Óvæntur sigur í forsetakjöri Interpol

Fulltrúi Rússa var talinn líklegastur til þess að verða kjörinn forseti alþjóða­lögreglunnar Interpol en hann tapaði óvænt fyrir Suður-kóreu­manninum Kim Jong-yang. Kosið var um nýjan forseti eftir að sitjandi forseta Interpol hvarf í október.

Kim Jong-yang nýkjörinn forseti Interpol.
Kim Jong-yang nýkjör­inn for­seti Interpol. Mynd: EPA

Suður-kóreu­maðurinn Kim Jong-yang bar óvænt sigur úr býtum í forseta­kjöri alþjóða­lögreglunnar Interpol á ársþingi hennar í Dubai. Fyrir kosningarnar var umdeildur fulltrúi Rússa, Alexander Prokopchuk talinn líklegastur til þess að hljóta kosningu. Frá þessu er greint á BBC.

Fulltrúar 194 aðilda­þjóða Interpol komu saman í Dubai til þess að kjósa nýjan forseta eftir hvarft sitjandi forseta Kínverjans Meng Hongwei í október. Hongwei hafði verið týndur í nokkrar vikur eftir ferð til Kína í september. Síðar kom hins vegar í ljós að Meng var hand­tekinn í heima­landinu sínu Kína vegna ásakana um mútuþægni og glæpi.

Umdeildur frambjóðandi Rússa

Mótframbjóðenda Kim Jong-yang var hinn rússneski Alexander Prokopchuk, fyrr­verandi undir­hers­höfðingi í rússneska innanríkisáðuneytinu en hann er vara­forseti Interpol og yfirmaður Interpol í Moskvu. Prokopchuk þótti sigur­stranglegasti fram­bjóðandinn en framboð hans var umdeild þar sem hann var meðal annars sakaður um að hafa misnotað alþjóðlegt handtökunarkerfi lögreglunnar til að lýsa eftir glæpa­mönnum á alþjóða­vísu í þágu Valdimirs Pútíns Rúss­lands­forseta.

Yfirvöld í Rússlandi hafa sagt að dregið hafi verið úr trúverðug­leika síns fram­bjóðanda en mann­réttinda­samtök víða um heim höfðu lýst yfir áhyggjum ef Prokopchuck yrði kosinn myndi hann misnota hlutverk sitt sem forseti Interpol gegn helstu andstæðingum Rúss­lands­forseta. Talið er að því hafi Banadaríkin og Bretland stutt forseta­kjör Kim Jong-yang en hann hefur verið starfandi forseti Interpol frá hvarfi Meng. Kim mun gegna embætti næstu tvö árin, eða út kjör­tímabil Meng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár