Tímabil lágrar verðbólgu, lágra vaxta og hás verðs hlutabréfa tekur enda – allavega í bili

Gylfi Zoega segir að nú taki við tímabil meiri verðbólgu, hærri vaxta og lægra eigna­verðs en hann fjallar um verðbólgu í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Gylfi Zoega
Gylfi Zoega Mynd: Kjarninn.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði og nefndar­maður í peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans, segir að útlit sé fyrir að seðla­bankavextir muni hækka enn frekar á næstu mánuðum. Vextir í Banda­ríkjunum séu á uppleið, einnig í Bretlandi og í mörgum minni hagkerfum sem hafa sjálf­stæða mynt.

Þetta kemur fram í grein sem hann ritar í nýjustu Vísbendingu þar sem hann fjallar um verðbólgu.

Hann segir að við þessar breytingar þá verði það sem á þýsku er kallað „Zeitenwende“ eða á íslensku „straum­hvörf“. Tímabil lágrar verðbólgu, lágra vaxta, neikvæðra nafnvaxta á skulda­bréfum traustra ríkja eins og Þýska­lands, hás verðs hluta­bréfa og mikillar aukningar skulda ríkis­sjóða, fyrir­tækja og einstaklinga í hinum ýmsum löndum taki enda – allavega í bili.

„Við tekur meiri verðbólga, hærri vextir, lægri eignaverð og lækkun skulda­hlutfalla þó ekki væri nema vegna þess að verðbólga lækkar hlutfall óverðtryggðra skulda og fram­leiðslu. Ekki er ólíklegt að dreifing eigna og tekna verði jafnari en áður,“ skrifar Gylfi.

Gylfi útskýrir í greininni að í kjölfar fjármála­hrunsins hafi hugmyndir mótast um hagstjórnar­viðbrögð við innlendri eftir­spurnar­þenslu. „Í fljótu bragði má orða þau þannig að seðla­banki bregðist við þegar eftir­spurn fer vaxandi og fullri framleiðslu­getu hagkerfis er náð en ef hóflegar vaxta­hækkanir nægja ekki þá koma ríkis­fjármálin til hjálpar með því að ríkis­stjórn frestar framkvæmdum eða minnkar halla­rekstur með skatta­hækkunum. Ef slík viðbrögð láta á sér standa og peninga­stefnan þarf ein að hamla eftir­spurn þá skapast sú hætta að kvikt fjármagn leiti inn í krónu­hagkerfið – að fjár­festar kaupi innlend skulda­bréf til þess að hagnast á vaxtamun. Unnt er að bregðast við innflæði til skamms tíma með því að seðla­banki kaupi gjaldeyri á markaði og komi þannig í veg fyrir gengis­styrkingu.

En ef slíkt reynist of kostnaðar­samt þá þarf að grípa til annars stjórn­tækis peninga­stefnu sem er „sértæk bindi­skylda“ á fjár­festingar erlendra aðila í skráðum innlendum skulda­bréfum. Þetta stjórn­tæki var innleitt um vorið 2016 en hefur verið núll­stillt undan­farin misseri.“

Undir ákveðnum kringumstæðum þurfa seðlabankar að geta heft kvikt fjármagnsflæði

Gylfi bendir á að orðið „fjármagns­höft“ hafi neikvæða merkingu í huga margra og tengi þeir þá hugtakið gjarnan við innflutnings­höft fjórða áratugarins hér á landi og allt fram á þann sjöunda.

„En sífellt fleiri hagfræðingar aðhyllast nú þá skoðun að undir ákveðnum kringum­stæðum þurfi seðla­bankar að geta heft kvikt fjármagns­flæði, þ.e.a.s. kaup og sölu á innlendum skulda­bréfum. Hér er ekki átt við erlenda fjár­festingu og ekki vöru­viðskipti heldur kvikar hreyfingar fjármagns inn á og út af skuldabréfa­markaði. Franski hagfræðingurinn Helene Rey heldur því fram að í stað þess að geta valið frjálst flæði fjármagns og sjálf­stæða peninga­stefnu ef fastgengis­stefnu er fórnað eða fastgengis­stefnu og frjálst flæði ef sjálf­stæðri peninga­stefnu er fórnað, standi valið um það hvort ríki hafi fullkomlega frjálst flæði fjármagns eða sjálf­stæða peninga­stefnu. Þannig sé sjálfstæð peninga­stefna illframkvæmanleg jafnvel þótt gengi sé fljótandi.

Hagfræðingurinn Robert Aliber hefur lengi haldið því fram að hugmynda­fræðin á bak við sjálf­stæða peninga­stefnu við fljótandi gengi sé gjald­þrota af þessum sökum. Jafnvel Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn er nú opnari fyrir beitingu takmarkaðra fjármagns­hafta. Íslenskur hagfræðingur, Þorvarður Tjörvi Ólafsson, starfar nú við þróun fjár­stýringar­tækja hjá sjóðnum. Um sumarið 2018 var haldin í Háskóla Íslands ráðstefna innlendra og erlendra hagfræðinga þar sem fjallað var m.a. um það hvernig lítil, opin hagkerfi geta haft sjálf­stæða peninga­stefnu. Niður­staðan var sú að nauðsynlegt væri að hafa ekki einungis vexti sem stýritæki heldur þyrfti að bregðast við kvikum fjármagns­hreyfingum með öðru tæki, eins og hinni sértæku bindi­skyldu,“ skrifar hann.

Af hverju eru kvikar fjármagnshreyfingar hættulegar?

Gylfi spyr jafnframt af hverju kvikar fjármagns­hreyfingar séu hættulegar. „Ímyndum okkur að peninga­stefnu sé beitt til þess að ná innlendri verðbólgu niður á næstu mánuðum. Slíkt felur í sér hærri vexti og ef vextir í helstu viðskipta­löndum hækka ekki samsvar­andi þá myndast vaxta­munur við útlönd. Slíkt kallar á vaxtamunar­viðskipti, fjár­festar taka þá lán í lágvaxta­myntum og fjárfesta í krónu­skulda­bréfum sem hækkar gengi krónunnar. Gengis­hækkunin eykur hagnað fjár­festanna enn meira og fleiri fjár­festar bætast í hópinn. Þeir hoppa þá á mynt sem er á uppleið og hagnast yfirleitt meira á gengis­hækkunin en vaxta­muninum.

En þegar gengi hækkar verður innflutningur ódýrari og neytendur auka neyslu sína og útgjöld sem veldur þá viðskipta­halla og versnandi erlendri eigna­stöðu þjóðar­búsins. Aðstreymi erlends fjármagns getur sömuleiðis valdið því að útlán vaxi innanlands og verð á hluta­bréfum og fasteignum hækki. Mikill þrýstingur myndast á það að útlán innlendra banka verði í erlendum gjald­miðlum eins og var fyrir 2008. Þeir sem muna reynsluna af misheppnaðri peninga­stefnu hruns­áranna geta síðan botnað þessa sögu.“

Hægt er að lesa grein Gylfa Zoega í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár