5 látnir, 40 særðir og hættustig hækkað í London

Árás í London vakti óhug. Umfangs­miklar aðgerðir lögreglu á vettvangi enn í gangi. Grunur um að fleiri árásir gætu fylgt í kjölfar þeirrar frá því í dag.

Staðfest hefur verið að fimm hafi látið lífið og 40 særst eftir árás við breska þingið í London í dag. Lundúna­lögreglan tilkynnti þetta á fundi með blaða­mönnum klukkan sex í dag að íslenskum tíma.

Árásar­maðurinn er einn af þeim látnu en hann ók á hóp fólks á Westminister-brúnni áður en hann stökk út úr bílnum og stakk lögreglu­mann með stórum hníf, að sögn sjónar­votta sem breska ríkis­útvarpið BBC vísar til.

Þing­húsinu var lokað og Theresa May forsætis­ráðherra fór strax í skjól af vettvangi og til fundar við helstu yfirmenn þjóðar­öryggismála í landinu. Í yfir­lýsingu sagði hún að Bretar stæðu sameinaðir gegn hryðjuverkaógn. „Við munum halda lífi okkar áfram á morgun, við látum ekki beygja okkur,“ sagði hún í ávarpi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár