, hafi verið stöðvaður af lögreglu og þá hafi hann stungið lögreglu­mann. Hann hafi þá verið skotinn. Þó er því haldið til haga að mögulega hafi um tvo mismun­andi einstaklinga að ræða, annar hafi ekið á fólk á brúnni en annar stungið lögreglu­mann.

Verið er að hlúa að báðum mönnunum fyrir framan þinghúsið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár