Íran gerði árásir á herstöðvar Bandaríkjamanna í Írak

Pentagon, varnarmála­ráðuneyti Banda­ríkjanna, hefur staðfest að her Írans hafi gert flugskeyta­árásir á herstöðvar í Írak þar sem bandarískir hermenn halda sig.

Varnarmála­ráðuneyti Banda­ríkjanna, Pentagon, segir í yfir­lýsingu, sem birt var fyrir stundu, að Íran hafi geri flugskeyta­árás á herstöðvar í Írak, Asad og Erbil, þar sem bandarískir hermenn halda sig.

Engar fréttir hafa verið stað­festar um mannfall eða skemmdir, eða hvort bandaríski herinn hafi varist árásunum, að því er segir í umfjöllun New York Times.

Fjöl­miðlar í Íran greindu fyrst frá árásunum, sem sagðar voru hefndar­aðgerðir fyrir morðið á Qassim Suleimani, æðsta hers­höfðingja Írans, en Donald Trump Bandaríkja­forseti fyrir­skipaði það.

Samkvæmt umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC þá hækkaði verð á hráolíu um 4,5 prósent, á mörkuðum í Asíu, við tíðindin af árás Íran.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár